Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 80
80 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019 Spánn Barcelona – Real Madrid......................... 0:0 Staðan: Barcelona 17 11 3 3 43:20 36 Real Madrid 17 10 6 1 33:12 36 Sevilla 17 9 4 4 21:17 31 Getafe 17 8 6 3 26:16 30 Atlético Madrid 17 7 8 2 18:10 29 Real Sociedad 17 8 4 5 28:20 28 Athletic Bilbao 17 7 6 4 19:12 27 Valencia 17 7 6 4 27:24 27 Granada 17 7 3 7 24:22 24 Osasuna 17 5 8 4 22:20 23 Levante 17 7 2 8 22:26 23 Real Betis 17 6 5 6 24:29 23 Villarreal 17 6 4 7 30:25 22 Alavés 17 5 4 8 18:24 19 Real Valladolid 17 4 7 6 14:20 19 Eibar 17 4 4 9 15:28 16 Mallorca 17 4 3 10 18:30 15 Celta Vigo 17 3 5 9 14:25 14 Leganés 17 2 4 11 12:28 10 Espanyol 17 2 4 11 12:32 10 England Leikjum í 8-liða úrslitum deildabikarsins var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Gylfi Þór Sigurðsson var ekki liði Everton, sem tók á móti Leicester, vegna veikinda. Sjá mbl.is/sport/enski. Heimsbikar félagsliða Liverpool – Monterrey............................ 2:1 Naby Keita 12., Roberto Firmino 90. – Rogelio Funes Mori 14.  Liverpool mætir Flamengo í úrslitaleik á laugardag en Monterrey leikur við Al-Hilal um bronsverðlaunin. Grikkland Olympiacos – Larissa .............................. 4:1  Ögmundur Kristinsson varði mark Lar- issa allan leikinn. KNATTSPYRNA KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Blue-höllin: Keflavík – ÍR.................... 18.30 MG-höllin: Stjarnan – Fjölnir ............. 19.15 Höllin Ak.: Þór Ak. – KR ..................... 19.15 Sauðárkr.: Tindastóll – Grindavík ...... 19.15 Njarðtaksgryfjan: Njarðvík – Þór Þ .. 20.15 1. deild karla: Smárinn: Breiðablik – Höttur ............. 19.15 Í KVÖLD! HANDBOLTI Noregur Elverum – St. Hallvard....................... 48:33  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 4 mörk fyrir Elverum. Drammen – Runar............................... 34:23  Óskar Ólafsson skoraði 3 mörk fyrir Drammen. Svíþjóð IFK Ystad – Sävehof ........................... 27:24  Ágúst Elí Björgvinsson varði 2 skot í marki Sävehof. Dominos-deild kvenna Valur – Haukar..................................... 69:74 Keflavík – Grindavík ............................ 72:67 Breiðablik – Skallagrímur ................... 54:74 KR – Snæfell......................................... 88:53 Staðan: Valur 13 11 2 1115:871 22 Keflavík 13 10 3 977:910 20 KR 13 10 3 1012:843 20 Skallagrímur 13 8 5 900:857 16 Haukar 13 8 5 930:903 16 Snæfell 13 3 10 874:1026 6 Breiðablik 13 2 11 825:1022 4 Grindavík 13 0 13 821:1022 0 Dominos-deild karla Leik Vals og Hauka var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Sjá mbl.is/ sport/korfubolti. Evrópudeildin Alba Berlín – Bayern München . (frl) 76:77  Martin Hermannsson skoraði 5 stig, tók 2 fráköst og gaf 6 stoðsendingar hjá Alba. Evrópubikarinn UNICS Kazan – Darussafaka ............ 71:68  Haukur Helgi Pálsson skoraði 2 stig, tók 3 fráköst og gaf 1 stoðsendingu fyrir UN- ICS Kazan. NBA-deildin Charlotte – Sacramento................... 110:102 Indiana – LA Lakers........................ 105:102 New York – Atlanta ......................... 143:120 New Orleans – Brooklyn.......... (frl) 101:108 Utah – Orlando ................................. 109:102 LA Clippers – Phoenix....................... 120:99  Efst í Austurdeild: Milwaukee 24/4, Philadelphia 20/8, Boston 17/7.  Efst í Vesturdeild: LA Lakers 24/4, LA Clippers 21/8, Dallas 18/8, Denver 17/8. KÖRFUBOLTI Þrefaldir meistarar Vals töpuðu í annað skipti í síðustu þremur leikjum í Dominos-deild kvenna í körfubolta í gær. Haukar komu í heimsókn á Hlíðarenda og unnu sterkan 74:69- sigur í 13. umferð. Valskonur voru með fullt hús stiga eftir tíu umferðir, en síðan þá hefur hallað undan fæti. Helena Sverrisdóttir er að glíma við meiðisli og án hennar er allt annað að sjá til Valsliðsins. Haukakonur eru sjálfar á mikilli siglingu og var sig- urinn sá fjórði í röð eftir fjögur töp í röð þar á undan. Haukarnir fara sátt- ir í jólafrí á meðan Valsarar vona að Helena mæti heil heilsu til leiks eftir frí. Grindavík stóð í Keflavík Keflavík þurfti að hafa meira fyrir 72:67-heimasigri sínum á grönnunum í Grindavík en flesta grunaði fyrir leik. Grindavík er á botninum, án stiga, en liðið seldi sig dýrt í gær. Að lokum voru gæði Keflavíkur hins vegar of mikil og skoraði Daniela Wallen 29 stig. Keflavík hefur unnið sjö leiki í röð og er Jón Halldór Eð- valdsson að gera virkilega góða hluti með ungt og spennandi lið. Keflavík er aðeins tveimur stigum á eftir Val. KR er sömuleiðis aðeins tveimur stigum á eftir Val, en KR-ingar unnu sannfærandi 88:53-sigur á Snæfelli. Gengi Snæfells hefur verið afleitt að undanförnu og er liðið aðeins með einn sigur í síðustu níu leikjum. Á sama tíma hafa KR-ingar unnið átta leiki og aðeins tapað einum og því fá- ir sem áttu von á öðru en að KR yrði öruggur sigurvegari. KR ætlar sér að berjast við Val um alla titla sem í boði eru á leiktíðinni. Ólöf og Guðrún að gera vel Skallagrímur náði í tvö stig eftir tvö töp í röð er liðið vann öruggan 74:54-útisigur á Breiðabliki. Skalla- grímur og Haukar virðast ætla að slást um fjórða sæti deildarinnar, en liðin eru með 16 stig, töluvert á und- an Snæfelli, en fjórum stigum á eftir KR og Keflavík. Guðrún Ósk Ámundadóttir er þjálfari Skalla- gríms og Ólöf Helga Pálsdóttir er þjálfari Hauka. Það eru afar góðar fréttir að konur séu ekki aðeins að fá tækifæri til að þjálfa í deildinni, held- ur nýta það eins vel og Ólöf og Guð- rún eru að gera. johanningi@mbl.is Aftur töpuðu meistararnir  KR og Keflavík nálgast Valskonur Morgunblaðið/Eggert Karfa Haukakonan Randi Brown skýtur að körfu Vals í gærkvöldi. Spánverjinn Mikel Arteta hefur samþykkt þriggja og hálfs árs samning við enska knattspyrnu- félagið Arsenal og verður hann næsti knattspyrnustjóri liðsins sam- kvæmt ESPN. Arteta lék með Arsenal frá 2011 til 2016, en hann hefur verið að- stoðarmaður Pep Guardiola hjá Manchester City allar götur síðan. Arteta tekur við af landa sínum Unai Emery, en hann var rekinn fyrr í mánuðinum. Freddie Ljungberg stýrir Arsen- al tímabundið. Sagður hafa samið við Arsenal AFP Áskorun Mikel Arteta fær stórt tækifæri í Lundúnum. Lovísa Thompson, landsliðskona í handknattleik, verður leikfær á ný með Val í janúar í Olís-deildinni. Lovísa gat lítið beitt sér í síðustu umferð fyrir jólafrí þegar Íslands- og bikarmeistararnir í Val heim- sóttu topplið Fram þar sem Fram hafði betur. Lovísa fór þá af leikvelli vegna meiðsla í fæti eftir innan við tíu mínútna leik og kom ekki meira við sögu. Lovísa er í stóru hlutverki í vörn og sókn hjá Val eins og hand- boltaunnendur þekkja. Hún hefur skorað 56 mörk í deildinni í vetur. Lovísa verður leikfær í janúar Morgunblaðið/Eggert Snjöll Lovísa Thompson er í lyk- ilhlutverki hjá Val í vörn og sókn. Liverpool leikur til úrslita um heims- bikar félagsliða í fótbolta í annað skipti í sögunni á laugardag. Liðið vann dramatískan 2:1-sigur á Monterrey frá Mexíkó í undan- úrslitum í gærkvöldi. Roberto Firmino skoraði sig- urmark Evrópumeistaranna í upp- bótartíma, eftir huggulega fyrirgjöf Trent Alexander-Arnold. Naby Keita kom Liverpool yfir snemma leiks eftir ótrúlega sendingu Mo Salah, en aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði Rogelio Funes Mori fyr- ir Monterrey. Tvíburabróðir hans, Ramiro Funes Mori, lék á sínum tíma með Everton um þriggja ára skeið og var markinu væntanlega vel fagn- að af Funes Mori-fjölskyldunni. Liverpool leikur við Suður- Ameríkumeistara Flamengo í úrslit- um, en Liverpool tapaði fyrir lönd- um þeirra í São Paulo í eina skiptið sem liðið hefur áður takið þátt í keppninni, árið 2005. Flamengo er á meðal þátttakenda í fyrsta skipti og verður því krýndur nýr heimsmeist- ari félagsliða. AFP Sigurmarkið kom á allra síðustu stundu Sigurmark Roberto Firmino skýtur Liverpool í úrslit heimsbikarsins í Katar. Flugeldarnir fóru aldrei á loft í Katalóníu í gærkvöldi þegar íþróttarisarnir Barcelona og Real Madrid mættust í spænsku úrvals- deildinni í knattspyrnu. Búist var við flugeldasýningu þegar liðin fengju (loksins) að takast á en leiknum lauk með markalausu jafn- tefli. Leiknum hafði áður verið frestað en sú ákvörðun var tekin þegar staðan í borginni var eldfim vegna mótmæla seint í október. Rígurinn á milli íþróttafélaganna er nógu mikill fyrir en þegar sjálf- stæðisbarátta Katalóna blossar upp um leið þá er sérstakur viðbúnaður viðhafður þegar liðin mætast. Þeg- ar blaðið fór í prentun höfðu ekki borist fréttir um annað en að allt hafi farið vel fram. Í síðari hálfleik þurfti að gera hlé á viðureigninni þegar gulum bolt- um var kastað inn á af áhorf- endapöllunum. Guli liturinn er litur Katalóníu ef svo má segja. Erkifjendurnir eru með jafn mörg stig á toppnum, 36 talsins, en Sevilla er fimm stigum á eftir. Flugeldarnir fóru aldrei á loft AFP Á Nývangi Króat- arnir Ivan Rakitic og Luka Modric í leiknum í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.