Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 49

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 49
þankastrik tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 49 það sem við vitum er: að það eru ákveðnir hópar útsettari fyrir ofbeldi, til að mynda konur af erlendum uppruna, konur sem að eru með langvinna líkamlega og andlega sjúkdóma, fatlaðar konur, konur í fíkn. Það eru líka tímabil í lífi kvenna þar sem þær eru í meiri áhættu fyrir ofbeldi, til að mynda þegar þær eru barnshafandi eða hafa ákveðið að fara frá ofbeldismanni. En það sem að sjaldan er talað um er það eru konur í ofbeldissamböndum sem vinna fulla vinnu, reka heimili með maka sínum og eru ekki þessar týpísku staðalímyndir kvenna sem verða fyrir ofbeldi. Einnig hefur ofbeldi aukist síðustu ár hjá yngri stúlkum í parasamböndum og það er alltaf jafn sláandi að hitta 18–20 ára stelpur sem hafa verið í ofbeldissambandi í 2–3 ár með kærustum sínum. Þetta er því miður að aukast og þarna þurfum við að opna augun og grípa inn í. Heimilisofbeldi er dauðans alvara hvert er ég að fara með þessum þankastriki mínu? jú við öll sem vinnum innan heil- brigðisgeirans þurfum að fræðast og setja á okkur þessi „gleraugu“. að vera vakandi fyrir einkennum þeirra sem að búa við ofbeldi. af hverju? Vegna þess að afleiðingar ofbeldis hafa víðtæk áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu. Það að spyrja um heim- ilisaðstæður, streituvalda í daglegu lífi og hreint og beint út í hvort að fólk verði fyrir ofbeldi, getur hjálpað og bjargað lífi þeirra sem eiga í hlut. heimilis ofbeldi er dauðans alvara. Tíu konur hafa dáið fyrir hendi maka á Íslandi á síðustu 30 árum. Það leita um 160 eintaklingar á bráðadeild Landspítala á ári hverju þar sem að komuástæða er heimilisofbeldi. Það leituðu um 170 konur til kvennaathvarfsins árið 2016 til dvalar þar og af þeim fóru 20% aftur heim til ofbeldismanns. Talið er að í dag búi 3000 börn við ofbeldi á Íslandi. Þetta er eins og gefur að skilja því miður víðtækt vandamál og við getum hjálpað. Bráðadeild Landspítala innleiddi nýtt verklag í móttöku eftir of- beldi í nánu sambandi núna í febrúar og allir starfsmenn, læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, starfsmenn og ritarar hafa fengið þjálfun eða fá þjálfun í notkun verklags- ins. Ég skora á ykkur hjúkrunarfræðingar að innleiða vitundarvakningu og verklag á ykkar vinnustöðum. Sameinuð getum við vonandi einhvern tímann séð til sólar í fækk un ofbeldismála. Ég skora á karólínu andrésdóttur hjúkrunarfræðing og sjúkraflutningsmann við heilsugæsluna á Egilsstöðum, að skrifa næsta þankastrik. Tíu konur hafa dáið fyrir hendi maka á Íslandi á síð - ustu 30 árum. Það leita um 160 eintaklingar á bráðadeild Land spítala á ári hverju þar sem að komuástæða er heim- ilisofbeldi. Taupokar — gjörið svo vel! Með þessu vortölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga fylgir sumargjöf frá félaginu; margnota taupoki með merki félags- ins. Hjá Fíh er alltaf verið að leita leiða til að vera umhverfis- vænni og draga úr sóun. Talsvert hefur verið dregið úr notkun pappírs, á skrifstofunni er allt flokk að, ekki eru notuð einnota kaffimál og nú verða bara notaðir margnota taupokar við flest tækifæri. Við vonum að pokarnir gagnist sem flestum, enda nota- drjúgir og fallegir. Þar sem pökkun á tímaritinu var umfangsmeiri en vana- lega var leitað til fangelsins á Hólmsheiði til að sjá um hana.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.