Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Qupperneq 74

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Qupperneq 74
lingshæfða fræðslu (Svavarsdottir o.fl., 2016a). Í annarri eig- indlegri rannsókn (n=19 heilbrigðisstarfsmenn) kom fram að mikilvægt er að heilbrigðisstarfsmenn nái persónulegu sam- bandi við hjartasjúklinga, átti sig á fræðsluþörfum þeirra, eigi árangursríkar samræður við þá og veiti einstaklingshæfða fræðslu (Svavarsdottir o.fl., 2016b). Það að ungu hjartasjúkling- arnir í rannsókn okkar fundu fyrir kvíða og þunglyndi kemur heim og saman við fyrri rannsóknir (Benyamini o.fl., 2013; Lavie og Milani, 2006) og er vert að ítreka að þunglyndi meðal ungra hjartasjúklinga hefur reynst vangreint og síður með - höndlað en hjá eldri einstaklingum (Yammine og frazier, 2013). fram kom reiði hjá þátttakendum, eins og í fyrri rannsóknum (karl kristjánsson o.fl., 2007; Lavie og Milani, 2006), og sú reiði tengdist því að vera búin að „missa heilsuna“ svo ung. Sumir byrgðu inni tilfinningar sínar til að hræða ekki aðra um of og aðrir vegna þess að enginn bauð upp á samræður um erfiðar tilfinningar. Þá kom einnig fram sjálfsásökun þátttakanda yfir að hafa ekki breytt lífsstíl sínum fyrr. Breytingar á lífsstíl flestallir þátttakendurnir fundu að þeir voru komnir á vendi- punkt og tókust á við lífsstílsbreytingar strax við hjartaáfallið. Það var sama hvaða lífsstílsbreytingu þeir þurftu að gera: hjartaáfallið varð til þess að þeir hættu að reykja, fóru að hreyfa sig, pössuðu mataræðið eða drógu úr streituþáttum. Þetta rímar við rannsóknarniðurstöður junehag og félaga (2014). Það sem er athyglisvert við okkar niðurstöður er að í flestum tilvikum kom vendipunkturinn strax, en ekki þegar lengra leið frá áfall- inu. Því má ætla að hjúkrunarfræðingar verði að nota tímann vel rétt eftir hjartaáfallið til að fræða um lífsstílsbreytingar þar sem einstaklingarnir virðast vera móttækilegastir fyrir breyt- ingum þá. Í rannsókn Peterson og félaga (2010) (n=61) með blandaðri aðferð náðu einungis 52% að breyta lífsstíl eftir hjartaáfallið og niðurstöður úr megindlegri rannsókn Mosleh og Darawad (2015) (n=254) sýndu líka að erfiðlega getur gengið að breyta lífsstíl því eftir hjartaáfallið reyktu enn 30% og einungis 34% hreyfðu sig eins og mælt var með. Margþætt einkenni hjartaáfallsins fæstir þátttakenda fengu brjóstverk en brjóstverkur er hefð - bundið einkenni hjartaáfalls. Í ástralskri rannsókn Coventry og félaga (2015) kom fram að af 382 sjúklingum, sem greindust með hjartaáfall, voru 26% greindir án þess að hafa fengið brjóst- verk. rannsókn kastner og Lemke (2013) sýndi að heilbrigðis- starfsfólk hefur tilhneigingu til að einblína á hin klassísku einkenni þegar sjúklingur kemur á bráðadeildir og horfi fram hjá öðrum einkennum. Ástæðuna telja þeir að sjúklingarnir hafi ekki einkennin sem heilbrigðisstarfsfólk reikni með að komi fram við hjartaáfall og sjúkdómsgreini því ekki rétt. Brýnt er að heilbrigðisstarfsfólk sem og almenningur sé vakandi fyrir minna þekktum einkennum. Í eigindlegri rannsókn Svavarsdóttur og félaga (2016a) vildu hjartasjúklingarnir 17 að heilbrigðisstarfs- fólk fræddi þá um líkamleg og andleg einkenni sem þeir höfðu reynt, en einnig um starfssemi hjartans og bentu á að not á fjöl- breyttu fræðsluefni yki gagnsemi fræðsl unnar. Styrkur og takmarkanir rannsóknarinnar rannsóknin veitir nýja innsýn í reynslu yngri Íslendinga sem hafa fengið hjartaáfall og sú innsýn getur bætt þjónustu við þennan aldurshóp. auglýst var eftir þátttakendum. Sjónarmið þeirra sem treystu sér ekki til að taka þátt í rannsókninni koma því ekki fram. Varast ber að alhæfa út frá rannsóknarniður - stöðum. Réttmæti og áreiðanleiki Beinar tilvitnanir í orð þátttakenda eru notaðar til að sýna fram á að orð þátttakenda eru á bak við þemun en ekki hugur rann- sakenda. Staðfesting frá öllum þátttakendum um að persónuleg reynsla þeirra væri rétt túlkuð (þrep 7) eykur trúverðugleika rannsóknarinnar og staðfesting frá tveimur þátttakendum um að heildarreynslan að fá hjartaáfall svo ungur sé rétt túlkuð (þrep 11) eykur jafnframt trúverðugleika hennar. Heimildir allsén, P., Brink, E., og Persson, L. O. (2008). Patient’s illness perceptions four months after a myocardial infarction. Journal of Clinical Nursing, 17, 25– 33, doi: 10.1111/j.1365-2702.2007.02136.x. alvarenga, M. E., og Byrne, D. (2016). Handbook of psychocardiology. Singa- púr: Springer Science. andersson, E. k., Borglin, g., og Willman, a. (2013). The experience of yo- unger adults following myocardial infarction. Qualitative Health Research, 23(6), 762–772, doi: 10.1177/1049732313482049. arnold, S. V., Smolderen, g. k., Buchanan, D. M., og Spertus, j. a. (2012). Perceived stress in myocardial infarction: Long-term mortality and health status outcomes. Journal of the American College of Cardiology, 60(18), 1756–1763, doi: 10.1016/j.jacc.2012.06.044. Benyamini, Y., roziner, i., goldbourt, u., Drory, Y., og gerber, Y. (2013). De- pression and anxiety following myocardial infarction and their inverse associations with future health behaviors and quality of life. Annals of Be- havioral Medicine, 46(3), 310–321, doi: 10.1007/s12160-013-9509-3. Björn jakob Magnússon, uggi agnarsson, Þórarinn guðnason og guð - mundur Þorgeirsson. (2017). Brátt hjartadrep á Íslandi í fertugum og yngri 2005–2009: Samanburður við tímabilið 1980–1984. Læknablaðið, 103(1), 11–15, doi: 10.17992/lbl.2017.01.115. Chung, M. C., Berger, Z., og rudd, h. (2008). Coping with posttraumatic stress disorder and comorbidity after myocardial infarction. Comprehen- sive Psychiatry, 49(1), 55–64, doi: 10.1016/j.comppsych.2007.0.003. Cohen, S. M. (2009). Concept analysis of adherence in the context of cardio- vascular risk reduction. Nursing Forum, 44, 25–36, doi: 10.1111/j.1744- 6198.2009.00124.x. Coventry, L. L., Bremner, a. P., Williams, T. a., Celenza, a., jacobs, i. g., og finn, j. (2015). Charactieristics and outcomes of Mi patients with and without chest pain: a cohort study. Heart, Lung and Circulation, 24(8), 796–805. Dowling, M., og Cooney, a. (2012). research approaches related to phenom- enology: negotiating a complex landscape. Nurse Researcher, 20(2), 21– 27, doi: 10.7748/nr2012.11.20.2.21.c9440. fålun, n., fridlund, B., Schaufel, M. a., Schei, E., og norekvål, T. M. (2015). Patients’ goals, resources, and barriers to future change: a qualitative study of patient reflections at hospital discharge after myocardial infarction. Eu- ropean Journal of Cardiovascular Nursing, 1–9, doi: 10.1177/14745 15115614712. junehag, L., asplund, k., og Svedlund, M. (2014). Perceptions of illness, life - style and support after an acute myocardial infarction. Scandinavian Jour- nal of Caring Sciences, 28(2), 289–296, doi: 10.1111/scs.12058. karl kristjánsson, Þórunn guðmundsdóttir og Magnús r. jónsson (2007). algengi, greining og meðferð þunglyndis og kvíða sjúklinga í hjarta - endurhæfingu. Læknablaðið, 93(12), 841–846. birna gestsdóttir, árún k. sigurðardóttir og sigríður halldórsdóttir 74 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.