Morgunblaðið - 19.12.2019, Síða 51
FRÉTTIR 51Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Bio-Kult Pro-Cyan
Við þvagfærasýkingum
● Háþróuð þvívirk formúla gegn þvagfærasýkingum
● Trönuberjaþykkni getur hindrað að E. Coli
bakteríur taki sér bólfestu í slímhúð þvagrásar
● Sérstakir gerlastofnar*
ásamt A vítamíni
viðhalda eðlilegri
starfsemi
þvagrásarkerfis og
þarmaflóru
Skyndilegar eða þrálátar þvagfærasýkingar geta stafað af
ójafnvægi í þarmaflórunni en rannsóknir hafa sýnt fram á að
öflugir góðgerlar geta komið á jafnvægi sem dregur verulega úr
líkum á slíkum sýkingum.
Vilja vægari úrræði
Rússar og Kínverjar ýta á öryggisráðið um að létta á aðgerðum gegn N-Kóreu
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Rússar og Kínverjar lögðu til í
fyrrinótt að öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna létti á þeim viðskipta-
þvingunum sem nú eru í gildi gegn
Norður-Kóreu, gegn því að ríkið
taki skref í átt að láta kjarnorku-
vopn sín af hendi. Þeim skrefum er
hins vegar ekki lýst nákvæmlega í
tillögu ríkjanna.
Meðal annars lögðu ríkin til að
innflutningsbanni á sjávarafurðum
og vefnaðarvöru frá Norður-Kóreu
yrði aflétt þegar í stað. Þá er einnig
lagt til að ályktun ráðsins verði aft-
urkölluð, þar sem aðildarríkjum
Sameinuðu þjóðanna er gert að
senda alla norðurkóreska verka-
menn sem þar eru aftur til Norður-
Kóreu fyrir 22. desember á þessu
ári. Útgerð þessara verkamanna er
mikil tekjulind fyrir stjórnvöld í
Norður-Kóreu, en talið er að margir
þeirra séu í nauðungarvinnu.
Þá er að lokum hvatt til þess að
viðræður Bandaríkjanna og Norð-
ur-Kóreu um afvopnun Kóreuskag-
ans haldi áfram, en lítið hefur þok-
ast áfram í þeim eftir að fundi
Donalds Trump Bandaríkjaforseta
og Kim Jong-un, leiðtoga Norður-
Kóreu, lauk án árangurs í febrúar.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa
síðan þá krafist þess að Bandaríkja-
menn gefi eftir nokkrar kröfur sín-
ar um afvopnun áður en viðræð-
urnar geti haldið áfram.
Hafa Norður-Kóreumenn gefið
Bandaríkjastjórn frest til áramóta,
og meðal annars hótað því að
„senda jólagjöf“ ef ekki verði orðið
við þeim kröfum. Sérfræðingar í
málefnum Norður-Kóreu telja að
stjórnvöld þar hyggist gera tilraun
með eldflaug, sem geti náð á milli
heimsálfa.
AFP
Leiðtogar Lítið hefur þokast þó að
Trump og Kim Jong-un hafi hist.
CHEOPS-sjónauki Evrópsku geim-
ferðastofnunarinnar ESA var settur
á sporbaug jarðar í gær, degi á eftir
áætlun. Sjónaukanum er ætlað að
greina reikistjörnur í sólkerfum ut-
an okkar sólkerfis, svonefndra fjar-
reikistjarna, og rannsaka þéttleika,
samsetningu og stærð þeirra.
Samkvæmt tilkynningu frá ESA
verður CHEOPS-sjónaukanum
einkum beint í átt að björtum stjörn-
um, sem þegar er vitað að séu með
reikistjörnur í kringum sig.
Didier Queloz, einn þeirra sem
hlaut nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í
ár, sagði við AFP-fréttastofuna að
sjónaukinn væri fullkomlega stað-
settur til að sinna hlutverki sínu.
„Þetta er framúrskarandi stund í
geimferðasögu Evrópu og í sögu
fjarreikistjarna,“ sagði Queloz.
Queloz og Michel Mayor, sam-
starfsmaður hans fundu fyrstu fjar-
reikistjörnuna fyrir 24 árum. Síðan
þá hafa 4.000 aðrar reikistjörnur
verið uppgötvaðar.
David Ehrenreich, yfirmaður
CHEOPS-verkefnisins, sagði við
AFP að markmiðið væri að skoða
þessar reikistjörnur af mikilli ná-
kvæmni, en talið er að sjónaukinn
geti meðal annars gefið betri mynd
af þeim skilyrðum sem þurfa að vera
til að líf geti myndast. Það er hins
vegar afar ólíklegt að sjónaukinn
muni geta greint hvort líf sé að finna
á fjarreikistjörnunum.
Skoðar plánetur
utan sólkerfisins
CHEOPS-sjónaukinn á sporbaug
AFP
Geimkönnun Soyuz-eldflaug fór
með sjónaukann á sporbaug.
Tony Blair, fyrr-
verandi forsætis-
ráðherra og leið-
togi Verka-
mannaflokksins,
hvatti í gær sam-
flokksmenn sína
til þess að snúa
bakinu við „hálf-
bylting-
arkenndum sósí-
alisma“ eftir að flokkurinn beið sitt
versta afhroð í þingkosningum frá
árinu 1935 í síðustu viku.
Sagði Blair að Jeremy Corbyn, for-
maður flokksins, hefði gerst sekur
um nánast „skoplega ákvarð-
anafælni“ í aðdraganda kosninganna
varðandi útgöngu Breta úr Evrópu-
sambandinu. „Þessi skortur á forystu
varðandi það sem var augljóslega
mikilvægasta málefnið ýtti undir all-
ar hinar efasemdirnar um Jeremy
Corbyn,“ sagði Blair í ræðu sem hann
flutti í Lundúnaborg í gær. Sagði
Blair að breskir kjósendur hefðu séð
Corbyn sem andstæðing vestrænna
gilda og vestrænnar utanríkisstefnu,
en slík andstaða hefði aldrei lagst vel
í hefðbundna kjósendur flokksins.
Reynir að höfða til vinstri
Gert er ráð fyrir að nýr leiðtogi
flokksins verði kjörinn snemma á
næsta ári. Talið er líklegt að fram-
bjóðendur muni reyna að höfða til
vinstri vængsins í kjörinu. Emily
Thornberry skuggautanrík-
isráðherra varð fyrst til þess að gefa
kost á sér í gær, en hún þykir vera
náin Corbyn. Rebecca Long-Bailey,
sem einnig hefur stutt Corbyn í gegn-
um súrt og sætt, er einnig talin ætla
að gefa kost á sér.
Keir Starmer, sem var talsmaður
flokksins í Brexit-málinu, sagði í gær
við breska ríkisútvarpið BBC að hann
væri að íhuga alvarlega að gefa kost á
sér. Starmer, sem hefur verið talinn á
miðju flokksins, sagði að rökin fyrir
„róttækum stjórnvöldum“ hefðu aldr-
ei verið meiri.
Gagnrýnir
Corbyn
harðlega
Ýmsir arftakar
nefndir til sögunnar
Tony Blair
Þessi kóalabjörn, sem nú dvelur í Taronga-
dýragarðinum í Sydney í Ástralíu er á meðal
þeirra fjölmörgu dýra sem fengið hafa skjól í
garðinum vegna skógarelda sem hafa farið illa
með heimkynni þeirra í nágrenni borgarinnar.
Mikil hitabylgja ríður nú yfir Ástralíu og var heit-
asti dagur sem sögur fara af í landinu í gær. Veð-
urfræðingar vara hins vegar við því að það met
verði mjög líklega slegið áður en árið er búið.
AFP
Hitabylgja ýtir undir skógarelda í Ástralíu