Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 86

Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 86
86 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Við bjóðum gott úrval af hágæða Julbo skíðagleraugum og skíðahjálmum fyrir börn og fullorðna. Komdu og skoðaðu úrvalið. JÓLATILBOÐ Skíðagleraugu og skíðahjálmur kr. 29.900 Barnaskíðagleraugu og skíðahjálmur kr. 12.900 Jólagjöfin er hjá okkur Þetta er stór bók á alla lund,efnið borið fram í annáls-formi og marka ártölin íbókartitlinum tímaramm- ann en raunar sækir höfundur efni allt aftur til 1639 til að minna á að Ís- lendingar þekktu vel þennan fisk. Nokkuð þétt er stiklað á 19. öld en frá 1867 eru frásagnir frá hverju ári til 1969. Síld- veiðar, verkun, vinnsla, afurða- sala, örlaga- og reynslusögur eru í öndvegi, en vikið er að ótal öðrum málum sem tengjast sjósókn og at- vinnulífi yfirleitt, vexti og viðgangi verstöðva og kauptúna og birtar frá- sagnir af ýmsum meginviðburðum sem marka sögu landsins og setja síldarsöguna í samhengi; verslun gefin frjáls, fullveldi, heimsstyrj- aldir, kalt stríð o.fl. Höfundur hefur dregið að sér efni úr blöðum, tímarit- um, ævisögum, bréfum, dagbókum og skýrslum svo nokkuð sé nefnt; heimildaskrá er prentuð smáletri á fimm síður og fjórir dálkar á hverri. Höfundur tranar sér ekki fram þannig að sjónarhornið er fjölbreytt. Hér tala sinni rödd útgerðarmenn og síldarstúlkur, sjómenn og verkafólk, landsfeður og listamenn, stjórn- málamenn og verkalýðsleiðtogar svo einhverjir séu nú nefndir; margar heimildir hafa ekki áður birst á bók. Það er rétt sem höfundur hefur sagt í viðtölum að síldarkonurnar stíga hér á pall; bókin er tileinkuð þeim sem og öðrum sjóverkakonum. Í flestum opnum eru birtar smáfréttir frá útgerðarstöðum víða um land og gjarnan líka orðrétt klausa úr ein- hverri heimild sem lesandi staldrar við; oft kjarnyrtar fullyrðingar. Íslendingar þekktu síld frá fornu fari, ‚fjörðhjörð‘ er kenning um síld í dróttkvæðum kveðskap og 16. aldar skáld kallar sjóinn ,síldarjörð‘. Menn sáu hér síldarvöður en skorti bæði skip og veiðarfæri til þess að fanga fiskinn. Sú síld sem menn þó veiddu var fremur notuð í beitu en til mann- eldis ef hana rak á land eða henni var náð í háf eða net; eina afsökunin er að hún var vandverkuð til geymslu hjá þjóð sem notaði eiginlega allt sitt salt á kjöt í tunnu – og vantaði auk þess slík keröld. Norðmenn komu síðan með haffær skip og nætur, auk þess reknet. Sigling Norðmanna hingað jókst snarlega eftir að versl- un var gefin frjáls 1855 og þeir sáu hér víða vaðandi síld. (Íslands- verslun var mjög ábatasöm. Af 19 tekjuhæstu mönnum í Kaupmanna- höfn 1897 voru átta Íslands- kaupmenn (279).) Árið 1867 kom hingað norskur kaupmaður með timbur – og tók með sér tunnur, salt og nót. Um sumarið veiddi hann síld í Eyjafirði og sigldi heim með 300 tunnur. Þar með var ballið byrjað. Þessi saga í bland við aðrar er rakin ár frá ári, margradda, allt til 1969 að ekki fékkst síldarbein úr sjó. Menn voru búnir að klára stofninn. Enn er því ósvarað hvort þjóðin hefur lært lexíuna, en lík- urnar eru vonandi meiri en minni! Þetta er afskaplega lífleg saga og markast af því m.a. að síldin var ólík- indaskepna, enginn vissi hvar hún skyti upp kolli. Stundum sást hún ekki þar sem sjórinn ólgaði í fyrra. En nótaveiðarnar voru ábatasamar þegar sjórinn silfraði eins og segir í bréfi: „þar getur fiskimaður orðið vellauðugur maður á einni svip- stundu“ (38). Sem var raunin – en margir verkendur fóru jafnhratt á hausinn; m.a. þess vegna voru þeir kallaðir síldarspekúlantar. Um einn þeirra, Óskar Halldórsson, orti Sig- urður Jónsson þessa vísu: Glímdi oft um fremd og fé, / fann og missti gróðann. / Fjórum sinnum féll á hné / en fimmtu lotu stóð hann (820). Sala á afurðum var ýmist á höndum spekúlantanna eða undir stjórn rík- isins og verðlag og markaðir eigin- lega óljósari en veðurspá við upphaf vertíðar. Löngum keyptu Svíar hvað mest af saltsíld, unnu hana frekar og fluttu síðan sjálfir út; Íslendingar hafa lengst af verið hráefnis- framleiðendur. Í fyrstu var einungis hægt að kasta á vaðandi síld eða síld sem stóð grunnt. Flugvélar voru not- aðar við síldarleit a.m.k. 1944-50; flugbátar höfðu bækistöð á Mikla- vatni í Fljótum og leituðu síldar fyrir Norðurlandi og flugmenn gerðu síð- an skipstjórum viðvart. Það voru Loftleiðir hf. sem þarna hófu starf- semi sína (Byggðasaga Skagfirðinga, IX, 405-9). Þetta breyttist eftir því sem skip og nætur stækkuðu og síld- arskip voru útbúin dýptarmæli og gátu þannig lóðað á torfurnar og „fírað nótinni markvissar“. Kraft- blökk leysti nótabáta af hólmi um og upp úr 1960 og auðveldaði sjómönn- um lífið og sparaði útgerðinni mann- skap en engin ný tækni létti líf síldarstúlkna þótt síld væri söltuð á fjölbreyttari vegu en í upphafi; þær unnu allt á höndum. Undir miðja 20. öld var saltsíld flokkuð á sex vegu: matjessíld, cutsíld, grófsöltuð síld, sykursíld, kryddsíld, faxasíld (832). Auk þess var síld brædd í mjöl og lýsi og hún var flökuð og fryst er á leið og soðin niður; mín kynslóð man eftir „gaffalbitum“ frá „Sigló-síld“. Fjölbreytni í söltunaraðferðum opn- aði nýja markaði, t.d. í Þýskalandi og Póllandi. Til að gera sér grein fyrir síldveið- um og umfangi þeirra yfirleitt má nefna að árið 1947 veiddu Norðmenn þjóða mest, 635 þús. tonn, Japanir næst með 558 þús. tonn. Íslendingar voru þá í 5. sæti með 216 þús. tonn (865). Hér er skilmerkilega rakið hvað Íslandsmið voru útlendingum gjöful. Hér voru hundruð franskra skipa við veiðar, þjónustu og gæslu og nokkur þúsund sjómenn; Frakkar ráku þrjú sjúkrahús hér á landi. Norðmenn veiddu hér síld og hvali í nokkra ára- tugi, til 1915 eða svo, Færeyingar komu hingað í hundraðatali og gerðu út fram yfir 1930 að þeir færðu sig að mestu á fjarlægari mið, Bandaríkja- menn voru hér síðla 19. aldar að veiða einkum lúðu með miðstöð á Þingeyri, oft með íslenska menn í áhöfn. Undir lok 19. aldar byrjuðu Bretar og Þjóðverjar botnvörpuveið- ar og skröpuðu nánast upp í fjöru; Íslendingar byrjuðu sjálfir togveiðar stuttu eftir 1900. Hollendingar sendu einnig skip á miðin, og um hríð á 20. öld voru rússnesk, sænsk og þýsk skip við síldveiðar. Gæsla á miðunum var lítil. En þetta kostaði sitt: hundruð sjómanna drukknuðu; margar frásagnir í ritinu lýsa því átakanlega. Það er einstök breyting í sjósókn landsmanna að ár hafa liðið án manntjóns. Þetta er bók sem lesandi grípur niður í og margar frásagnir eru áhrifaríkar. Hér má nefna örlaga- sögu Margrétar Magdalenu (31-33), ævisögu Óskars Halldórssonar sem birtist í mörgum bútum og dag- bókarfærslum eftir því sem henni vindur fram, saga Hjálmars Jóns- sonar skipasmiðs er merkileg (41), dagbókarbrot verkakonu árið 1915 eru býsna sláandi lestur (506-515) eins og frásögn Valbjargar Krist- mundsdóttur af síldarsöltun á Siglu- firði (764-68) og er þá einungis fátt eitt talið af því sem ég staldraði við. Til fyrirmyndar er að birta teikn- ingar af tegundum skipa og segla- búnaði þeirra (82); almennur lesandi hefur t.d. yfirleitt ekki hugmynd um hvað er briggskip og hvað er skonn- orta o.s.frv. Myndirnar eru sérstakur kapítuli. Hér eru meira en þúsund myndir og sumar hreint afbragð; ég nefni ein- ungis stórkostlega mynd á titil- síðuopnu sem beinlínis ólgar af lífi og vísar um leið á kjarna ritsins. Mar- grét Tryggvadóttir aflaði mynda en höfundur er myndritstjóri og hefur sýnilega nostrað við myndatextana, þeir eru ítarlegir og upplýsandi. Það er þáttur sem margir höfundar fræðirita vanrækja. Nöfn, örnefni og atriðisorð eru saman í einni voldugri skrá, 22 bls. og fimm dálkar á hverri. Skrá er yfir 1.100 tilvísanir og ítarleg mynda- skrá. En er þá ekkert að? Það mætti nefna að lesanda kæmi að gagni að höfundur drægi nótina saman annað slagið, snurpaði meginatriðum í við- gangi síldveiða; söguleg vitund margra er svo bundin í skemmri og lengri tímabil sem geta verið til hægðarauka og skilnings. Sumar frásagnirnar eru keimlíkar þegar bókin er lesin í samfellu en það gera fæstir, hún er einfaldlega of stór til þess. Þegar öllu er á botninn hvolft þá eru Síldarárin læsileg og skemmtileg náma fróðleiks um veið- ar og vinnslu þessa nytjafisks og annarra slíkra auk þess sem bókin dregur upp skýrar og magnaðar mannlífsmyndir á mesta breytinga- skeiði þjóðarsögunnar. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Síld á Húsavík Söltunarstúlkur fá sér kaffisopa í hléi frá síldarsöltun á Húsavík. Bókin er „læsileg og skemmtileg náma fróðleiks,“ segir rýnir. Samtímasaga Síldarárin 1867-1969 bbbbb Eftir Pál Baldvin Baldvinsson. JPV forlag, 2019. Innb., 1.152 bls., myndir, skrár. SÖLVI SVEINSSON BÆKUR Morgunblaðið/Hari Höfundur Páll Baldvin Baldvinsson. Síldin kom, síldin hvarf Jólaball Sveiflustöðvarinnar verður haldið í Iðnó í kvöld kl. 20 og lýkur með því haustönn skólans. Á ballinu verður steppdanssýning og burles- que- og kabarettatriði, „vintage“ hársnyrting verður í boði og ljós- myndabás á svæðinu. Bragi Árna- son og Sveiflukjuðarnir koma fram og Húsband Sigga Swing leikur fyrir dansi. Aðgangseyrir er 2.500 kr. og fara miðapantanir fram með tölvupósti á sveiflustodin@gmail- .com en miðar verða einnig seldir við innganginn. Sveiflustöðin var stofnuð 2018 af Sigurði Helga Oddssyni píanóleik- ara og í skólanum eru kenndir sveifludansar á grunn- og miðstigi. Sveifla Dansinn mun duna á jólaballi Sveiflustöðvarinnar. Sveiflustöðin heldur jólaball í Iðnó
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.