Morgunblaðið - 06.12.2019, Page 19
Allt um sjávarútveg
UMRÆÐAN 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2019
Hin 123 ára gamla
kenning Arrheniusar
um hlýnun loftslags af
völdum koltvísýrings
frá mönnum hefur nú
vakið spár um „ham-
farahlýnun“. Arrheniusi
yfirsást meginatriðið,
áhrif loftrakans. Hálf-
um áratug eftir að
kenningin kom fram var
hún hrakin af Knut
Ångström en hefur samt skotið upp
kollinum þegar veðurlag hefur hlýnað
(eftir 1920 og 1980).
Heimsendaspár með fölsunum
Fyrir 10 árum komust falsanir fyrir
almannasjónir (nóv. 2009, Climate-
gate) með birtingu tölvubréfa frá „vís-
indamönnum“. Þrátt fyrir það hafa
spárnar haldið áfram og eru nú orðnar
að heimsendaspám sem meginfjöl-
miðlar, stjórnmálamenn, samtök og
fyrirtæki taka þátt í. Skógareldar,
óveður, bráðnun, súrnun og hverskyns
breytingar eru tengdar við „loftslags-
breytingar“. Vísindatímarit og jafnvel
vísindafélög hafa gert sig ber að hylm-
ingum. En það sem er mest ógnvekj-
andi er að falsanirnar koma nú m.a. frá
áður virtum stofnunum.
Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreytingar (IPCC)
hefur sent frá sér vondar spár á grunni
vísindafalsana í áratugi. „Stofnsetning
IPCC var stórslys í sögu vísindanna.
Hreint pólitísk stofnun látin koma
fram sem vísindastofnun –“ (Prof. em.
J. Brignell, Englandi). Skýrsla IPCC
nr. 25, sem rædd verður í Madrid nú í
desember, er með svipaða spá og fyrri
skýrslur sem allar reyndust falskar.
Margir helstu vísindamennirnir sem
áður störfuðu með nefndinni eru hætt-
ir og hafa afhjúpað falsanirnar:
„… móðursýkishlaðin skýrsla frá
valdagráðugri stofnun – ólíkleg ágisk-
un studd af fölskum sönnunargögnum
og endurtekin endalaust“ (Prof. em. R.
Linzen, USA). „… sumar fullyrðingar
nefndarinnar falla undir skilgrein-
inguna andvísindaleg heimska… “
(Prof. em. A. Mörner, Svíþjóð). Al-
þjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) og
Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóð-
anna (UNEP) hafa tekið þátt í áróðri
með Milliríkjanefndinni. Skriffinnar
Sameinuðu þjóðanna og ESB hafa
reynt að leiða áróðurinn fyrir „ham-
farahlýnuninni“.
Vandaðar rannsóknastofnanir í all-
nokkrum löndum hafa leiðst með í fals-
anirnar. Þær fá fjárveitingar frá
stjórnmálamönnum (ríkinu) til „lofts-
lagsrannsókna“ meðan þær geta hald-
ið ógninni um hlýnun lifandi. Eftir að
ljóst varð að loftslagshlýnunin 1980-
2000 var hætt tóku vissar stofnanir að
„aðlaga“ eldri hitamælingar að lík-
önum um hvernig loftslagið „ætti að
breytast“ samkvæmt þeirra kenn-
ingum. Þær tóku að breyta mæligild-
unum fyrir hitastigið, eldri gildi
„kæld“ en nýrri „hituð“ til þess að
sýna hlýnun. „Hafs- og andrúmslofts-
stofnunin (NOAA) – hefur mikilvægt
hlutverk – mæla hita í Bandaríkj-
unum. Því miður sýnist stofnunin vera
fangi trúarbragðanna um hnatthlýnun.
Upplýsingar stofnunarinnar eru fals-
aðar …“ (Investor’s Business Daily
29.3. 2018). Undirstofnun NASA,
GISS, hefur gefið út „aðlagaðar“ hita-
tölur fyrir Bandaríkin í
nokkur ár. „Framleiðsla
hlýnunar: NASA GISS
breytir nú óaðlöguðum
hitamælingum til þess að
búa til ný og heitari að-
löguð hitastig… “ (No
Trick Zone 31.3. 2019).
Nýlega hefur komið
fram grunur um að líka
sé farið að „aðlaga“
gervihnattamælingarnar
sem hafa verið taldar
sæmilega öruggar.
Öruggar hitamælingar sýna ekki
marktæka hlýnun síðustu 80 árin í
Bandaríkjunum eða við strönd Íslands
að N-Atlantshafinu né heldur í öðrum
ríkjum Norðurlanda. Í Japan hefur
loftslag kólnað síðustu áratugi (GHCN
v3 Unadjusted; Engin varanleg hlýn-
un loftslags á suðurströndinni 80 ár/
Frjálst land; World Climate, Tokyo
Climate Center). Hlýnun var á ár-
unum 1920-1940 og aftur 1980-2000,
hlýjustu árin frá upphafi öruggra mæl-
inga voru fyrir og um 1940.
Grófasta vísindafölsunin er að auk-
inn koltvísýringur í lofthjúpnum hækki
hitastigið á jörðinni. Koltvísýrings-
styrkur loftsins hefur vaxið úr 0,03% í
0,04% á einni öld. Ef aukningin skyldi
halda áfram í svipuðum takti verður
styrkurinn orðinn 0,7% eins og á
blómatíma gróðursins eftir um 3.000
ár og fastlandið orðið vel grænt. Það er
þó ólíklegt, aðeins er vitað um rúmlega
1.000 ára birgðir af jarðefnaeldsneyti
(samanlagt) í jarðskorpunni ef notk-
unin verður óbreytt. Einnig vex upp-
taka lands og sjávar (er nú um 30-föld
losun manna) með auknum styrk og
nær með tímanum að taka upp alla við-
bótarlosunina.
Eðlisefnafræðileg lögmál sýna að
þau litlu áhrif sem koltvísýringurinn
hefur á hitastigið í lofthjúpnum eru
þegar að mestu komin fram. Koltvísýr-
ingurinn sem er nú þegar í loft-
hjúpnum tekur upp nær alla varma-
geislun sem hann getur tekið upp en
það er á bylgjulengdunum 2,7, 4,3 og
15 míkrón. Útstreymi varmageislunar
út úr lofthjúpnum er ekki á þeim
bylgjulengdum heldur á 8-12 míkrón
sem koltvísýringurinn getur ekki tekið
upp. Aukið magn af koltvísýringi í loft-
inu breytir þessu ekki sem þýðir að
styrkur koltvísýringsins í andrúmsloft-
inu hefur hverfandi áhrif á hitastigið á
jörðinni. Metan hefur sömuleiðis
hverfandi áhrif af sömu ástæðum. Það
er geislaupptaka loftrakans sem er
yfirgnæfandi og veldur obbanum af
gróðurhúsaáhrifunum.
„ … það hefur ekki verið sýnt fram
á með sannfærandi hætti að aukning
CO2 í andrúmsloftinu hafi ákveðin
áhrif á loftslag.“ (Prof. em. D. Thoe-
nes, Hollandi)
Af rannsóknum færustu óháðra vís-
indamanna er orðið ljóst að aukinn
koltvísýringur í lofthjúpnum hefur
hverfandi áhrif á loftslagið á jörðinni.
Loftslagsvísindi
hrjáð af fölsunum
Eftir Friðrik
Daníelsson
Friðrik Daníelsson
»Ekki hefur verið
sýnt fram á með
sannfærandi hætti að
aukning koltvísýrings í
andrúmsloftinu hafi
ákveðin áhrif á loftslag
Höfundur er efnaverkfræðingur.
Sú spurning hefur leitað á mig hvort
við Íslendingar séum ekki að taka
við of mörgum hælisleitendum.
Kostnaður við þá er mikill og leggst
af þunga á heilbrigðiskerfið sem á í
ýmsum vanda fyrir. Það fréttist til
útlanda að hér sé gert vel við hælis-
leitendur.
Hér á landi býr sumt fólk við fá-
tækt og mikinn skort. Er ekki eðli-
legt að huga fyrst að því?
Sigurður Guðjón Haraldsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Hælis-
leitendur
Morgunblaðið/Eggert
JÓLASERÍUR
við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA
kr.275
Inni- og útiseríur.
Verð frá
Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími 7.30-16.30
Sími 557 8866
pantanir@kjotsmidjan.is
Komdu við
eða sérpantaðu
- Fyrir jólaboðin -
Hangikjöt, hamborgarhryggur og villibráð
Gæða
kjötvörur