Morgunblaðið - 06.12.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.12.2019, Blaðsíða 19
Allt um sjávarútveg UMRÆÐAN 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019 Hin 123 ára gamla kenning Arrheniusar um hlýnun loftslags af völdum koltvísýrings frá mönnum hefur nú vakið spár um „ham- farahlýnun“. Arrheniusi yfirsást meginatriðið, áhrif loftrakans. Hálf- um áratug eftir að kenningin kom fram var hún hrakin af Knut Ångström en hefur samt skotið upp kollinum þegar veðurlag hefur hlýnað (eftir 1920 og 1980). Heimsendaspár með fölsunum Fyrir 10 árum komust falsanir fyrir almannasjónir (nóv. 2009, Climate- gate) með birtingu tölvubréfa frá „vís- indamönnum“. Þrátt fyrir það hafa spárnar haldið áfram og eru nú orðnar að heimsendaspám sem meginfjöl- miðlar, stjórnmálamenn, samtök og fyrirtæki taka þátt í. Skógareldar, óveður, bráðnun, súrnun og hverskyns breytingar eru tengdar við „loftslags- breytingar“. Vísindatímarit og jafnvel vísindafélög hafa gert sig ber að hylm- ingum. En það sem er mest ógnvekj- andi er að falsanirnar koma nú m.a. frá áður virtum stofnunum. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóð- anna um loftslagsbreytingar (IPCC) hefur sent frá sér vondar spár á grunni vísindafalsana í áratugi. „Stofnsetning IPCC var stórslys í sögu vísindanna. Hreint pólitísk stofnun látin koma fram sem vísindastofnun –“ (Prof. em. J. Brignell, Englandi). Skýrsla IPCC nr. 25, sem rædd verður í Madrid nú í desember, er með svipaða spá og fyrri skýrslur sem allar reyndust falskar. Margir helstu vísindamennirnir sem áður störfuðu með nefndinni eru hætt- ir og hafa afhjúpað falsanirnar: „… móðursýkishlaðin skýrsla frá valdagráðugri stofnun – ólíkleg ágisk- un studd af fölskum sönnunargögnum og endurtekin endalaust“ (Prof. em. R. Linzen, USA). „… sumar fullyrðingar nefndarinnar falla undir skilgrein- inguna andvísindaleg heimska… “ (Prof. em. A. Mörner, Svíþjóð). Al- þjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) og Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóð- anna (UNEP) hafa tekið þátt í áróðri með Milliríkjanefndinni. Skriffinnar Sameinuðu þjóðanna og ESB hafa reynt að leiða áróðurinn fyrir „ham- farahlýnuninni“. Vandaðar rannsóknastofnanir í all- nokkrum löndum hafa leiðst með í fals- anirnar. Þær fá fjárveitingar frá stjórnmálamönnum (ríkinu) til „lofts- lagsrannsókna“ meðan þær geta hald- ið ógninni um hlýnun lifandi. Eftir að ljóst varð að loftslagshlýnunin 1980- 2000 var hætt tóku vissar stofnanir að „aðlaga“ eldri hitamælingar að lík- önum um hvernig loftslagið „ætti að breytast“ samkvæmt þeirra kenn- ingum. Þær tóku að breyta mæligild- unum fyrir hitastigið, eldri gildi „kæld“ en nýrri „hituð“ til þess að sýna hlýnun. „Hafs- og andrúmslofts- stofnunin (NOAA) – hefur mikilvægt hlutverk – mæla hita í Bandaríkj- unum. Því miður sýnist stofnunin vera fangi trúarbragðanna um hnatthlýnun. Upplýsingar stofnunarinnar eru fals- aðar …“ (Investor’s Business Daily 29.3. 2018). Undirstofnun NASA, GISS, hefur gefið út „aðlagaðar“ hita- tölur fyrir Bandaríkin í nokkur ár. „Framleiðsla hlýnunar: NASA GISS breytir nú óaðlöguðum hitamælingum til þess að búa til ný og heitari að- löguð hitastig… “ (No Trick Zone 31.3. 2019). Nýlega hefur komið fram grunur um að líka sé farið að „aðlaga“ gervihnattamælingarnar sem hafa verið taldar sæmilega öruggar. Öruggar hitamælingar sýna ekki marktæka hlýnun síðustu 80 árin í Bandaríkjunum eða við strönd Íslands að N-Atlantshafinu né heldur í öðrum ríkjum Norðurlanda. Í Japan hefur loftslag kólnað síðustu áratugi (GHCN v3 Unadjusted; Engin varanleg hlýn- un loftslags á suðurströndinni 80 ár/ Frjálst land; World Climate, Tokyo Climate Center). Hlýnun var á ár- unum 1920-1940 og aftur 1980-2000, hlýjustu árin frá upphafi öruggra mæl- inga voru fyrir og um 1940. Grófasta vísindafölsunin er að auk- inn koltvísýringur í lofthjúpnum hækki hitastigið á jörðinni. Koltvísýrings- styrkur loftsins hefur vaxið úr 0,03% í 0,04% á einni öld. Ef aukningin skyldi halda áfram í svipuðum takti verður styrkurinn orðinn 0,7% eins og á blómatíma gróðursins eftir um 3.000 ár og fastlandið orðið vel grænt. Það er þó ólíklegt, aðeins er vitað um rúmlega 1.000 ára birgðir af jarðefnaeldsneyti (samanlagt) í jarðskorpunni ef notk- unin verður óbreytt. Einnig vex upp- taka lands og sjávar (er nú um 30-föld losun manna) með auknum styrk og nær með tímanum að taka upp alla við- bótarlosunina. Eðlisefnafræðileg lögmál sýna að þau litlu áhrif sem koltvísýringurinn hefur á hitastigið í lofthjúpnum eru þegar að mestu komin fram. Koltvísýr- ingurinn sem er nú þegar í loft- hjúpnum tekur upp nær alla varma- geislun sem hann getur tekið upp en það er á bylgjulengdunum 2,7, 4,3 og 15 míkrón. Útstreymi varmageislunar út úr lofthjúpnum er ekki á þeim bylgjulengdum heldur á 8-12 míkrón sem koltvísýringurinn getur ekki tekið upp. Aukið magn af koltvísýringi í loft- inu breytir þessu ekki sem þýðir að styrkur koltvísýringsins í andrúmsloft- inu hefur hverfandi áhrif á hitastigið á jörðinni. Metan hefur sömuleiðis hverfandi áhrif af sömu ástæðum. Það er geislaupptaka loftrakans sem er yfirgnæfandi og veldur obbanum af gróðurhúsaáhrifunum. „ … það hefur ekki verið sýnt fram á með sannfærandi hætti að aukning CO2 í andrúmsloftinu hafi ákveðin áhrif á loftslag.“ (Prof. em. D. Thoe- nes, Hollandi) Af rannsóknum færustu óháðra vís- indamanna er orðið ljóst að aukinn koltvísýringur í lofthjúpnum hefur hverfandi áhrif á loftslagið á jörðinni. Loftslagsvísindi hrjáð af fölsunum Eftir Friðrik Daníelsson Friðrik Daníelsson »Ekki hefur verið sýnt fram á með sannfærandi hætti að aukning koltvísýrings í andrúmsloftinu hafi ákveðin áhrif á loftslag Höfundur er efnaverkfræðingur. Sú spurning hefur leitað á mig hvort við Íslendingar séum ekki að taka við of mörgum hælisleitendum. Kostnaður við þá er mikill og leggst af þunga á heilbrigðiskerfið sem á í ýmsum vanda fyrir. Það fréttist til útlanda að hér sé gert vel við hælis- leitendur. Hér á landi býr sumt fólk við fá- tækt og mikinn skort. Er ekki eðli- legt að huga fyrst að því? Sigurður Guðjón Haraldsson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Hælis- leitendur Morgunblaðið/Eggert JÓLASERÍUR við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA kr.275 Inni- og útiseríur. Verð frá Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 7.30-16.30 Sími 557 8866 pantanir@kjotsmidjan.is Komdu við eða sérpantaðu - Fyrir jólaboðin - Hangikjöt, hamborgarhryggur og villibráð Gæða kjötvörur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.