Morgunblaðið - 06.12.2019, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.12.2019, Blaðsíða 35
Neyslumynstur okkar tekurstöðugum breytingum og hefurneysla jurtafæðis á kostað dýraafurða aukist töluvert. Fæði án allra dýraafurða getur verið afar heilsusamlegt en þó þarf að huga sérstaklega að ákveðnum næringarefnum sem gæti skort í þess háttar fæði. Í flestum tilfellum geta grænkerar uppfyllt næringarþörf sína en nauðsynlegt er að kynna sér vel hvaða annmarka þetta fæði getur haft með tilliti til þarfa líkamans. Grænmetisætur/vegan Þeir sem sneyða hjá öllum dýraafurðum þurfa að hafa augun sérstaklega vel opin fyrir því að fæðan innihaldi nægilegt magn af próteinum, járni, sinki, kalki, joði, B12 vítamíni og D-vítamíni. D-vítamín þurfa allir að taka á bætiefnaformi, alltaf, en hin efnin má finna í ýmsum matvælum, hvort sem það er hluti af náttúrulegu innihaldi vörunnar eða viðbætt. Hvað próteinið varðar þá finnast þau í flestum fæðuflokkum en mælt er með þvi að baunir, sem eru afar próteinríkar, séu notaðar í jurtafæðinu í svipuðu mæli og kjöt og fiskur eru í blönduðu fæði. B12 vítamínskortur Fjöldi fólks sem borðar matvæli úr öllum fæðuflokkum er ekki að taka upp lágmarksmagn af því B12 og járni sem nauðsynlegt er til að viðhalda eðlilegri líkamsstarfsemi. Skortur á B12 getur verið vegna einhæfrar fæðu eða vegna þess að líkaminn getur ekki unnið það úr fæðunni. Þetta er það vítamín sem flesta skortir á efri árum og er það oftast vegna skorts á efninu „ Intrinsic Factor“ sem er mikilvægt prótein, framleitt í maganum sem sér um upptöku á þessu lífsnauðsynlega vítamíni. Það þýðir að þó svo að við borðum dýraafurðir eða tökum vítamínpillur, verður upptakan engin og við lendum í skorti. Einkenni járnskorts Járnskortur er einn algengasti næringarefnaskortur í heiminum og snertir u.þ.b. 25% jarðarbúa. Það eru þó nokkur vel þekkt og algeng einkenni járnskorts sem gott er að vera vakandi yfir: n Orkuleysi n Svimi & slappleiki n Hjartsláttartruflanir n Föl húð n Andþyngsli n Minni mótstaða gegn veikindum n Handa- og fótkuldi Ástæða járnskorts er oftast vegna ónógs járns í fæðunni, blóðmissis, áveðinna sjúkdóma eða aukinnar járnþarfar (t.d. vegna meðgöngu). Frásog getur líka verið lélegt af ýmsum ástæðum en svo eru líka margir sem fá ekki nóg af járnríkum mat eins eins og rauðrófum, rauðu kjöti, grænu grænmeti, baunum, hnetum, fræjum ofl. Gott er að hafa í huga að til að frásoga járn úr fæðunni, hjálpar til að taka C-vítamín þar sem það eykur frásog. Að sama skapi skal forðast mjólkurvörur þar sem þær hindra eða draga verulega úr upptöku. Joðskortur og skjaldkirtill Vegna breytts mataræðis er í fyrsta sinn farinn að mælast joðskortur á Íslandi og er það fyrst og fremst rakið til samdráttar á neyslu mjólkurvara og fisks. Joðskortur getur verið mjög alvarlegur og hjá börnum getur hann valdið þroskasskerðingu. Joðið hefur helst áhrif á skjaldkirtilsvirkni og eru helstu einkenni skorts þreyta, aukin þyngd og aukin næmi fyrir kulda svo dæmi sé tekið. Það eru ekki til margar joðuppsprettur svo að það getur verið nauðsynlegt að fá það úr bætiefnum, sérstaklega ef neysla á mjólkurvörum og fiski er undir útgefnum ráðleggingum um mataræði. Vegan Health frá Better You Vegan Health er fyrsti sinnar tegundar í heiminum en með þessum munnúða fer öll upptaka gegnum slímhúð í munni, magaónot verða engin og hámarksupptaka er tryggð. Þessi blanda inniheldur: n D3 vítamín (vegan) n B12 (methylcobalamin & adenozylcobalamin) n Járn n Joð Fjórir úðar daglega gefa 5mg af járni, 3000 ae af D-vítamíni, 6μg af B12 og 150μg af joði. Vegan Health hentar öllum, einnig á meðgöngu. Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana Vegan Health munnúðinn frá Better You er samsettur úr D-vítamíni og joði ásamt B12 og járni fyrir þá sem eiga erfitt með upptöku þess úr fæðunni og þá sem neyta ekki dýraafurða. Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019. Umbúðir eru gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum og stefna fyrirtækisins er að í lok árs 2019 verði allar umbúðir sem fyrirtækið notar úr kolefnis-neikvæðu (carbon negative)- eða endurunnu plasti og að allt sé endurvinnanlegt. Vissir þú að: Til framleiðslu á rauðum blóðkornum þarf m.a. járn, B12 vítamín og fólínsýru en ef skortur er á einhverju þessara efna, minnkar framleiðsla rauðra blóðkorna. Við þetta minnkar flutningsgeta þeirra á súrefni um líkamann og frumurnar tapa orku sem getur valdið ýmsum líkamlegum kvillum. Hvítari tennur – bjartara bros NuPearl®32x Advanced Teeth Whitening er sérlega auðvelt í notkun. Mjúkur sílikon gómur, Led ljós, hvíttunarefni og hvíttunarpenni saman í kassa og svo er hægt að kaupa áfyllingar Náttúruleg innihaldsefni og jurtir. ■ Getur hvíttað um allt að 8 tóna ■ Lýsir bletti á tönnum sem myndast með árunum vegna kaffdrykkju, reykinga, víns ofl. ■ Öruggt fyrir glerunginn og extra milt vegna náttúrulegra innihaldsefna og jurta. ■ Hentar einnig viðkvæmum tönnum ■ Mælt með af tannlæknum Sölustaðir: Flest apótek & Fjarðarkaup. Fær líkaminn þinn alla þá næringu sem hann þarf?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.