Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 60

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Síða 60
Tilgangur Meðalævilengd Íslendinga fer stöðugt hækkandi og á sama tíma eru vaxandi kröfur um að aldraðir eyði ævikvöldinu í heimahúsum. Árið 2013 voru 13,6% íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum 65 ára eða eldri. Tilgangur verkefnisins var að rannsaka athafnir og þátttöku í daglegu lífi meðal heimabúandi eldri borgara á þessu svæði. Aðferð rannsóknin var lýsandi þversniðsrannsókn og byggðist á heildarúr- taki allra íbúa rannsóknarsvæðisins sem höfðu náð 65 ára aldri og bjuggu heima. Þátttakendur voru 68 konur og 61 karl á aldrinum 65–91 árs (þátttökuhlutfall=80,1%). gögnum var safnað með staðlaða mælitækinu „Efri árin, mat á færni og fötlun“ þar sem þátttakendur meta erfiðleika sína við athafnir,tíðni þátttöku sinnar og takmörkun sína á þátttöku. niðurstöðurnar eru á jafnbilakvarða (0–100) þar sem fleiri stig þýða minni erfiðleika við athafnir, tíðari þátttöku eða minni takmörkun á þátttöku. niðurstöður voru bornar saman eftir kyni og aldurshópum (65–74 ára og 75–91 árs) og marktektarmörk sett við p<0,05. Niðurstöður Í heildina álitu karlar erfiðleika sína við athafnir minni (M=68,0) en konur (M=61,3) og hið sama gilti um yngri aldurshópinn (M=72,2) miðað við þann eldri (M=57,4). konur tóku oftar þátt í athöfnum (M=51,9) en karlar (M= 49,2) og yngri aldurshópurinn (M=52,0) var einnig virkari en sá eldri (M= 49,3). Eldri hópurinn taldi þátttöku sína líka takmarkaðri en sá yngri (M=68,8 og M=78,8). Þátttakendur lýstu ýmiss konar hindrunum sem eldri borgarar þurfa að yfirstíga til að eiga möguleika á að sjá um sig sjálfa og að taka þátt í samfélaginu. Ályktanir niðurstöðurnar gefa innsýn í athafnir og þátttöku eldri borgara á af- mörkuðu dreifbýlu svæði og hafa hagnýtt gildi fyrir öldrunarþjónustu á rannsóknarsvæðinu. Lykilorð: athafnir daglegs lífs (aDL), dreifbýli, félagsleg þátttaka, heilsa, öldrun. Inngangur Íslendingar eru með langlífari þjóðum heims og því er spáð að meðalævilengd landsmanna haldi áfram að hækka (hagstofa Íslands, e.d..Á efri árum aukast verulega líkurnar á að fólk glími við langvinna sjúkdóma og skerta líkamsstarfsemi og eigi erfitt með mikilvægar athafnir og þátttöku í daglegu lífi (he og Lar- sen, 2014; goodman o.fl., 2016; arnadottir o.fl., 2011). Slíkum erfiðleikum fylgja margvíslegur vandi sem getur snúið að ein- staklingnum sjálfum, þjóðfélaginu og öldrunarþjónustu. Þessa erfiðleika og vanda er mikilvægt að þekkja og sjá fyrir, en rann- sóknir sýna að með viðeigandi íhlutun og hvetjandi umhverfi er mögulegt að efla samfélagsþátttöku og bæta líf eldri borgara (Christensen o.fl., 2009). Á sunnanverðum Vestfjörðum hefur hlutfall eldri borgara vaxið jafnt og þétt á síðustu árum, hraðar en á landinu í heild (hagstofa Íslands, e.d.. Í byrjun árs 2013 voru 13,6% íbúa á svæðinu 65 ára eða eldri en það var tæplega einu prósentustigi hærra en á landsvísu (12,9%). Árið 1992 var þetta hlutfall aðeins 9,2% og þá það sama og á landinu öllu. Á heilsuvefsjá Embættis landlæknis fyrir árið 2013 mátti sjá að óvenjuhátt hlutfall aldraðra bjó í heimahúsum á þessu landsvæði. heilsa og færni eldri borgara á þessu tiltekna svæði hefur hins vegar ekki verið rannsökuð. Í lögum um málefni aldraðra kemur skýrt fram að það er réttur hvers aldraðs einstaklings að búa í heimahúsum og fá tilhlýðilega heilbrigðis- og félagsþjónustu (Lög um málefni 60 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 Nýjungar: upplýsingar um daglegar athafnir og félagslega þátttöku eldri borgara á sunnanverðum Vestfjörðum og þá þætti sem takmarka þátttöku þeirra. Hagnýting: niðurstöðurnar gefa vísbendingu um að hvaða einstaklings- og umhverfisþáttum skuli beina þjónustunni í þeim tilgangi að bæta líf eldri einstaklinga á svæðinu. Þekking: rannsóknir hafa í takmörkuðum mæli beinst að sambandinu á milli athafna og þátttöku eldri borgara og bú- setu þeirra á strjálbýlum svæðum. Áhrif á störf hjúkunarfræðinga: niðurstöðurnar gætu hvatt heilbrigðisstarfsmenn, svo sem hjúkrunarfræðinga, til að beina athyglinni meira að hinu flókna samspili sem á sér stað milli líkamlegrar getu eldri einstaklinga og umhverfisins. Hagnýting rannsóknarniðurstaðna Margrét Brynjólfsdóttir, heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði. guðrún Pálmadóttir, heilbrigðisvísindasvið háskólans á akureyri: iðjuþjálfunarfræðideild. Sólveig Ása Árnadóttir, heilbrigðisvísindasvið, Læknadeild: námsbraut í sjúkraþjálfun. Athafnir og þátttaka eldri borgara: Lýðgrunduð rannsókn á 65 til 91 árs íbúum á sunnanverðum Vestörðum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.