Morgunblaðið - 19.12.2019, Qupperneq 42
42 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
VIÐTAL
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Viðtökurnar hafa verið mjög góð-
ar, miklu betri en við áttum von á.
Byggðasagan hefur þróast eins og
lagt var upp með, að þetta yrði
gott uppflettirit fyrir allar jarðir
héraðsins. Það hefur líka nýst á
mörgum sviðum, eins og í ferða-
þjónustu, við skipulagsvinnu sveit-
arfélaga, fyrir fasteignasala og
fræðimenn.
Fólki hefur
einnig þótt
gott að grípa
í þetta og
lesa sér til
um eina jörð í
einu,“ segir
Hjalti Páls-
son, ritstjóri
og aðalhöf-
undur Byggðasögu Skagafjarðar,
en níunda bindið er nú komið út.
Þar er fjallað um 50 býli í Holts-
hreppi hinum forna í Fljótum, sem
skiptist í þrjú byggðarlög; Stíflu,
Fljót og Úlfsdali. Aðrir höfundar
verksins auk Hjalta eru Kári
Gunnarsson og Egill Bjarnason.
Átti fyrst að taka 10-12 ár
Tuttugu ár eru nú liðin frá því
að fyrsta bindið kom út. Hjalti
segir þetta verkefni hafa í upphafi
átt að taka 10-12 ár og bindin áttu
að vera sex. Nú er orðið ljóst að
bindin verða alls tíu og stefnt er
að útgáfu síðasta bindisins eftir
tvö ár. Þar verður fjallað um
Málmey og Drangey, jarðir Hofs-
óshrepps og verslunarstaðina
Hofsós, Grafarós og Haganesvík,
auk þess sem heimildaskrá fyrir
öll bindin verður birt. Þó að 20 ár
séu liðin frá útgáfu fyrsta bind-
isins þá er lengra síðan farið var
að vinna að gerð byggðasögunnar.
Hjalti var skjalavörður við
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga á
Sauðárkróki þegar hann var feng-
inn til verksins í árslok 1995 en
vinnan hófst síðan af krafti árið
1996. Þá var Unnar Rafn Ingvars-
son kominn til starfa á skjalasafn-
inu og Hjalti gat einbeitt sér meira
að byggðasögunni. Árið 2000 tók
Unnar við af Hjalta sem héraðs-
skjalavörður, sem um aldamótin
hellti sér alfarið í ritun byggðasög-
unnar.
Vildu eignast sína „Búkollu“
Spurður hvernig hugmyndin að
byggðasögunni hafi kviknað segir
Hjalti margt hafa komið til. Ýmsir
Fékk vísbendingar að handan
Níunda bindi Byggðasögu Skagafjarðar komið út Tekur fyrir Holtshrepp hinn forna í Fljótum
20 ár liðin frá útgáfu fyrsta bindisins Eitt bindi eftir Víða leitað fanga við öflun heimilda
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Byggðasaga Hjalti Pálsson ritstjóri og Óli Arnar Brynjarsson hjá Nýprenti á Sauðárkróki við uppsetningu á ní-
unda bindi Byggðasögu Skagafjarðar, sem nú er komið út. Von er á tíunda og síðasta bindinu eftir tvö ár.
Guðbrandur Þór Jónsson frá
Saurbæ í Fljótum, segir svo frá í
Byggðasögunni, í samtali við
Hjalta: „Einu sinni í póstferð að
vetri til var ég að fara frá Saurbæ
og stefndi beint á brúna fyrir
Fljótaá. Þá var Sökkukelda á ísi
og ég rétt kominn yfir hana þegar
kallað var frá Minnholti: „Þóóór!“
Ég sneri mér við og kallaði já á
móti. Þá var kallað með enn
hærri rödd: ,,Haltu kjafti!“ Þetta
samtal heyrðist á alla bæi hér um
kring og þótt mjög skemmtilegt,
því að það var ekkert meira.
Til skýringar má þó segja að
hundur Jóns í Minnholti stóð þar
hjá honum og gelti og Jón hafði
því beint orðum sínum til hans.“
Heyrðist þá
„haltu kjafti“
SAGA FRÁ ÞÓR Í SAURBÆ
SÖLUAÐILAR
Reykjavík: Gullbúðin, Bankastræti 6 s: 551-8588 · Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62 s: 551-4100 · Meba Kringlunni s: 553-1199 · Michelsen Úrsmiðir, Kringlunni s: 511-1900
Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10 s: 554-4320 · Meba Smáralind s: 555-7711 · Hafnarfjörður: Úr & Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 · Keflavík: Georg V. Hannah úrsmiður,
Hafnargötu 49 s: 421-5757 · Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi s: 462-2509 · Akranes: Guðmundur B. Hannah úrsmiður, Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s: 471-1886 · Selfoss: Karl R. Guðmundsson úrsmiður, Austurvegi 11 s: 482-1433 · Vestmannaeyjar: Geisli, Hilmisgötu 4 s: 481-3333