Morgunblaðið - 28.12.2019, Síða 29
2,3 milljarða manna 2018 úr 415 milljónum
2016. Þessar þjóðir eru Brasilía, Bandaríkin,
Indland, Pólland og Ungverjaland. Á sama
tíma hefur lýðræði styrkst í 21 landi á undan-
förnum áratug, þar á meðal Túnis, Armeníu,
Georgíu og Burkina Faso. Niðurstaðan er
blendin, ekki eingöngu dapurleg, en langt frá
því upplífgandi.
Stofnanir, sem framfylgja lögunum, bitu frá
sér 2019 gegn leiðtogum, sem halda að þeir séu
yfir þau hafin. Við Trump forseta blasir kæra
til embættismissis í fulltrúadeildinni fyrir mis-
notkun valds og að standa í vegi fyrir þinginu.
Hann hefur brugðist við ferlinu með upphróp-
unum um „aftöku“ og sagt demókratana „brjál-
aða“. Benjamin Netanyahu var ákærður fyrir
spillingu. Hann vísaði ásökununum á bug sem
„valdaráni“.
Í huga Trumps var það óaðfinnanleg fram-
koma að gera Úkraínu að uppsprettu skíts um
pólitískan andstæðing í kosningunum 2020. Af-
staða Trumps til Úkraínu er sú sama og til
Vladimírs Pútíns, vinar hans: Hún er einskis
virði land, sem allt eins gæti verið hluti af Stór-
Rússlandi. Trump hefur enga hugsjón um eða
áhuga á að treysta sjálfstæði Úkraínu með nán-
ari samruna við Vestur-Evrópu. Utanríkis-
stefna hans er hlálega reikul.
Nánast er öruggt að Trump forseti kemst
hjá því að verða dæmdur í öldungadeildinni og
mun sitja áfram og berjast í kosningunum í
nóvember 2020. Netanyahu gæti enn losað sig
úr sínum lagaflækjum. Fyrir báðum þessum
mönnum er það að halda völdum orðið annað og
meira en pólitísk barátta. Það er örvæntingar-
full tilraun til að komast hjá því að lenda í fang-
elsi.
Ég hef áhyggjur af hvað Trump gæti gert
tapi hann kosningunum 2020 naumlega. Hann
gæti einnig hrópað valdarán. Hann langar til að
verða einræðisherra og hefur valdeflt einræðis-
herra um allan heim, í Saudi-Arabíu, Kína,
Rússlandi og á Filippseyjum. Bandaríkin
studdu fjölda einræðisherra í kalda stríðinu af
herfræðilegum ástæðum, en aldrei áður hefur
forseti verið svo augljóslega öfundsjúkur út í
slíka leiðtoga. Ég hika ekki við að kalla Trump
hatursfullan; hvort hann er í raun illur er annað
mál. Til að vera illur þarft maður að vera ein-
beittur og markviss. Hegðun Trumps er að
miklu leyti ósamkvæm og léttvæg. Engu að síð-
ur er hún skaðleg.
Trump er einkenni, ekki ástæða. Eins og
Paul Polman, fyrrverandi forstjóri Unilever,
sagði geta „viðskipti ekki gengið þegar sam-
félög bregðast“. Vestræn lýðræðisríki hafa
brugðist. Fyrir áratug var heimurinn fastur í
alþjóðlegri fjármálakreppu. Þeir sem báru
ábyrgð gengu á braut. Uppreisnin í dag er barn
refsileysis og misréttis.
Hagkerfi þurfa að vera þannig úr garði gerð
að þau þjóni fleirum. Réttlæti, jöfn tækifæri,
menntun og sjálfbærni ættu að vera leiðandi
gildi. Of mörgum hefur of lengið liðið eins og
þeir væru ósýnilegir, einnota og einskis virði.
Þess vegna hefur boðskapur þjóðernissinna
fengið hljómgrunn. Þar er komið til móts við öll
gremjuefnin með innantómum loforðum um
endurheimta dýrð. Þau hafa skilað loddurum í
há embætti í Washington og London.
„Framtíðin tilheyrir ekki alþjóðasinnum,“
sagði Trump forseti í ræðu fyrir Sameinuðu
þjóðunum í september. Ef hún tilheyrir Trump
og hugmyndafræðinni „Ameríka gengur fyrir“
næstu fimm árin munu afleiðingarnar verða al-
varlegar fyrir allt frá loftslaginu til alþjóðlegs
stöðugleika, að ekki sé minnst á einfalda, gam-
aldags sómakennd. Sigur Trumps 2020 er
möguleiki, sérstaklega þar sem frambjóðendur
demókrata virðast veikir eins og stendur. En
skilaboðin frá 2019 eru að frjáls, opin, óspillt
samfélög, sem byggjast á reglum réttaríkisins,
njóta hugrakks stuðnings allt frá Teheran til
Santiago.
Fyrr á þessu ári var ég á skrifstofu Ekrems
Imamoglus, borgarstjóra Istanbúl. Hann var á
ferðalagi, en hans helsti aðstoðarmaður var
leiðsögumaður minn. Imamoglu er andstæð-
ingur Receps Tayyips Erdogans forseta. Hann
var kjörinn, Erdogan (sem eins og Trump telur
sig ósigrandi) ógilti kjörið, svo sigraði hann aft-
ur með afgerandi mun. Þetta var talsvert áfall
fyrir tyrkneska forsetann.
Fyrir aftan skrifborð Imamoglus hékk mynd
af Mustafa Kemal Ataturk, stofnanda hins ver-
aldlega lýðræðisríkis Tyrklands. Það var nýbú-
ið að hengja hana upp aftur. Fylgjendur
Erdogans, andstæðings veraldlegs stjórnarfars
með drauma um að endurreisa Tyrkjaveldi,
höfðu áður fjarlægt það. Þessar tilfærslur á
portrettinu blöstu við mér sem birtingarmynd
heims í lausu lofti á milli einræðis og and-
spyrnu.
Á skrifstofu Nikols Pashinyans, forsætisráð-
herra Armeníu, hangir önnur merkileg mynd,
sem sýnir snævi þakið Ararat-fjall. Nú er fjallið
í Tyrklandi, en á löngum skeiðum sögunnar
hefur það verið hluti af Armeníu. Í þjóðarvit-
undinni er það enn þar. Í höfuðborginni Jerev-
an er sögusafn um þjóðarmorð. Þar er greint
frá morðum Tyrkjaveldis á rúmlega einni millj-
ón Armena sem hófst 1915. Margar ljósmynd-
irnar eru of hryllilegar til að hugsa sér. Til
þessa dags þrætir tyrkneska lýðveldið fyrir að
blásið hafi verið til skipulagðrar herferðar til að
drepa Armena.
„Hver talar nú, þegar öllu er á botninn
hvolft, um gereyðingu Armena?“ sagði Hitler
árið 1939 þegar Þýskaland nasismans réðist
inn í Pólland. Það er hættulegt þegar sannleik-
anum er afneitað. Því fylgir byrði harmleiks
framtíðar. Kínverjar og Rússar afneita sann-
leikanum. Trump styður þá. Mótmælendurnir
2019 hafa rumskað gagnvart hættunni. „Berj-
umst fyrir frelsi,“ sungu 800 þúsund mótmæl-
endur á götum Hong Kong nýverið. Svo einfalt
er það ef lífið á að vera þess virði að lifa því.
©2019 The New York Times Company og Roger
Cohen. Á vegum The New York Times Licensing
Group.
Maður sýnir merki sigurs með fingrunum í mótmælum gegn stjórnvöldum í Beirút í Líbanon 21. október.
Ali Hashisho/Reuters
Mótmælandi við Tækniháskólann í Hong Kong 11. nóvember.
Thomas Peter/Reuters
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29. 12. 2019 29
VILTU TAKAVIÐ
GREIÐSLUMÁNETINU?
KORTA býður uppá fjölbreytta þjónustu sem hentar
bæði minni og stærri fyrirtækjum. Kannaðu málið.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is