Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 20
G U N N A R JÚ L A R T Þegar lýst var yfir sigri 27. október voru hinar tíu hæða háu myndir af Evu Duarte de Perón, sem gnæfa yfir Avenida 9 de Julio í Buenos Ai- res, lýstar upp þar sem þær ber við næturhim- ininn í fyrsta skipti frá því að Cristina Fern- ández de Kirchner fór af forestastóli 2015. Perónistakraftaverk hafði átt sér stað og það sem hafði virst óhugsandi þau fjögur ár, sem flokkurinn var í stjórnarandstöðu, var orðið að veruleika: Argentínskir kjósendur krýndu Kirchner pólitíska drottningu landsins að nýju. Jafnvel þótt 11 spillingarmál hefðu sankast saman gegn henni hafði forsetinn sem þegar hafði setið tvö kjörtímabil aftur náð tindinum, að þessu sinni með því að bjóða sig fram til varaforseta við hlið Alberto Fern- ándezar, fyrrverandi bandamanni (og einnig fjandmanni til langs tíma). „Ekki gráta mig, Argentína,“ segir í laginu úr gamla söngleiknum. Og vissulega hafa tár, dramatík og argentínska þjóðin verið óaðskilj- anleg frá því að líf Evitu, eins og Eva Perón var þekkt í huga aðdáenda sinna, varð að um- fjöllunarefni söngleiksins, sem sló í gegn á Broadway. Um þremur áratugum fyrr, þegar hún var forsetafrú Argentínu, voru pólitísk áhrif hennar mikil bæði sem málsvari hinna fá- tæku og hin nýtískulega eiginkona Juans Domingos Peróns, hershöfðingja og forseta. Í valdatíð Perón-hjónanna myndaðist gjá milli stuðningsmanna þeirra og andstæðinga, sem náði glímutaki á pólitískri vitund þjóðar- innar. Sams konar gjá myndaðist í forsetatíð Kirchner frá 2007 til 2015. Hún ræður enn ríkjum í samtali þjóðarinnar. Frá því Evita var og hét hefur engin kona haft jafn mikil völd í jafnlangan tíma – eða orð- ið jafn snar þáttur í sínum samtíma í Argent- ínu – og Kirchner. Sambærilegu þættirnir eru skýrir og hún hikar ekki við að flíka þeim. Báð- ar byrjuðu þær sem metnaðarfullar og atorku- samar forsetafrúr áður en staða þeirra styrkt- ist við hlið eiginmannanna. Maður Kirchner var Néstor Kirchner og fyrir hana var hið póli- tíska ferðalag einstaklega persónulegt, mótað bæði af stuðningsmönnum hennar og andstæð- ingum. Lykilþáttur í leið hennar til valda var tryggðin við eiginmanninn sem Evita Perón gerði að miðpunkti ímyndar sinnar. „Allt sem ég er, allt sem ég hef, allt sem ég hugsa og allt sem ég finn er vegna Peróns,“ sagði Evita um eiginmann sinn í sjálfsævisögu sinni, „La Ra- zón de Mi Vida“ („Tilgangur lífs míns“). Evita var tákngervingur hins íhaldssama hlutverks konu, sem telur hjónabandið heilagt og lítur á mann sinn sem goðumlíka veru. Mynd af Evu Perón á hlið byggingar við götu í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. Juan Mabromata/Agence France-Presse Getty Images POLA OLOIXARAC er argentínskt skáld og höfundur „Las teorías salvajes“ (Villtar kenningar). Í baráttu sinni gegn spillingarrann- sóknunum málar hún sig sem mál- svara fólksins, hermann með goð- sagnakennda stöðu ekki ósvipað Evitu. TÍMAMÓT: Í OKTÓBER KUSU ARGENTÍNUMENN PERÓNISTAFLOKKINN TIL VALDA AÐ NÝJU ’’ Ný Evita rís í Argentínu Afbrigði Cristinar Fernández de Kirchner af femínisma er ekki ætlað að valdefla aðrar konur – aðeins hana sjálfa.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.