Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 67
MINNINGAR 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019 ✝ Einar ValurGuðmundsson fæddist á Ísafirði 24. ágúst 1958. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu á Ísafirði hinn 10. sept- ember 2019. Foreldrar hans voru Guðbjörg Bergþóra Árna- dóttir, ætíð kölluð Didda, húsfreyja á Ísafirði, f. 17. apríl 1928, d. 3. nóvember 2018, og Guðmundur Jósep Sigurðsson járnsmíðameist- ari, f. 21. maí 1924 í Hnífs- dal, d. 7. ágúst 1992. Systkini Einars eru Guðmundur Sig- urður, f. 1949, Pétur, f. 1950, 1989. 3) Hildur Ása, f. 6. júní 1994. Eftirlifandi sambýliskona Einars Vals er Linda Kristín Ernudóttir, f. 26. september 1961. Börn Lindu eru: 1) Sölvi Már Margeirsson, f. 9. janúar 1980, maki hans er María Sveinbjörnsdóttir, þau eiga tvö börn. 2) Steinunn Erna Mar- geirsdóttir, f. 18. október 1983. 3) Gyða Dröfn Grétarsdóttir, f. 2. janúar 1988, hún á eitt barn. 4) Ísfold Rán Grétarsdóttir, f. 24. mars 1994, maki hennar er Valur Örn Vífilsson og eiga þau eitt barn. Einar Valur ólst upp á Ísa- firði. Hann bjó flest ár ævi sinnar á Ísafirði en einnig í Reykjavík, Búlgaríu og Akra- nesi áður en hann fluttist aftur heim til Ísafjarðar. Hann stundaði sjómennsku nær alla tíð eða störf tengd henni. Útför Einars Vals fór fram frá Ísafjarðarkirkju 21. sept- ember 2019. Árni, f. 1954, d. 2007, Jónína Sesselja, f. 1955, Ólafur Már, f. 1957, og Berg- þóra f. 1961, d. 2014. Einar giftist hinn 9. júlí 1993 Guðríði Áskels- dóttur, f. 25. júní 1960, þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Valdís María, f. 16. febrúar 1986, sambýlismaður hennar er Ívar Pétursson, f. 1986. Börn þeirra eru: Viktor Ingi, f. 2015, og Adam Orri, f. 2018. 2) Arnar Ingi, f. 11. júní 1990, sambýliskona hans er Monika Natalia Skawinska, f. Elsku pabbi, samband okkar var skrítið. Það var í langan tíma ekkert og oft eins og það stæði í stað, tíminn hjá þér stóð oft í stað og þannig týnist tím- inn. Við áttum mjög gott sam- band þegar ég var barn og þú varst alltaf góður við okkur fjölskylduna. Þú fórst á túra bæði á sjó og á landi. Sem barn áttar maður sig ekkert á því hvað er að gerast, þú varst bara í heimsókn hjá Árna frænda og félögum í Grimmakoti eða í Hernum og við Arnar bróðir kíktum á ykkur. Við fengum pening, fórum út í sjoppu og keyptum ógeðslega mikið af nammi. Við vorum þvílíkt sátt og þegar ég rifja þetta upp þá er það með bros á vör við skemmtilega minningu en ekki þá staðreynd að þarna var skrautlegur vinahópur, enn að síðan kvöldið áður og nennti ekkert að hafa okkur hangandi yfir sér. Þegar þið mamma skilduð var það ekkert mál því ég hugs- aði að það væri fyrir bestu, þú bjóst enn á Ísafirði og við kynntumst Lindu. Ég var orðin fullorðinn unglingur og kom og fór í heimsókn til þín eins og mér sýndist, fór í tölvuna og bjó til skrifaða geisladiska. Þú gerðir líka nokkra diska fyrir mig, t.d. Cat Stevens, og ég kynntist fullt af tónlist í gegn- um þig og mun alltaf minnast þín þegar ég hlusta á Rolling Stones. Eftir að þú fluttir frá Ísafirði slitnaði sambandið algjörlega. Við náðum aftur sambandi þeg- ar frumburður minn kom í heiminn 2015 og ég lét þig vita að þú værir orðinn afi. Þú varst alltaf mjög hnyttinn í svörum og ég fékk einmitt sent til baka að nú hefði Manchester United, sem var þitt lið, fengið nýjan stuðningsmann. Þú varst afar stoltur af okkur börnunum þín- um og barnabörnum og fylgdist með úr fjarlægð. Eins og þegar það voru breytingar i vinnunni minni og uppsagnir þá sendir þú á mig hvort allt væri í góðu hjá mér. Við sendum hvort öðru afmæliskveðjur sem mér þótti afar vænt um því oft fylgdu með minningar eða kær orð líkt og ein endaði á: „Bara að vita að þú ert til gefur manni eilíft líf, kær kveðja pabbi.“ Í jarðarförinni og eftir hana hef ég verið í sambandi við vini þína og það skín í gegn að þú varst góður vinur. Það stóð ekki á svari ef þá vantaði hjálp eða greiða, þá varst þú mættur. Ég vildi óska þess að samband þitt við okkur systkinin hefði verið betra, þú hefðir komist yfir skömmina, því eins og raunin var þá fór tíminn frá okkur. Þannig týnist tíminn þó hann birtist við og við. Þetta var einmitt fyrsta lagið í útför þinni, lag til okkar, barnanna þinna. Það er stundum haft á orði að það sé aldrei of seint en það getur samt oft verið of seint en ég hef lært að lifa með æðruleysi að vopni og vera sátt við það sem ég fæ ekki breytt. Þetta erfiða ár hefur heldur betur undirstrikað það því það er mikið af góðu fólki í kringum mig sem kvaddi á þessu ári og ég hugsa oft til orða góðs vinar sem kvaddi í vor: 100% áfram! Meira: mbl.is/andlat Þín dóttir, Valdís María. Ég kvaddi vin minn og skóla- bróður Einar Val Guðmundsson í síðasta sinn hinn 21. sept- ember síðastliðinn, þegar hann var jarðsettur frá Ísafjarðar- kirkju. Einar Valur, ég og Jón Stein- ar frændi minn áttum ógleym- anlegar stundir saman á æsku- árum okkar á Ísafirði. Við strákarnir áttum það sameig- inlegt að vera uppátækjasamir ungir menn og má leiða að því líkur að það hafi verið ástæðan fyrir góðri vináttu. Á umbrota- tíma æskunnar voru prakkara- strik, sundlaugasullið, fjaran, gömlu vöruhúsin og veiðarfæra- geymslur okkar líf. Öllu sem var mögulega hægt að koma í verð, netakúlum, blýteinum og gosflöskum, var safnað saman hvar og hvernig sem í slíkt náð- ist til að afla okkur fjármuna til að eyða í sælgæti og annan munað. Ég gæti sagt hér bæði langar og stuttar sögur af okkur strák- unum sem aldrei gátu verið ró- legir eða gert eitthvað sem hugnaðist þeim fullorðnu. Það væri lítið mál í góðu stuði að fylla margar síður af sögum af bernsku okkar Ísafjarðarpúka. Þegar ég hugsa til Einar Vals sé ég fyrir mér litla strák- inn sem var vinur minn í æsku. Nú er hann horfinn á braut og svífur meðal stjarnanna, það er eins og hluti af æskunni hafa verið tekinn burtu frá mér sem ég á erfitt með að útskýra. Ég minnist stundanna þegar við sátum saman á róló með sítt að aftan á bjartri sumarnóttu við sjúkrahústúnið heima. Ís- húsfélagið, kirkjugarðurinn, spegilsléttur pollurinn og flestir Ísfirðingar í fasta svefni. Spjall- að um lífið og tilveruna og vonir um betri tíma, gull og græna skóga. Ég minnist litlu strákanna; einmana sálir, vinir sem vissu ekkert hvert lífið var að leiða þá. Allir með hæfileika sem þeir kunnu lítið að fara með. Góðir strákar, misskildir, en uppá- tækjasamir prakkarar. Flestir bæjarbúar töldu þessa stráka ekki til mikilla afreka ef til framtíðar var litið. Við vorum hluti af villingunum í bænum. Ég og Einar vorum ráðnir á millilandaskip sem messaguttar 15 ára gamlir. Við vorum sam- an, tveir litlir strákar, börn á fjarlægum slóðum að vinna og gera það sem hæfði betur eldri strákum eða mönnum. Það þótti ekki mikið mál á þessum tíma að ráða börn til starfa til lengri eða skemmri tíma, fjarri fjöl- skyldu og vinum. Við studdum hvor annan vinirnir í daglegu amstri og ævintýrum sem við komum okkur í. Þrátt fyrir að samband okkar Einars seinni hluta ævinnar hafi breyst og ekki margar samverustundir verið undanfar- in ár, þá hverfa ekki minningar um góðan dreng sem hafði hæfileika og dugnað til að koma sér vel áfram á lífsins braut. Lífið fór ekki mjúkum hönd- um um Einar Val og hefur hann oftar en ekki þurft að taka á honum stóra sínum bæði til sjós og lands. Með þessum fáu orð- um langaði mig að kveðja gamla góða vin minn sem mun fylgja mér í minningunni um ókomna tíð. Konu hans, börnum og að- standendum votta ég mína dýpstu samúð. Meira: mbl.is/andlat Bárður Jón Grímsson. Einar Valur Guðmundsson ✝ Sólveig Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 23. sept- ember 1958. Hún lést 12. desember 2019. Foreldrar hennar eru hjónin Jón Hall- dór Jónsson, f. 5.6. 1929, og Soffía Karlsdóttir, f. 26.8. 1928. Sólveig var miðjubarn þeirra hjóna og eru systkini hennar: Björg Karítas Bergmann, f. 10.1. 1951, Birg- itta Klasen, f. 28.3. 1952, Kristín Guðmunda Bergmann, 25.2. 1955, Jón Halldór, f. 18.6. 1956, Helga Sif, f. 21.6. 1957, d. 3.4. 2009, Karen Heba, f. 12.12. 1960, Dagný Þórunn, f. 1.1. 1964, Halldóra Vala, f. 21.3. 1968, og Ragnheiður Elfa, f. Aníta, f. 26.9. 2001, og Alexand- er Óðinn, f. 21.1. 2011. 4) Soffía Ósk, f. 11.10. 1992, gift Gunnari Inga Þorsteinssyni, f. 21.4. 1991, börn þeirra Hafþór Kristinn, f. 11.11. 2013, og Freyja Dís, f. 24.2. 2014. Sólveig lauk skyldunámi og var svo einn vetur í Héraðsskól- anum á Laugarvatni auk þess sem hún fór til Englands í enskuskóla. Sólveig hóf svo störf hjá Sparisjóðnum í Kefla- vík þar sem hún vann í yfir 20 ár. Árið 2004 lá leið Sólveigar í Háskólann á Bifröst og þaðan útskrifaðist hún með BS í við- skiptafræði. Eftir útskrift sá hún um bókhald fyrir hin ýmsu fyrirtæki á Suðurnesjum. Sólveig var virkur þátttak- andi í Kvenfélagi Keflavíkur þar sem hún sinnti meðal annars stjórnarstörfum fram á síðasta dag. Sólveig verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju í dag, 19. des- ember 2019, klukkan 13. 10.8. 1969. Eiginmaður Sól- veigar var Krist- inn Sigurður Gunnarsson, f. 12.1. 1955, d. 14.3. 2018. Börn þeirra hjóna eru: 1) Ingi- björg Jóna, f. 18.10. 1978, í sam- búð með Þórarni Ægi Guðmunds- syni, f. 6.4. 1974, börn þeirra Aþena Elfur, f. 19.2. 1998, Sóldís Embla, f. 28.7. 2006, Áróra Elna, f. 23.2. 2009, og Bergþór Esra, f. 23.10. 2014. 2) Jón Gunnar, f. 5.12. 1979, börn hans Kristinn Arnar, f. 5.6. 2007, Viktor Ingi, f. 15.12. 2010. 3) Kristín Ásta, f. 5.8. 1984, gift Colby Fitzgerald, f. 6.1. 1980, börn þeirra Sigurrós Elsku systir mín hefur nú kvatt þessa jarðvist allt of snemma. Átta ára gömul kom hún með Akraborginni á Skag- ann að heimsækja ömmu, afa og stóru systur. Bjössi afi leiddi hana upp Mánabrautina og inn til Kristínar ömmu. Amma horfði með aðdáun á þessa litlu stúlku sem sat þarna við stofuborðið og talaði og malaði um allt milli him- ins og jarðar og stóra systir rauk til og tók mynd af henni til að fanga augnablikið. Þarna sat hún prúð og falleg í hvítu peysunni sinni með blómabekknum og horfði einarðlega í linsuna. Brúnu augun hennar voru full af visku og ró enda gömul sál. Hún var ung þegar hún hitti ástina sína hann Kidda. Hún svona fíngerð og lágvaxin, hann hár og myndar- legur. Sóknarpresturinn, Björn Jónsson, gaf þau saman í hjóna- band á heimili foreldra okkar á Faxabrautinni. Saman gengu þau út í lífið sæl og glöð og hamingju- söm. Svo fæddust börnin eitt af öðru, öll vel gerð og mannvænleg. Þegar hún seinna fór að segja fréttir af sínu fólki þá var við- kvæðið: hann Kiddi minn, hún Inga mín, hann Joggi minn, hún Kristín mín og svo yngsta barnið hún Soffía mín. Fjölskyldan var henni alltaf efst í huga. Svo bætt- ust barnabörnin í hópinn og öll fengu þau að njóta þess að vera undir verndarvæng Sólveigar ömmu sinnar. Hún var stolt og ánægð að sjá þau öll dafna og þroskast. Elsku systir. Ég er þér óend- anlega þakklát fyrir að hafa borið sólskin í mitt líf og mitt hús. Nú get ég yljað mér við ylinn af sól- inni þinni sem þú varst í þessu lífi og nú leiðist þið Kiddi aftur sam- an á nýjum stað í átt að nýrri sól. Vertu Guði falin elsku systir. Björg Karítas Bergmann Jónsdóttir. Sólveig Jónsdóttir Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, DÝRUNN RAGNHEIÐUR STEINDÓRSDÓTTIR, Día, lést í Reykjavík 9. desember. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 27. desember klukkan 13. Sverrir Haukur Halldórsson Anna Rut Sverrisdóttir Birgir Þórarinsson Eydís Dóra Sverrisdóttir og barnabörn Ástkær systir, mákona, frænka og trúsystir, RÓSA AÐALSTEINSDÓTTIR frá Ási, Vopnafirði, lést á líknardeild Landspítalans 16. desember. Minningarathöfn verður í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, Reykjavík, fimmtudaginn 19. desember klukkan 12.30. Útförin fer fram frá Vopnafjarðarkirkju 30. desember klukkan 14. Ásmundur Aðalsteinsson Páll Aðalsteinsson Astrid Örn-Aðalsteinsson Katrín Stefanía Enok Örn Lýdía Linnéa Juho Otto Aleksander Aron Páll Okkar ástkæri, JAKOB PÁLMI HÓLM HERMANNSSON frá Neskaupstað, lést á Grund föstudaginn 29. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. desember klukkan 11. Ásta Garðarsdóttir Jóhanna Jakobsdóttir Dennis Magditch Björg Jakobsdóttir Ómar Eyfjörð Friðriksson Hjörleifur Jakobsson Hjördís Ásberg Herdís Jakobsdóttir Hjördís Þóra Hólm Þór Wium barnabörn og barnabarnabörn Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Magnús Sævar Magnússon, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLGRÍMUR PÉTURSSON vélfræðingur, Miðvangi 17, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu á Hrafnistu í Hafnarfirði 4. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði sem sinnti honum af einstakri hlýju og alúð. Steingrímur Hallgrímsson Virginija Galinyté Guðrún Hallgrímsdóttir Pjetur Hallgrímsson og barnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.