Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019 Jólin eru handan við hornið.Desember einkennist hjámörgum af skemmtilegri til-breytingu í mat og drykk, samkomum á vinnustöðum og í fjöl- skyldum. Svo koma jólin og þá er allt það besta dregið fram í mat og drykk og samkomur sem aldrei fyrr. En það má ofgera öllu og meiningin er jú að okkur verði gott af þessu öllu saman ekki satt? Enginn vill enda á bráðamóttökunni mitt í öllum hátíðahöldunum. En því miður hefur borið á því að sú verði raunin af ýms- um ástæðum. Jólamaturinn Maturinn sem er á borðum er oft þyngri en við erum vön. Meira af söltum og reyktum mat sem getur valdið þeim sem þjást af hjarta- og lungnasjúkdómum vanlíðan, með þeim afleiðingum að leita þarf að- stoðar heilbrigðisstarfsfólks. Þótt hefðir séu ágætar þá er víst að jólin verða miklu ánægjulegri með mat sem allir þola og líður vel af. Hátíðarmatur getur vel verið holl- ur og góður og alger óþarfi að fólk sitji uppi með stein í maganum eftir hátíðirnar. Hver og einn getur líka notað þá aðferð að borða hægt og njóta matarins frekar en að sporð- renna sem mestu. Það er í góðu lagi að smakka á reyktum og söltum mat, en ekki gott að borða lítið ann- að. Eldra fólk er gjarnan í mat hjá vinum og vandamönnum yfir hátíð- arnar. Þeir sem bjóða heim ættu að huga að því að bjóða upp á mat sem öllum verður gott af. Það væri líka gott að þeir sem bjóða eldra fólki í mat yfir jólin hefðu samráð um mat- seðilinn svo gestirnir lendi ekki í því að borða hangikjöt eða hamborgar- hrygg þrjá daga í röð. Jólin eru erfiður tími í mörgum fjölskyldum. Þá söknum við sárast þeirra sem við höfum misst. Gott getur verið að taka frá stund til þess að minnast þeirra sem farnir eru og gefa sér tækifæri til að syrgja en líka gleðjast yfir góðum minningum Skipulag jólahátíðarinnar getur verið flókið í fósturfjölskyldum. Munum að tækifæri til góðra stunda með börnum og barnabörnum eru mörg. Ekki er nauðsynlegt að þær stundir séu allar um jól. Það er gott að hlusta á hvað börnin hafa að segja og skipuleggja hátíðina þannig að þau upplifi að þeir fullorðnu standi saman um að gera hana sem ánægjulegasta fyrir börnin. Jólasamveran Jólin í ár gefa vinnandi fólki marga frídaga sem tilvalið er að nýta til samveru með þeim sem okkur þykir vænt um. Sú samvera þarf ekki endilega að byggjast á því að borða yfir sig í sparifötunum. Við getum líka klætt okkur vel og notið útiveru saman. Lagt símana til hlið- ar og bara notið þess að leika okkur með börnunum. Það er líka upplagt að taka góðan göngutúr í nágrenn- inu, heimsækja sundlaugarnar, fara á skauta, skíði eða gefa sleðabrekk- unni gaum allt eftir aðstæðum og áhugasviði hvers og eins. Flestir óska þess að geta átt gleði- leg jól og góða daga í kringum hátíð- arnar. Það að hafa jólin áfengislaus eykur líkurnar á því að svo geti orðið hjá flestum. Í það minnsta ætti að stilla áfengisneyslu mjög í hóf um hátíðarnar. Njótum hátíðanna alls- gáð. Örugg um jólin Yfir háveturinn má búast við alls- konar veðri og færð og til að minnka líkur á óhöppum og slysum er æski- legt að gefa sér góðan tíma og fara frekar hægar yfir. Víða leynist hálka á gangstéttum og vegum og hálku- slys er nokkuð sem enginn vill í jóla- gjöf. Þeir sem ætla að ferðast lands- horna á milli þurfa að fylgjast vel með verðurspám. Ein af þeim jólahefðum sem margir hafa er að kveikja á kertum. Best er að kertin séu í kertastjökum sem ekki er íkveikjuhætta af og það er góð regla að láta kerti ekki loga í mannlausum herbergjum. Heilsugæsla höfuðborgarsvæð- isins óskar landsmönnum gleði og friðar á hátíð ljóssins og minnum á að vaktsíminn 1700 er opinn allan sólarhringinn. Heilsugæslustöðvar eru opnar á virkum dögum. Lækna- vaktin er opin yfir hátíðarnar og bráðaþjónustur um allt land. Sjá nánar um afgreiðslutíma á þjón- ustuvefsjá á heilsuvera.is Gleðileg jól alla leið Morgunblaðið/Eggert Ys Margt þarf að kaupa fyrir jólin en samt er mikilvægt að njóta, til dæmis margvíslegra menningarviðburða sem efnt til svo víða á aðventunni. Heilsuráð Margrét Héðinsdóttir, hjúkr- unarfræðingur og vefstjóri Heilsuveru á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins. Nú er lag að upplifa notalega jóla- stemningu í Sundlauginni á Ak- ureyri. Kertaljós á bakkanum, kaffi, kakó, piparkökur og tónlist í dag fimmtudag kl. 17-21. Gott að gera sér dagamun á aðventunni og njóta kósí stundar í lauginni og pott- unum. Fólk þarf að slaka á þegar jólaundirbúningur veldur streitu Kertakvöld í sundlaug Akureyrar Tvær ólíkar sýningar standa nú yfir á Borgarbókasafninu í Spönginni sem vert er að gefa gaum. Á sýningunni Ævintýraland gefur að líta afrakstur nokkurra námskeiða í ullarþæfingu, málun og teikningu sem haldin hafa verið hjá Hlutverkasetri á árinu. Falleg dýr og litrík húsakynni þeirra mynda ævintýraheim sem gleður augað, en hús dýranna eru gerð úr endurunnum umbúðum. Seinni sýningin, Leyndardómar Graf- arvogs, samanstendur af ljósmynd- um sem íbúar Grafarvogs sendu inn í ljósmyndasamkeppni sem bókasafn- ið stóð fyrir í haust, en þá var fólk hvatt til að senda inn myndir af skemmtilegum, skrýtnum, sérstök- um, en umfram allt, leyndardóms- fullum stað eða mannvirki í Grafar- voginum. Opið er alla daga á sýningarnar á afgreiðslutímum bókasafnsins. Tvær sýningar í bókasafninu í Spönginni í Reykjavík Leyndardómar og ævintýraland Ævintýraland Fígúrur úr þæfðri ull. Í Grófinni í Borgarbókasafninu í Reykjavík við Tryggvagötu er tekið sérlega vel á móti fjölskyldum með börn á öllum aldri. Þar er boðið upp á fjölskyldustundir þar sem lögð er áhersla á notalega samveru, spjall, leik og söng. Í dag fimmtudag er ein- mitt slík stund kl. 10.30 til 12. Í kríla- horninu er gott úrval af harðspjalda- bókum fyrir yngstu börnin og í fjöl- skyldustundunum eru dregin fram leikföng og hljóðfæri fyrir börnin. Klukkan 11 býður starfsmaður safns- ins upp á söngstund. Í bókasafninu er mikið til af forvitnilegum bókum sem foreldrar geta gripið með sér. Líka barnabækur við hæfi barna frá 0-99 ára. Alltaf heitt á könnunni. Notalegar fjölskyldustundir á Borgarbókasafninu Samvera, spjall, leikur og söngur Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gaman Börn á bókasafni una sér vel. Silfurmunir og skartgripir síðan 1924 ERNA Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is GULL- OG SILFURSMIÐJA Hönnuður Ragnhildur Sif Reynisdóttir Verð kr. 21.500 Hönnuður Ösp Ásgeirsdóttir Verð kr. 8.500 Jólaskeiðin & jólabjallan 2019 Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur JÓLASÖFNUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.