Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 44
44 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019 19. desember 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.17 122.75 122.46 Sterlingspund 161.23 162.01 161.62 Kanadadalur 92.7 93.24 92.97 Dönsk króna 18.226 18.332 18.279 Norsk króna 13.508 13.588 13.548 Sænsk króna 13.011 13.087 13.049 Svissn. franki 124.29 124.99 124.64 Japanskt jen 1.1143 1.1209 1.1176 SDR 168.65 169.65 169.15 Evra 136.22 136.98 136.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.3005 Hrávöruverð Gull 1478.4 ($/únsa) Ál 1762.5 ($/tonn) LME Hráolía 65.31 ($/fatið) Brent ● Í nóvember var heildarafli íslenskra fiskiskipa 69,5 þúsund tonn sem er 29% minni afli en í sama mánuði 2018. Má rekja samdráttinn til minni uppsjáv- arafla sem var tæp 26 þúsund tonn og er það 48% minni afli en í nóvember í fyrra. Aflaverðmæti í nóvember, metið á föstu verðlagi, var 19,8% minna en í nóvember 2018, að því er segir á vef Hagstofu Íslands. Síldaraflinn var rúmlega 18 þúsund tonn sem er 49% minna en í fyrra og var 47% samdráttur í kolmunna. Botnfiskafli dróst saman um 9% og var 41 þúsund tonn, þar af var þorskafli tæplega 26 þúsund tonn sem er 2% minna en í fyrra. Einnig veiddist 39% minna af ufsa og 22% minna af ýsu. Verðmæti 20% minna STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Von er á rafbúnaði þeim, sem koma mun rafmagnsmálum í gott horf til framtíðar á Sauðárkróki, til lands- ins í ágúst á næsta ári. Uppsetn- ingu búnaðarins mun að líkindum ljúka í september eða október 2020. Eins og komið hefur fram í frétt- um síðustu daga er Sauðárkrókur einn af þeim stöðum sem illa urðu úti í óveðrinu sem gekk yfir landið í síðustu viku. Rafmagn bæjarins tengist með loftlínu við byggðalín- una, í gegnum tengivirki í Varma- hlíð, en unnið er að því að koma þeirri línu í jörð. Hafnfirska fyrir- tækið RST Net mun sjá um teng- ingar á jarðstrengnum sem tengja mun saman tengivirkin á Sauðár- króki og í Varmahlíð. Þá mun RST Net einnig sjá um að koma tengi- virkinu á Sauðárkróki, sem stend- ur utandyra og safnaði á sig mikilli ísingu í óveðrinu, inn í hús á næsta ári. Það verkefni mun einnig stuðla að meira raforkuöryggi fyrir Sauð- árkrók. Samhliða verður einnig reist yfirbyggt tengivirki í Varma- hlíð. Nýkominn frá Þýskalandi Kristján Þórarinsson framkv- æmdastjóri RST Net, sem sér um að vinna verkefnið fyrir Landsnet, er nýkominn frá Þýskalandi þar sem gengið var frá kaupum á raf- búnaðinum fyrir bæði tengivirkin. Aðspurður segir hann að kostnaður er snýr að nýja rafmagnsbúnaðin- um í tengingunni milli Sauðárkróks og Varmahlíðar hlaupi á hundruð- um milljóna króna. „Í þessu tilviki sér Landsnet um að byggja húsin fyrir tengivirkin. Fyrirtækið af- hendir okkur þau tilbúin og við komum svo og setjum upp raf- magnsbúnaðinn og göngum frá honum tilbúnum til reksturs fyrir Landsnet,“ segir Kristján í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að Landsnet hafi efnt til útboðs í haust, og RST Net hafi fengið verksamninginn rétt fyrir síðustu mánaðamót. „Hönn- unarvinna fyrir bæði verkefnin er hafin, og tenging á háspennu- strengnum byrjar svo fljótlega eft- ir áramót. Við fáum búnaðinn fyrir Sauðárkrók og Varmahlíð sem við vorum að kaupa til landsins í ágúst, og setjum hann upp í september, október. Þetta verður komið í gagnið fyrir næstu jól. Veturinn núna er því vonandi síðasti vet- urinn sem Sauðárkrókur þarf að búa við þetta óöryggi í rafmagns- málum.“ Óháð veðri og vindum Kristján segir að ef þessu verk- efni hefði verið lokið þegar óveðrið skall á hefði Sauðárkrókur líkleg- ast ekki orðið fyrir neinu straum- leysi. „Verkefnið, sem snýr að því að reisa tengivirkið á Sauðárkróki innandyra, gerir það óháð veðri og vindum. Eins og menn sáu á frétta- myndum þá þurfti slökkviliðið m.a. að koma að því að hreinsa salt- blandaðan snjóinn af tengivirkinu.“ Eins og fram kom í máli Guð- mundar Inga Ásmundssonar, for- stjóra Landsnets, í Morgunblaðinu á dögunum, er ástæða hægagangs við lagfæringu rafmagnsmála á landsbyggðinni fyrst og fremst hversu hægt hafi gengið að fá leyfi til framkvæmda. Undanfarin þrjú ár hafi Landsnet ekki getað fram- kvæmt nema ríflega helminginn af því sem áætlað hafi verið. Rafbúnaður væntanlegur í ágúst Ljósmynd/Birgir Bragason Rafspenna Saltblandaður snjór hlóðst á tengivirki og raflínur á Sauðárkróki, og olli útslætti rafmagns. Rafmagn » RST Net í Hafnarfirði hefur komið að því að flytja tengi- virki inn í hús víða um land. » Fengu verkefnið á Sauð- árkróki rétt fyrir síðustu mán- aðarmót eftir útboð Landsnets fyrr í haust. »Á stæða hægagangs við lag- færingu rafmagnsmála á landsbyggðinni er einkum vegna þess hve hægt hefur gengið að fá leyfi til fram- kvæmda.  Yfirstandandi vetur verður vonandi sá síðasti þar sem Sauðárkrókur þarf að búa við óöryggi í raf- magnsmálum  RST Net klárar uppsetningu rafbúnaðar fyrir næstu jól  Setja tengivirki inn í hús Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Uppsetning Kristján Þórarinsson, framkvæmdastjóri RST Net. ● Seðlabanki Íslands hefur sett nýja reglu sem kveður á um að helmingur lágmarkslausafjárhlutfalls lánastofn- ana skuli vera í íslenskum krónum. Samkvæmt fyrri reglum bar bönk- unum að tryggja að lausafjárhlutfallið væri að lágmarki 100% í öllum gjald- miðlum samtals, þá skyldu lánastofn- anir uppfylla að lágmarki 100% lausa- fjárhlutfall í öllum erlendum gjaldmiðlum samtals. Með fyrrnefndri breytingu verða stofnanirnar því einn- ig að uppfylla að lágmarki 50% lausa- fjárhlutfall í íslenskum krónum. Hinar nýju reglur taka gildi 1. jan- úar. Íslenskar krónur verði 50% af lágmarkinu ● Eimskip hefur selt tvö gámaskip fé- lagsins sem nefnast Goðafoss og Lax- foss. Um er að ræða skip sem hafa ver- ið tvo áratugi í þjónustu félagsins og eru 24 ára gömul. Þau eru 1.457 gáma- einingar að stærð. Söluverðið nemur 3,9 milljónum dollara, jafnvirði 482 milljóna króna. Salan er liður í endurnýjun skipaflota Eimskips. Félagið mun þó leigja þessi sömu skip áfram eða þar til tvö ný 2.150 gámaeininga skip verða afhent frá skipasmíðastöð í Kína. Bókfært verð skipanna er hærra en söluandvirðið. Því mun Eimskip færa virðisrýrnun upp á 1,2 milljónir evra í bækur sínar vegna sölunnar. Selur Goðafoss og Lax- foss en leigir til baka Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.