Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Page 91
lífið í kjölfar áfallsins, s.s. metnaði, þrjósku, trú á sjálf sig,
ákveðni, þrautseigju, seiglu, að þiggja og fara eftir ráðum ann-
arra, jákvæðni, klókindum og óþolinmæði gagnvart aðstæðun -
um. Öll upplifðu þau ótta og óvissu gagnvart framtíð sinni og
fjölskyldu sinnar sem olli þeim vanlíðan. Öll fóru í gegnum
sjálfsskoðun ýmist á eigin spýtur eða með aðstoð fagmanna
sem hafði í för með sér breytt hugarfar til góðs. Þar hófst úr-
vinnsla áfallsins fyrir alvöru. flest þeirra fundu fyrir eigin for-
dómum yfir þeirri stöðu sem þau voru komnir í og það tók fólk
mislangan tíma að taka sjálft sig í sátt á ný. Margir þátttakendur
töldu kröfur sem gerðar voru til þeirra í uppeldinu, s.s. að
standa sig og taka ábyrgð, hafa haft jákvæð áhrif á úrvinnslu
áfallsins. fjárhagsáhyggjur voru sérstaklega stór og neikvæður
þáttur að mati hluta þátttakenda sem hafði kvíða, vanlíðan og
óvissu í för með sér. Sumir þátttakendur földu líðan sína
meðvitað út á við á úrvinnslutímabilinu til að verja sig og halda
reisn sinni.
Þegar ég var meðal fólks lét ég bara sem ekkert væri … mér
fannst það best til að verja mig … ég hafði engan áhuga á að vera
að væla eitthvað utan í fólki sem spurði nærgöngulla spurninga
og fór svo kannski heim og baktalaði mann eða vorkenndi manni
… þannig að ég bar bara höfuðið hátt og brosti … og ef mér leið
illa þá var ég bara heima hjá mér. [María]
allir þátttakendur áttu börn þegar þau urðu fyrir áfallinu og
voru börnin þeim fastur punktur í tilverunni. Mörg þeirra lýstu
þó sektarkennd yfir að hafa brugðist börnunum þar sem þeim
gekk misvel að hugsa um þau á þessum tíma.
Keðjuverkun frekari áfalla á vegferðinni
frekari áföll áttu sér stað hjá öllum þátttakendum og höfðu í
öllum tilvikum neikvæð áhrif á líðan þeirra. Mörgum fannst
sú hjálp sem þau höfðu þegar fengið frá fagaðilum við að vinna
úr fyrri áföllum nýtast vel þegar frekari áföll dundu yfir.
Þannig fannst sumum fyrri áföll hjálpa sér við úrvinnslu frek-
ari áfalla.
Mér fannst ég vera … svona sjóaður í þessu … bara vanur … það
kom mér ekkert orðið á óvart lengur. Það breyttist þá frekar í
reiði eða eitthvað sko. En ekkert svona „af hverju ég“ eða eitthvað
svoleiðis sko … það var allt bara hætt að koma mér á óvart.
[Leifur].
algengast var að frekari áföll tengdust ótryggri fjárhagslegri af-
komu í kjölfar fyrra áfallsins sem gat haft alvarlegar afleiðingar
fyrir þátttakendur og fjölskyldur þeirra, s.s. skilnað, fátækt og
húsnæðismissi. jónas sagði svo frá: „Ofan í allt saman var ég
tekjulaus þarna í mánuði sko … meðlagsgreiðslur, leiga, það
fór bara allt … misstum íbúðina … við gátum ekki borgað.“
Enginn er eyland: Þörfin fyrir stuðning og um-
hyggju á vegferðinni
Samkvæmt lýsingum þátttakenda voru það ýmsir þættir sem
höfðu áhrif á hvernig lífið eftir áfallið þróaðist, hversu lengi ein-
kenni áfallsins vörðu og hvernig þau unnu úr því. Öll voru sam-
mála um að stuðningur hafi haft jákvæð áhrif en stuðningsleysi
neikvæð. allir þátttakendur sögðu frá þörf sinni fyrir að fá að
tjá sig við einhvern sem þau treystu, á borð við ástvini, vini eða
fagfólk. Ástvinir voru þátttakendum mjög mikilvægir og höfðu
mikil áhrif á vegferð þeirra. anna sagði: „Maður þarf þessa
hlýju vináttu eða þá fjölskyldu sem stendur … með manni …
og svo líka ráðgjöf.“ Viðbrögð frá öðru fólki voru mismunandi.
Þau sem fundu fyrir samkennd og stuðningi sögðu það hafa
verið sér dýrmætt en stuðningsleysi vakti upp neikvæðar og
niðurbrjótandi tilfinningar. karen lýsti þessu svo:
Það var svolítið erfitt að koma inn og upplifa svolítið tvær fylk-
ingar. Þeir sem að … litu allt í einu á mig sem einhvern ógurlegan
sjúkling og ég var ekki merkilegur pappír lengur eða svo hinir
sem að bara … „flott hjá þér“ og ánægðir með … og fékk mikinn
stuðning frá … Mér fannst ég helst upplifa [þetta] í vinnunni
svona sterkt.
núverandi makar mættu flestir þörf þátttakenda fyrir stuðning
og höfðu jákvæð áhrif á vegferð þeirra í átt að meiri þroska en
fyrrverandi makar höfðu yfirleitt neikvæð áhrif. ný ást hafði
jákvæð áhrif. flestir í nánustu fjölskyldu sýndu stuðning eftir
áfallið, s.s. varðandi afkomu, andlegan stuðning, umhyggju og
ást, aðstoð með börn og heimilishald og aðstoð gagnvart kerf-
inu. Sumir þátttakendur lýstu stuðningsleysi frá sínum nánustu
sem var þeim erfitt. flest fundu fyrir stuðningi frá vinum en
karlkyns þátttakendur upplifðu margir blendin viðbrögð frá
vinum sínum, til dæmis umhyggjuleysi, höfnun og neikvæðni
í sinn garð eftir áfallið. Viðbrögð vinnuveitanda og samstarfs-
manna voru misjöfn. Enginn þátttakandi fann fyrir afgerandi
stuðningi samstarfsmanna og nokkur þeirra lýstu umhyggju-
leysi og neikvæðum viðbrögðum samstarfsmanna sem olli
þeim mikilli vanlíðan.
Jákvæð áhrif þess að takast á við ný verkefni
Sérhæfð endurhæfingarúrræði voru þeim þátttakendum sem
nýttu sér þau mjög mikilvæg. Mörg þeirra vissu fram að því
ekki hvert þau gætu snúið sér til að fá viðeigandi aðstoð. Þátt-
takendur lögðu áherslu á snemmtæka íhlutun sem og mikil-
vægi utanumhalds og stuðnings til lengri tíma. Þau töldu vilja
og jákvæðni vera lykilinn að velgengni í endurhæfingu.
… hvað þau eru tilbúin að aðstoða fólk og koma því aftur á á
lappirnar sko … en þú náttúrulega verður að hafa viljann til að
gera það, það þýðir ekkert að ætla að fara þarna inn … bara til
að þykjast ætla að taka þátt í þessu … þú verður bara að gera þetta
með jákvæðu hugarfari. (Leifur)
Þátttaka í atvinnulífinu var þátttakendum mikilvæg og hafði
uppbyggjandi áhrif á líf þeirra.
… að fara að vinna, vinna á vinnumarkaði … að vera partur af
þjóðfélaginu, partur af programmet skilurðu bara … finna
húmor, finna þú veist þetta að tala við fólk svona um daginn og
eitthvað án þess að það sé verið að tala um stanslaust að eitthvað
sé að, veikindi og eitthvað … bara fólk úti í lífinu, bara um dag-
inn og veginn, veðrið … það lyfti mér á annan stall. (fanney)
nokkrir þátttakendur upplifðu skort á vilja og sveigjanleika á
vinnumarkaði þegar kom að því að fara að vinna á ný.
ritrýnd grein scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 94. árg. 2018 91