Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 81
ÍÞRÓTTIR 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
Íþróttahreyfingin á Íslandi
er ekki stór. Hún er viðamikil og
fjölbreytt en ekki stór miðað við
það sem gerist í fjölmennari ríkj-
um. Á dögunum fóru hand-
boltaþjálfarar í kross. Tóku við
starfi hvor annars og það á
miðju tímabili.
Guðmundi Helga Pálssyni og
Haraldi Þorvarðarsyni var sagt
upp hjá karlaliði Fram og
kvennaliði Aftureldingar. Guð-
mundur tók við kvennaliði Aftur-
eldingar af Haraldi. Guðmundur
hafði einnig þjálfað 4. flokk karla
hjá Fram. Haraldur tók við 4.
flokki Fram af Guðmundi.
Á milli tímabila hafa þjálfarar
farið í kross hérlendis. Breiðablik
og Grótta „skiptu“ á þjálfurum
og aðstoðarþjálfurum í knatt-
spyrnunni í haust. Í fyrra gerðist
það hjá KA og Grindavík. Vafa-
laust eru mörg fleiri dæmi til um
þetta en dæmið um Guðmund og
Harald er óvenjulegt þar sem
það gerðist á miðju tímabili.
Íþróttahreyfingin á Íslandi
getur verið einstaklega krúttleg.
Á það sér ýmsar birtingarmyndir.
Framkvæmdastjóri Gróttu, Kári
Garðarsson, er þjálfari meist-
araflokks hjá Fjölni í handbolt-
anum. Þá hefur íþróttafulltrúi
KR, Stefán Arnarson, lengi stýrt
liðum hjá öðrum félögum og er
þjálfari meistaraflokks kvenna í
handbolta hjá Fram. Keppinautur
hans, Ágúst Jóhannsson, þjálfar
meistaraflokk kvenna í hand-
bolta hjá Val og er stjórn-
armaður í handknattleiksdeild
KR.
Þessi dæmi sýna hvað við get-
um nú verið krúttleg hérna á eyj-
unni en sum staðar erlendis yrðu
menn líklega grýttir fyrir þetta.
Þessir menn hafa reynst trausts-
ins verðir þegar þeim hefur verið
hleypt inn fyrir þröskuldinn á
tveimur stöðum á sama keppn-
istímabili.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
HÖFUÐHÖGG
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Athygli vakti á dögunum þegar
Breiðablik tilkynnti að ekki færu
fram skallaæfingar hjá iðkendum
knattspyrnudeildar sem eru 12 ára
og yngri. Morgunblaðið ræddi við
Hákon Sverrisson, yfirþjálfara yngri
flokka félagsins, um þetta atriði.
Hákon segir ekki hafa verið um
mikla stefnubreytingu að ræða því
ekki hafi verið mikið um sérstakar
skallaæfingar hjá yngstu aldurshóp-
unum. Nauðsynlegt hafi þó verið að
upplýsa foreldra og aðra um hvernig
þessum málum væri háttað hjá fé-
laginu þegar umræðan um höfuð-
áverka í íþróttunum hefur aukist.
„Fólk veit þá hvað börnin eru að
gera eða ekki að gera á æfingum. Ég
held að fæst félög séu með stöðuga
þjálfun í því að skalla. Við vildum þó
láta vita af því að við munum ekki
gera það fram að 12 ára aldri. Við-
brögðin við þessu hafa verið góð
bæði frá foreldrum en einnig þjálf-
urum í öðrum félögum,“ segir Há-
kon en bendir einnig á að þessi þátt-
ur leiksins, að skalla knöttinn, sé enn
til staðar í íþróttinni. Á einhverjum
tímapunkti þurfi að kenna iðkendum
rétta tækni við að skalla og fara upp
í skallaeinvígi. Góð tækni dragi úr
hættunni á áverkum.
Heilabú barna viðkvæmt
„Kenna þarf beitinguna við að
skalla og gera það rétt. Það er eitt-
hvað sem þarf að gera á ákveðnum
aldri. Enn sem komið er hefur þessi
þáttur ekki verið tekinn út úr leikn-
um. Þegar þau eru orðin 13-14 ára
þarf að kenna þeim þessa þætti án
þess að vera með yfirgripsmiklar
æfingar í þá veruna. Mér finnst
einnig mikilvægt að kenna krökk-
unum að vera vör við umhverfi sitt
inni á vellinum. Góður leikmaður
getur forðast árekstra ef hann veit
hvað er að gerast í kringum sig.
Einnig er hægt að kenna krökkum
að fara rétt upp í skallabolta. Það er
spurning um almenna hreyfifærni.“
Spurður um hvernig aldurs-
viðmiðið sé tilkomið segir Hákon að
hjá Blikunum hafi fólk aflað sér vitn-
eskju bæði frá Bandaríkjunum og
Skotlandi.
„Rannsóknir hafa birst í Ameríku
og Skotlandi. Þar kemur fram að
skynsamlegt sé að miða við 11-12
ára aldurinn. Við miðum þetta við 5.
flokk og yngri. Í næsta flokki fyrir
ofan eru iðkendur farnir að spila á
ellefu manna velli. Ef eitthvað nýtt
kemur fram þá munum við bara end-
urskoða það en þetta voru viðbrögð
við niðurstöðum í þessum rann-
sóknum sem við kynntum okkur.
Heilabúið er viðkvæmt á þessum
aldri sem um ræðir og ekki er æski-
legt að áreiti sé til staðar. Þetta er
því einfaldlega forvarnarsjónarmið.
Með því að taka út skallaboltana þá
minnkum við líkurnar á áverkum
sem tengjast heilanum.“
Eðlismunur á höggum
Hákon, sem hefur yfigripsmikla
reynslu úr íþróttinni, er ánægður
með þá vitundarvakningu sem hefur
orðið varðandi höfuðáverka og legg-
ur áherslu á almenna skynsemi hjá
þjálfurum og iðkendum. Mikilvægt
sé að þjálfarar þekki verklagsreglur
ef grunur leikur á heilahristingi og
kunni að bregðast við. Hákon bendir
einnig á að eðlismunur geti verið á
höfuðhöggum. Til dæmis út frá því
hvort leikmaður fái högg sér að
óvörum eða ekki.
„Ekki má heldur rugla skallaæf-
ingunum saman við annars konar at-
riði eins og þau sem voru til umfjöll-
unar um daginn. Þá voru
höfuðáverkar til umræðu þar sem
fólk hafði lent í samstuði eða fengið
boltann óvart í höfuðið. Þá er við-
komandi ekki viðbúinn og sér mögu-
lega ekki boltann koma. Ef þú ert
tilbúinn, og með hálsinn spenntan,
þá held ég að líkurnar á áverkum
séu minni. Mér finnst frábært að
fjallað sé um höfuðáverka frá öllum
hliðum en þetta er í mínum huga sitt
hvort atriðið sem forðast ætti að
rugla saman,“ segir Hákon Sverr-
isson.
Skallaæfingar í fyrsta
lagi við 13 ára aldurinn
Þjálfarar hjá Breiðabliki kynntu sér rannsóknir í Evrópu og Ameríku
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
N1 mótið Frá leik Breiðabliks og Fylkis í 5. flokki árið 2015. Í þeim aldursflokki er heilabúið viðkvæmt.
Bein útsending frá handboltaleik
fékk besta áhorf af öllum íþrótta-
viðburðum í þýsku sjónvarpi á
árinu 2019 og þar með skaut hand-
boltinn knattspyrnunni aftur fyrir
sig í fyrsta skipti.
Þetta kemur fram í samantekt
Frankfurter Allgemeine sem birtir
áhorfstölur frá íþróttaviðburðum á
þessu ári.
Á toppnum er viðureign Þjóð-
verja og Norðmanna í undan-
úrslitum heimsmeistaramóts karla
sem fram fór 25. janúar. Þann leik
sáu 11,9 milljónir þýskra sjónvarps-
áhorfenda.
Munurinn á tveimur vinsælustu
leikjunum var lítill því í öðru sæti
með rúmlega 11,8 milljón áhorf-
endur var viðureign Hollands og
Þýskalands í undankeppni Evr-
ópumóts karla í fótbolta sem fram
fór 24. mars.
Handboltinn átti svo einnig
þriðja sætið en rúmar 10 milljónir
sáu viðureign Króata og Þjóðverja
á umræddu heimsmeistaramóti 21.
janúar.
Tölurnar á árinu 2018 voru allt
öðruvísi en þá fór heimsmeist-
arakeppni karla í knattspyrnu fram
í Rússlandi og réð ríkjum í þýsku
sjónvarpi. Þá sáu 27,5 milljónir
sjónvarpsáhorfenda í Þýskalandi
viðureign Þýskalands og Svíþjóðar.
vs@mbl.is
Handboltinn
fór fram úr
fótboltanum
Helena Kristín Gunnarsdóttir úr KA og Ævarr Freyr
Birgisson, leikmaður Marienlyst í Danmörku, voru í gær
útnefnd blakkona og blakmaður ársins 2019 af Blak-
sambandi Íslands. Helena var jafnframt valin í sjö
manna úrvalslið fyrri hluta tímabilsins í Mizuno-deild
kvenna ásamt tveimur liðsfélögum sínum úr KA en það
eru Luz Medina og Paula Del Olmo. KA er með yf-
irburðaforystu í deildinni og hefur unnið alla sína leiki. Í
liðinu eru líka þær María Rún Karlsdóttir og Kristina
Apostolova úr Aftureldingu, Sara Ósk Stefánsdóttir úr
HK og Cristina Ferreira úr Þrótti R. Besti þjálfari fyrri
hluta tímabilsins var valinn Borja Gonzalez úr Aftureld-
ingu sem er í öðru sæti, ellefu stigum á eftir KA.
Í Mizuno-deild karla á topplið Þróttar í Neskaupstað tvo leikmenn í úr-
valsliði fyrri umferðar en það eru Jesus Montero og Galdur Máni Dav-
íðsson. Aðrir í liðinu eru Mateusz Klóska úr Vestra, Mason Casner úr Álfta-
nesi, Lúðvík Már Matthíasson úr HK, Miguel Mateo úr KA og Kári
Hlynsson úr Aftureldingu. Besti þjálfarinn var valinn Vladislav Mandic úr
HK sem er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Þrótti N.
Helena best og í úrvalsliðinu
Helena Kristín
Gunnarsdóttir
Gylfi Þór Sigurðsson og Sara Björk
Gunnarsdóttir eru knattspyrnufólk
ársins 2019 hjá KSÍ en það er stór
hópur af fyrrverandi landsliðsfólki,
þjálfarar og forystumenn í knatt-
spyrnuhreyfingunni sem taka þátt í
kjörinu. Segja má að Gylfi og Sara
hafi verið með þessa titla í áskrift því
bæði eru þau kjörin fimmta árið í röð.
Gylfi hefur nú verið valinn níu sinnum
á síðustu tíu árum og Sara sex sinnum
á síðustu sjö árum.
Í karlaflokki varð Jóhann Berg Guðmundsson í öðru sæti og Ragnar Sig-
urðsson í þriðja sæti.
Í kvennaflokki varð Glódís Perla Viggósdóttir í öðru sæti og Elín Metta
Jensen í þriðja sæti.
Gylfi og Sara enn eitt árið
Sara Björk
Gunnarsdóttir
Gylfi Þór
Sigurðsson
Íris Björk Símonardóttir og Aron
Pálmarsson eru handknattleiksfólk
ársins 2019 hjá HSÍ.
Íris átti stóran þátt í að Valur varð
þrefaldur meistari á síðustu leiktíð
og lék hún auk þess vel með íslenska
landsliðlinu, eftir nokkurt hlé. Var
hún valin besti leikmaður Olísdeildar
kvenna, besti markmaðurinn og mik-
ilvægasti leikmaður deildarinnar og
síðar mikilvægasti leikmaður úr-
slitakeppninnar að Íslandsmóti
loknu.
Aron er í lykilhlutverki hjá Barcelona, langbesta liði Spánar, og einu
besta liði heims. Hann varð þrefaldur spænskur meistari á síðasta tímabili,
en liðið tapaði ekki einum einasta leik heimafyrir á síðustu leiktíð. Þá
fengu Aron og Barcelona bronsverðlaun í Meistaradeild Evrópu. Aron hef-
ur um árabil verið fremsti handknattleiksmaður Íslands og lék hann vel á
HM í Þýskalandi og Danmörku í byrjun árs.
Íris og Aron sköruðu fram úr
Aron
Pálmarsson
Íris Björk
Símonardóttir
Ljóst þykir að japanski knatt-
spyrnumaðurinn Takumi Minamino
muni bætast í hópinn hjá enska
knattspyrnufélaginu Liverpool í
byrjun janúar en þá getur félagið
gengið frá kaupum á honum frá
Salzburg í Austurríki. Samkvæmt
enskum fjölmiðlum fór Minamino
til Liverpool í gær til að gangast
undir læknisskoðun hjá félaginu.
Hann er 24 ára gamall kantmaður
eða miðjumaður og vakti mikla at-
hygli í leikjum Salzburg og Liver-
pool í Meistaradeildinni í vetur.
Minamino fer
til Liverpool
AFP
Drjúgur Takumi Minamino hefur
gert 64 mörk á 5 árum í Salzburg.