Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 71
MINNINGAR 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019 ✝ Gestur Frið-jónsson fædd- ist 27. júní 1928 á Hofsstöðum í Álftaneshreppi í Mýrasýslu. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 8. des- ember 2019. Gestur vann við bústörf til 18 ára aldurs en fór eftir það að vinna á vegum Búnaðarsambands Borgarfjarðar, Verkfæra- nefndar ríkisins, síðar Véla- sjóðs, og fleiri aðila til ársins 1958. Meirapróf bifreiðastjóra tók hann 1950 og hóf nám í bif- vélavirkjun á Akranesi 1954. Árið 1962 fékk hann meist- araréttindi í bifvélavirkjun og árið eftir tók hann þátt í bygg- ingu og síðan rekstri bifreiða- verkstæðisins Vísis hf. á Akra- nesi. Árið 1967 tók hann til starfa við stjórnun viðhaldsverkstæða Fosskrafts og síðar Lands- Börn Gests og Nönnu eru: 1) Jóhanna Ólöf, f. 22.9. 1953, d. 29.8. 2015. 2) Ingibjörg Jóna, f. 15.7. 1957. 3) Jóhann Sigurður, f. 15.5. 1962. Eina dóttur átti Gestur fyrir, Elínu Sigur- björgu, f. 29.7. 1953. Gestur og Nanna fluttu aft- ur á Akranes árið 2006. Gestur tók mikinn þátt í fé- lagsstarfi, m.a. ungmennafé- lagsstarfi, starfi björgunar- sveitarinnar Hjálparinnar á Akranesi, karlakórsins Svana og kirkjukórs Akraness. Einn- ig var hann í Skagfirsku söng- sveitinni um 14 ára skeið. Harmonikkuleik stundaði Gestur frá unga aldri og var um árabil formaður Félags harmonikkuunnenda á Suður- nesjum. Gestur var mjög góður hagyrðingur og samdi mikið af gamankveðskap, eftir hann liggur ógrynni af birtum og óbirtum kveðskap. Útför Gests fer fram frá Akraneskirkju í dag, 19. des- ember 2019, klukkan 13. virkjunar við byggingu Búrfells- virkjunar í Árnes- sýslu. Árið 1973 hóf hann rekstur eigin bifreiðaverk- stæðis á Akranesi, ásamt hlutastörf- um hjá Öryggiseft- irliti ríkisins. Hann hætti eig- in rekstri árið 1980 og fór að vinna hjá Vinnueftirliti ríkisins víða um land til að byrja með, en árið 1988 tók hann við starfi umdæmisstjóra Vinnu- eftirlits ríkisins á Suðurnesjum og á Keflavíkurflugvelli og sinnti því til starfsloka árið 1998. Gestur kvæntist 17. júní 1954 Nönnu Jóhannsdóttur frá Ólafsvöllum, f. 20.4. 1936, dótt- ur hjónanna Jóhanns Sigurðar Jóhannssonar, sjómanns og verkstjóra á Akranesi, og Ólaf- ar Guðrúnar Bjarnadóttur frá Ólafsvöllum á Akranesi. Jæja elsku langafi. Ég sit og hugga mig við allar þær minningar sem við áttum saman, ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja. Það finnast engin orð sem fá því lýst hvað söknuðurinn er mikill. Efst í huga mér er þakklæti, þakklæti fyrir að hafa fengið þetta mörg ár með þér. Það sem er dásamlegt að hafa feng- ið að kynnast þér og fengið að vera partur af lífi þínu í öll þessi ár er ómetanlegt fyrir mér. Nú ert þú sameinaður Hönnu Lóu dóttur þinni, þú hefur fengið veglegar móttökur þar. Þú varst gull af manni og erfitt er að finna orð sem lýsa góðmennsku þinni. Vildir allt fyrir alla gera, varst mjög handlaginn við nán- ast allt og varst ætíð uppi í stigum, að þrífa bílana í bíla- kjallaranum, varst góður í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Þú varst mikill harmonikku unnandi og varst svo flinkur á nikkuna, þetta hljóðfæri sem mér fannst vera heldur flókið að sjá, byrjaði ég svo að æfa þegar ég var ung. Það var þér að þakka að ég hafi byrjað að spila, ég leit mik- ið upp til þin, við tókum oft æf- ingar saman og spiluðum meira að segja fyrir vinstri græna fyrir þónokkrum árum síðan. Ég tek upp gamla takta og glamra á nikkuna þína einn daginn. Mínar sterkustu minningar úr barnæsku eru úr Keflavík- inni þar sem þú og langamma bjugguð, tilhlökkunin við að fara í heimsókn til ykkar og fá að leika með dótaskóinn og drekka djús og fá piparkökur var mikil. Eitt er mér samt ofarlega í huga þegar ég og mamma kom- um til ykkar ömmu og vorum að hjálpa ykkur að panta ferð til Tenerife. Þú varðst orðinn svo spennt- ur að þú settist upp á skrif- borðið og dinglaðir fótunum fram og til baka af spenningi, enda voru liðin þónokkur ár síðna þið fóruð til útlanda sam- an, sem þið gerðuð reglulega yfir veturna fyrir nokkrum ár- um. Ég minnist þess með miklu þakklæti að þið amma komuð með til Tenerife síðasta sumar þar sem við áttum yndislegar stundir saman við fjölskyldan. Það var rosalegt stuð á okkur þar, þið amma rúntandi um allt á skutlunni að skoða ykkur um. Svona gæðastundir í tvær vikur saman er dásamlegt og mun ég ætíð muna eftir þessari ferð. Það sem ég er glöð að þú komst í útskriftina mína og fagnaðir með mér þessum merkisáfanga sem ég náði. Þú hélst heila ræðu um hversu stoltur þú varst af mér fyrir að hafa náð þessum áfanga og tal- aðir um hversu dugleg ég var. Takk fyrir allt afi minn, ég mun varðveita allar þær minn- ingar sem við áttum saman. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahil Gibran) Katrín Lind Lúðvíksdóttir. Kynni okkar Gests hófust upp úr 1970 þegar hann sá um vélaverkstæði við Búrfellsvirkj- un sem þá var nýlega komin í gang. Ég vann þar í nokkra mánuði ungur maður undir hans stjórn. Þegar þessu verkefni lauk við Búrfellsvirkjun flutti Gestur með fjölskyldu sinni upp á Akranes og opnaði þar bíla- og vélaverkstæði undir eigin nafni. Gestur bauð mér að koma til sín á námssamning í bifvéla- virkjun og það gekk eftir. Á Akranesi hófum við Vaka síðan okkar búskap 1973. Það var gott að vinna hjá Gesti, hann var góður fagmað- ur og kunni vel að reka sitt fyrirtæki. Maður hafði talsvert frjáls- ræði, undir nokkrum aga þó. Verkefni voru fjölbreytt og þarna lærði maður ýmislegt og öðlaðist reynslu sem nýttist vel síðar. Þarna voru góðir strákar og oft skemtilegt, bæði innan og utan vinnutíma. Gestur var tónlistar- og gleðimaður á góðum stundum, söng og lék á harmonikku. Tón- listarlíf var með miklum blóma á Akranesi á þessum árum, Haukur Guðlaugsson stjórnaði bæði Kirkjukór Akraness og Karlakórnum Svönum með næmni og glæsibrag og ekki leið á löngu þar til maður var kominn á kaf í þetta starf. Einnig var Skagaleikflokkur- inn vel virkur á þessum árum og Vaka tók þar þátt. Í öllu þessu starfi öðluðumst við vin- áttu fólks sem haldið hefur ævi- langt. Og segja má að Gestur hafi verið upphafsmaðurinn að öllu þessu og þar með örlagavaldur í okkar lífi. Fyrir það verð ég honum ævinlega þakklátur. Nönnu og afkomendum send- um við Vaka góðar kveðjur. Ágúst Guðmundsson Gestur Friðjónsson Hugheilar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts og útfarar okkar ástkæra, ÁRNA ÁRNASONAR flugvirkja. Hjalti Stefán Árnason Júlía Björnsdóttir Þórir Róbert Árnason Aðalheiður Íris Hjaltadóttir Guðmundur Árnason Júlíana Árnadóttir Lára Hrönn Árnadóttir Sigríður Árnadóttir Clarke Kenneth Clarke Haraldur Árnason Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför okkar ástkæra eiginmans, föður, tengdaföður og afa, HJARTAR J. HJARTAR. Jakobína Sigtryggsdóttir Sigtryggur Klemenz Hjartar Ragnheiður Guðmundsdóttir Ragna Hjartar Simon Reher og barnabörn Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát HELGA INGVARS GUÐMUNDSSONAR vörubílstjóra, Gullsmára 9, Kópavogi. Kærar þakkir fær starfsfólk Ölduhrauns á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir umönnun og aðstoð. Nanna S. Þorleifsdóttir og fjölskylda Elsku besti Krist- inn Bjarnason, fv. tengapabbi minn og afi dóttur minnar, er látinn. Kiddi var ekki bara besti afi í heimi heldur var hann alveg ein- staklega góður maður með fallegt og stórt hjarta. Við Kiddi héldum alltaf góðu sambandi þrátt fyrir að ég og barnsfaðir minn slitum sam- vistum árið 2007. Alltaf þegar ég hringdi í Kidda þá byrjuðum við á því að tala um veðrið og svo gátum við talað um allt milli himins og jarðar og stundum gátum við talað í 1-2 klst. og tíminn leið hratt þegar maður spjallaði við Kidda og umræðuefn- in skorti ekki. Kiddi vildi alltaf fá að vita sem mest um stelpurnar og var afar stoltur af þeim í íþrótt- unum sínum og því sem þær tóku sér fyrir hendur og fylgdist alltaf vel með. Dætur mínar fóru oft og mörg- um sinnum á Blönduós yfir sum- artímann á heimili Kiddi og Sveinu og eiga þaðan margar góðar minn- ingar, en þrátt fyrir að Kiddi hafi ekki verið blóðskyldur eldri dóttur minni þá bauð hann hana ávallt velkomna líka á heimili þeirra hjóna og tók hana sem eigin barnabarni sem lýsir hans ein- stöku manngerð. Hann kenndi stelpunum mínum að veiða, hann fór með þær í fjallgöngur, bakaði með þeim, föndraði og málaði þar sem hann hafði unun af listaverk- um og handverki og einstaklega listrænn sjálfur var hann þar að auki og held ég það sé mikið til honum að þakka að börnin mín eru svo listræn í dag og hafa gaman að því að skapa með höndunum. Síðast en ekki síst vil ég nefna Kristinn Bjarnason ✝ KristinnBjarnason fæddist 9. október 1948. Hann lést 26. nóvember 2019. Útför Kristins fór fram 14. desem- ber 2019. tíðu ferðirnar þeirra á Hauganesið, æsku- slóðir Sveinu, eigin- konu Kidda, þar sem dvalið var löngum stundum og búnar til enn fleiri góðar minningar og há- punkturinn var að ávallt var komið við í jólahúsinu á Akur- eyri sem er einn uppáhaldsstaður dætra minna og eiga þær margar góðar minningar þaðan með Kidda og fjölskyldu. Hann fór svo í eftirminnilega ferð með krakkana árið 2017 þar sem flogið var yfir hálendið og okkar fallega íslenska náttúra skoðuð, þetta eru ómetanlegar minningar sem þær munu varð- veita um aldur og ævi og ég mun að eilífu vera þér þakklát, elsku Kiddi, fyrir að veita þeim þá ánægju og gleði í lífinu sem þú veittir þeim. Mér er einnig minnisstætt þeg- ar ég heimsótti ykkur Sveinu á Blönduós árið 2016 og var hjá ykk- ur í nokkra daga en alltaf bauðstu mig velkomna eins og hluta af fjöl- skyldunni og hafðir svo gaman af því að tala og gera góðan mat og við gátum setið löngum stundum og spjallað með kaffibollann við hönd. Það verður að segjast, Kiddi, að ekki verður hægt að fylla í skarðið þitt og veröldin er tómlegri án þín og við söknum þín mikið, en við getum sem betur fer huggað okk- ur við allar þær góðu minningar sem við áttum með þér og skoðað myndirnar sem þú varst svo dug- legur að taka. Guð blessi minningu þína, elsku Kiddi, og megi englar Guðs um- vefja þig og gefa þér friðinn að ei- lífu, ég mun halda minningu þinni á lofti við stelpurnar okkar um besta afa í heimi. Kærleikskveðja, Margrét Friðriksdóttir og dætur. ✝ Ólafía KristnýÓlafsdóttir fæddist á Land- spítalanum í Reykjavík hinn 17. nóvember 1956. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja 5. des- ember 2019. Lóa, eins og hún var ávallt kölluð, var dóttir hjónanna Sigríðar M. Rósink- arsdóttur, f. 14. nóvember 1937, og Ólafs B. Erlings- sonar, f. 1. ágúst 1934. Systk- ini Lóu eru Jakobína Ingunn, f. 16. janúar 1956, Gísli, f. 25. mars 1958, Rósa, f. 6. mars 1963, og Erla, fædd 31. októ- ber 1964. Lóa giftist Eðvarð T. Jóns- ir átti Benedikt þrjá syni, Kris ,f. 1975, Axel Rafn, f. 1979, og yngstur er Fannar Levý, f. 8. september 1986. Lóa var þriggja ára þegar hún flutti með fjölskyldu sinni frá Hafnarfirði til Sandgerðis og gekk þar í barnaskóla og lauk gagnfræðaskólagöngu á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Lóa gerðist Bahá́i þegar hún var fjórtán ára gömul. Hún sinnti hinum ýmsu störfum um ævina, m.a. fisk- vinnslu, ýmsum verslunar- störfum, rak veitingavagn í Færeyjum, afgreiddi í blóma- búð sem varð til þess að hún ákvað að fara til Danmerkur og læra blómaskreytingar. Lóa rak Blómabúðina Dalíu frá árinu 2010 og út árið 2017, eða þar til heilsan fór að gefa sig. Síðustu tvö árin bjó Lóa ásamt Benna í Keflavík til að vera nær fólkinu þeirra. Útför Lóu fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 19. desember 2019, klukkan 13. syni 12. febrúar 1977, þau skildu 1996. En fyrir átti Eðvarð soninn Knút sem lést árið 2000. Börn Lóu og Eðvarðs eru Eskil Daði, f. 25. maí 1977. Ólafur Böðv- ar, f. 2. janúar 1980. Dagur Nabil, f. 29. janúar 1981, d. 3. nóvember 1981. Jakob Regin, f. 23. febrúar 1983. Dagbjartur Ágúst, f. 13. jan- úar 1988. Linda Rós, f. 27. júlí 1989. Lóa á sjö barnabörn. Eftirlifandi eiginmaður Lóu er Benedikt Gabríel Sigurðs- son, f. 5. nóvember 1956. Þau giftust 9. nóvember 2002. Fyr- Elsku stóra systir, elsku elsku Lóa okkar. Það eru engin orð, það er mikill söknuður. Þú ert stóra systir mín. Lóa, ég hef alltaf tekið þér sem sjálf- sagðri. Þú komst of snemma í þennan heim, langt fyrir tím- ann, fyrirburi; fórst alveg niður í fjórar merkur eftir fæðingu þína. Þú snertir dauðann á þeim tíma og valdir að lifa. Þú byrjaðir lífið sem lítil hetja og þurftir ekki að sanna þig eftir það. Fallega Lóa, þegar þú varst unglingur var fólk að undrast við mig af hverju þú valdir ekki að verða módel. Þú hafðir innri og ytri fegurð, en hafðir ekki þörf fyrir að nota þér það. Þú fylgdir trú þinni, Bahá’í, þú fæddir sex börn. Þú lifðir fyrir aðra, fyrir blómin þín og annað fólk. Þú sást það góða í öllum og gafst svo mikið af þér. Þú fórst svo fallega og hetjulega í gegnum veikindi þín. Við töluðum sam- an og vorum báðar að læra mikið. Ég skil samt ekki hvern- ig hægt er að taka þig í burtu frá okkur. Skil ekki að þú þurftir að fara í gegnum svo miklar líkamlegar og tilfinn- ingalegar þjáningar. Þú fórst allt of snemma. Nú er það búið. Elsku Lóa, takk fyrir að vera ljósið í lífi okkar. Þú ert ein of okkur fimm systkinum. Þú ert í ljósinu, við finnum hvað þú gefur mikið ljós inn í orkuna okkar. Ég er ekki að kveðja; þótt ég viti að þú munt verða mikið með Benna þínum veit ég að þú kíkir öðru hverju á mig og okkur öll. Elska þig, fallega kæra Lóa. Erla systir. Ólafía Kristný Ólafsdóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.