Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019 SÓL ÉG SÁ eftir Ólöfu Nordal Allur ágóði af sölu rennur til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA Kúlan sem gleður alla 2019 Söluaðilar Kærleikskúlunnar 2019 eru: Casa Kringlunni, Skeifunni og Akureyri · Epal Kringlunni, Skeifunni, Laugavegi og Hörpu · Hafnarborg Hafnarfirði · Húsgagnahöllin Reykjavík og Akureyri · Kokka Laugavegi · Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsinu og Kjarvalsstöðum · Hönnunarsafn Íslands Garðabæ · Listasafn Íslands Reykjavík · Líf og list Smáralind · Þjóðminjasafnið Suðurgötu og Hverfisgötu · Snúran Ármúla · Blómaval um allt land · Bústoð Reykjanesbæ · Blóma- og gjafabúðin Sauðárkróki · Norska húsið Stykkishólmi · Póley Vestmannaeyjum Eitthvað var um að hross sem leit- uðu vars fennti í kaf. Það gerðist jafnvel á stöðum sem menn hafa stól- að á sem skjól fyrir hestana. Sigríður Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hrossum sem vitað er að drápust í ofsaveðrinu í síðustu viku hafði ekki fjölgað í gær, að sögn Sigríðar Björnsdóttur, dýralæknis hrossasjúkdóma. Áætlað hafði verði að 60-80 hross hefðu drep- ist. Víða var sakn- að hrossa og hafði eitthvað af þeim komið í ljós. Bændur og hestaeigendur hafa leitað að hrossunum og eins björgunarsveitir. Svo virðist sem hross í Húnavatns- sýslum hafi farið verst út úr ofsa- veðrinu. Sigríður sagði að hringt hafi verið á bæi til að afla gagna og verð- ur beðið með að gefa út tölur þar til niðurstöður liggja fyrir. Þrennt sem spilaði saman „Það var margt sérstakt við þetta veður sem kom hrossum illa. Eink- um hvað hríðin var blaut og stóð lengi. Það var meiri bloti í þessu en oft er. Veðurhæðin var líka ofboðs- leg, styrkurinn jafnaðist á við fellibyl á köflum. Þetta fór allt saman og yfir strikið á ákveðnum svæðum í Húna- vatnssýslunum. Okkar harðgerasta dýr varð undan að láta. Því eigum við ekki að venjast. Ég man ekki eftir svona felli undanfarna áratugi,“ sagði Sigríður. Hún sagði að 1995 hafi fallið hross á fáum bæjum í Húnavatnssýslum en nú fóru fá hross á tiltölulega mörgum bæjum. sagði alltaf hættu á að það gerist því snjórinn safnist saman þar sem er skjól. Blaut hríðin festist í feldi hrossanna nú og fraus. Við þetta urðu hrossin mjög þung og gat þung- inn sligað þau. Hross hröktust einnig undan veðurofsanum og lentu sum í skurðum eða girðingum, hættum sem þau vara sig venjulega á. Eðlilegt að hross gangi úti Hestar hafa verið látnir ganga úti hér á landi allt frá landnámi, að sögn Sigríðar. „Það er afar, afar sjaldgæft að það gangi ekki upp. Hrossin eru mjög vel aðlöguð útigangi og úti- gangur hefur mjög margar jákvæðar hliðar. Allur fjöldinn af hrossum fór í gegnum þetta óveður.“ Hún sagði að hrossahald hér byggist á útigangi, því almennt sé ekki til húsakostur fyrir alla hestana. Sigríður hefur skrifað tvo pistla, sem þessu tengj- ast, fyrir hestamenn á mast.is, Vel- ferð hrossa á útigangi og Flokkun eftir fóðurþörf. Í fyrri pistlinum skrifar hún: „Því er æskilegt að hross sem ekki eru notuð til reiðar séu haldin á útigangi og á það ekki síður við um folöld en önnur hross.“ Hún sagði mikilvægt að fóðra hross vel í aðdraganda óveðurs. Þau éti ekki mikið á meðan óveður geisar. Um leið og dúrar fara þau að kroppa ef er beit. Hey fýkur þegar hvessir þótt rúlluhey standist betur vind. Sigríður sagði að hross þurfi að vera búin undir það að standa matarlaus í 2-3 sólarhringa og þau eigi alveg að geta það. Þau búi sig undir veturinn með því að fitna og safna þykkum feldi. Hross geta sofið standandi og það hjálpar þeim að þurfa ekki að leggjast í stórhríð. Ljósmynd/Landsbjörg Grafið úr fönn Nokkuð var um að hesta fennti. Björgunarsveitir SL lögðu sig fram um að leita að og grafa upp hross. Víða er fjölda hrossa enn saknað  Blaut hríð og langvinn ásamt ofboðslegri veðurhæð olli hrossafelli  Fá hross féllu á mörgum bæjum  Bændur, hestafólk og björgunarsveitir leituðu hrossa og björguðu  Húnavatnssýslur urðu verst úti Sigríður Björnsdóttir „Það drápust hjá mér fjögur hross, þrjú veturgömul og fullorðin meri,“ sagði Jón Kristófer Sigmarsson, bóndi á Hæli nálægt Blönduósi. Um 130 hross eru í stóði við bæinn. Engir hestar týndust úr stóðinu. Hópurinn sem hestarnir drápust úr var á næstu jörð við Hæli og á mjög hættulausu svæði, að sögn Jóns. Hann hafði meiri áhyggjur af hrossum sem voru heima og vitjaði oft um þau í óveðrinu. Þau voru í skjóli og kvaðst Jón hafa haft áhyggjur af að þau fennti. En það slapp. „Ég hugsa að það hafi verið veðr- ið og klamminn sem drap hrossin. Svo fennti yfir þau en það var ekki mikill skafl yfir þeim,“ sagði Jón. „Það voru ekki hross sem voru úti á Guði og gaddinum sem drápust. Þetta voru hross sem voru heima í hólfum, í skjóli og fengu hey. Þau létu bara undan veðrinu. Hross drápust alls staðar, eitt, tvö, þrjú eða fjögur á bæ. Það er ekki eins og það hafi fallið 50 hross á einum bæ þar sem illa var hugsað um þau. Það var útilokað að koma í veg fyrir þetta.“ Jón ólst upp á Blönduósi og keypti Hæli árið 2002. Hann hefur fengist við sveitastörf alla sína ævi. „Ég hef aldrei áður lent í neinu við- líka veðri og nú. Aldrei! Bleytan smaug um allt. Það var mjög erfitt að höndla þetta. Hrossin voru mjög klömmuð eftir þetta.“ Hrossin voru farin að hressast í gær og allt að snúast til betri vegar. Jón sagði að það sé eðlilegt með hross sem hafa nóg að éta. Hann rifjaði upp 1997. Þá gerði mjög mikla hríð en það kom ekki við hrossin þótt allt væri á kafi í snjó. Þá snjóaði í frosti. Nú byrjaði veðr- ið með slyddubleytu sem smaug inn að skinni. „Svo kom frostið og alveg gríðarleg vindkæling í 35-40 m/s stöðugum vindi sem hamraði á hrossunum ofan í bleytuna,“ sagði Jón. Hann fór til gegninga í útihúsi um 50 m frá íbúðarhúsinu og var með þrjá hunda. Leiðin til baka var á móti veðrinu. „Þegar ég kom inn vantaði einn hundinn. Elstu tíkina hafði hrakið undan veðurofsanum og ég þurfti að sækja hana og halda á henni inn. Það sýnir hversu of- boðslegt veðrið var,“ sagði Jón. Óveðrið var ofboðslegt  Bóndi við Blönduós missti fjögur hross  Hrossin blotn- uðu inn að skinni og svo kom frost og gríðarleg vindkæling Jón Kristófer Sigmarsson Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þing- maður Pírata, hefur ekki áhyggjur af stöðu sinni vegna bréfs Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæð- isflokksins. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær sendi Ásmundur forseta Evr- ópuráðsþingsins bréf þar sem hann vakti athygli á því að Þórhildur Sunna hefði gerst brotleg við siðareglur al- þingismanna, fyrst þingmanna. Þórhildur Sunna er varaformaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins og formaður laga- og mannréttinda- nefndar þess. Þórhildur Sunna braut siðareglur alþingismanna með því að segja að uppi væri „rökstuddur grunur“ um að Ásmundur hefði „dregið sér fé, al- mannafé,“ í gegnum aksturs- greiðslur. „Það er málfrelsi í Evrópuráðinu sem er einmitt heimili Mannréttinda- dómstóls Evrópu og það er alveg aug- ljóst að þessi úrskurður gegn mér skerðir mitt málfrelsi,“ segir Þórhild- ur Sunna. Björn Leví harðorður Björn Leví Gunnarsson, þingmað- ur Pírata, er heldur harðorðari í garð Ásmundar en Þórhildur Sunna. „Þetta bréf hans er algjör viðbjóð- ur, ofan í allt það sem á undan hefur gengið þá dirfist hann til þess að leit- ast eftir refsingu á vegum Evrópu- ráðsþingsins gagnvart Sunnu. Þvílíka og aðra eins mannleysu [...] hef ég aldrei á ævi minni hitt,“ skrifar Björn Leví í færslu á Facebook. Segir Ásmund mannleysu  Þórhildur Sunna hefur engar áhyggjur af bréfi Ásmundar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Björn Leví Gunnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.