Morgunblaðið - 19.12.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
595 1000
Verð frá kr.
96.895
Apt. Paradero I
4. febrúar í 7 nætur
Tenerife
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
9.990
8” MYNDARAMMI
Stafrænn myndarammi
með kortalesara
FRÍTT
SENDUM
ALLAR VÖR
UR
ALLT AÐ 10
kg
ALLA DAGATIL JÓLA
OPIÐ10-19
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Haustþingi 150. löggjafarþingsins
lauk á sjöunda tímanum í fyrrakvöld
og fóru í alþingismenn þá jólafrí. Stíft
var fundað á Alþingi tvo síðustu þing-
dagana fyrir jól.
Samkvæmt yfirliti á vef Alþingis
eyddu þingmenn samtals rúmum 224
klukkustundum í ræðustól Alþingis á
haustþinginu, sem hófst 10. sept-
ember. Flutt var 2.351 ræða og gerð-
ar 2.454 athugasemdir. Meðallengd
hverrar þingræðu var rúmar fjórar
mínútur.
Guðmundur Ingi Kristinsson þing-
maður Flokks fólksins var sá sem
mest talaði á haustþinginu. Hann
flutti 231 ræðu og athugasemd og tal-
aði í samtals 637 mínútur. Það gera
tæplega 11 klukkustundir samanlagt.
Næstur Guðmundi kom Björn Leví
Gunnarsson Pírati, en hann flutti 230
ræður og athugasemdir og talaði í
samtals 572 mínútur. Næstir komu
Þorsteinn Víglundsson Viðreisn (215/
556), Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra (181/505), Birgir Þór-
arinsson Miðflokki (129/497) og Þor-
steinn Sæmundsson Miðflokki
(120/451). Fyrsta konan sem nær á
listann er Inga Sæland Flokki fólks-
ins (126/404).
Sigríður Á. Andersen Sjálfstæð-
isflokki talaði minnst á haustþinginu.
Hún flutti 15 ræður og athugasemd-
ir, samtals í 29 mínútur. Þar á eftir
koma Silja Dögg Gunnarsdóttir
Framsóknarflokki (11/37), Albertína
Friðbjörg Elíasdóttir Samfylkingu
((16/41), Páll Magnússon Sjálfstæð-
isflokki (16/43) og Ásmundur Frið-
riksson Sjálfstæðisflokki (20/55).
Samkvæmt starfsáætlun þingsins
eiga nefndafundir að hefjast 14. jan-
úar, að loknu jólaleyfi þingmanna.
Þingfundir hefjast svo að nýju mánu-
daginn 20. janúar. Eldhúsdags-
umræður eiga að fara fram miðviku-
daginn 3. júní. Stefnt er að
þingfrestun miðvikudaginn 10. júní
2020.
Stóðu 224 klukkutíma í ræðustólnum
Guðmundur Ingi talaði mest á haust-
þingi Þingmenn í fríi fram á næsta ár
Morgunblaðið/Eggert
Ræðukóngur Guðmundur Ingi Kristinsson Flokki fólksins í ræðustólnum.
Þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi var búist
við því að varðskipið Þór, sem hefur sinnt hlutverki
rafstöðvar á Dalvík síðan í síðustu viku, yrði aftengt
áður en fimmtudagsmorgun gengi í garð.
„Það er gert ráð fyrir því að skipið verði komið aftur
til Reykjavíkur á föstudagsmorgun eða eitthvað slíkt,“
segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelg-
isgæslunnar.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar,
og Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri að-
gerðasviðs, fóru til Dalvíkur í gær á þyrlu gæslunnar,
TF-EIR, til þess að kanna aðstæður um borð í varðskip-
inu.
Þór var tengdur við Dalvík síðastliðinn fimmtudag
vegna rafmagnsleysis sem kom upp í óveðrinu sem
gekk yfir landið í síðustu viku.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Varðskipið Þór aftengt á Dalvík
„Það hefur verið ótrúlegur hæga-
gangur í þessum viðræðum,“ segir
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður
BSRB, um kjaraviðræður stéttar-
félaganna og viðsemjenda hjá ríki,
Reykjavíkurborg og Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga.
Í gær var haldinn sáttafundur
BSRB og samninganefndar ríkisins
en ekkert kom út úr honum, að sögn
Sonju.
Á stærra borði viðsemjenda eru
vinnuvikustytting vaktavinnufólks,
umræður um jöfnun launa og
launaþróunartrygging. Á samninga-
fundum BSRB og samninganefndar
ríkisins hefur verið tekist á um orlof
og starfsumhverfi. Sonja segir að
starfsumhverfi opinberra starfs-
manna einkennist af miklu álagi. „Við
höfum lagt áherslu á að settar séu
fram reglur sem fjalla um það hvern-
ig megi sporna við álagi í vinnunni.“
Spurð hvort viðræðurnar, sem hafa
staðið síðan í mars, séu ekki farnar að
taka of langan tíma segir Sonja:
„Jú og þolinmæðin er náttúrulega
þrotin hjá öllum, bæði félagsmönnum
og forystu aðildarfélaganna og
BSRB. Það er alveg ljóst að ef þessi
hægagangur heldur áfram eftir ára-
mót þá munum við fara að huga að
plani B.“
Stendur ekki á ríkinu
Sverrir Jónsson, formaður samn-
inganefndar ríkisins, segir að viðræð-
ur gangi ekki hægt, þær taki einfald-
lega tíma, enda sé um flókin mál að
ræða sem þurfi að vanda sig við að út-
færa.
„Ríkið er tilbúið í að ganga frá
samningi á sömu meginlínum og sam-
ið var um á almennum vinnumarkaði í
vor,“ segir Sverrir og á hann þá við
lífskjarasamning stjórnvalda.
„Við höfum náð samningi um hann,
við fimm stéttarfélög og eigum í góðu
samtali við þau. Þetta stendur ekki á
okkur.“
Ellefu BHM félög sem eru í sam-
starfi í kjaraviðræðunum eiga annan
fund með samninganefnd ríkisins á
morgun.
,,Það er mjög ólíklegt að við náum
samningum við ríkið eða sveitarfélög-
in fyrir jól,“ segir Maríanna H.
Helgadóttir, formaður Félags ís-
lenskra náttúrufræðinga. Félagið á
fund með Reykjavíkurborg í janúar
en enginn fundur hefur verið settur
niður með samninganefnd sveitarfé-
laga.
Lokað verður hjá ríkissáttasemj-
ara frá næsta föstudegi og fram yfir
áramót. ragnhildur@mbl.is
Grípa til plans B ef ekkert
breytist í viðræðunum
Þolinmæði BSRB á þrotum Ríkið tilbúið að semja strax
Fjármála- og efnahagsráðherra
hefur tilnefnt Gunnar Jakobsson
lögfræðing í embætti varaseðla-
bankastjóra fjármálastöðugleika.
Forsætisráðherra skipar í emb-
ættið skv. nýjum lögum um Seðla-
bankann sem taka gildi um áramót.
Gunnar er með MBA próf frá Yale
og hefur undanfarin ár gegnt
stjórnunarstöðum hjá Goldman
Sachs, fyrst í New
York og nú síðast
sem framkvæmda-
stjóri lausafjársviðs
og persónuverndar
Goldman Sachs Int-
ernational í London.
Frá þessu var greint
í gær í tilkynningu
fjármála- og efnahagráðuneytisins.
Tilnefndur sem varaseðlabankastjóri
Gunnar
Jakobsson