Morgunblaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2019 Ný meðferð gegn jarð- hnetuofnæmi samþykkt Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna mælti með því að leyfi yrði gefið fyrir fyrsta lyfinu til að nota gegn jarð- hnetuofnæmi barna. Árið 2017 voru um 1,2 milljónir barna í Bandaríkjunum með ofnæmi fyrir jarðhnetum og sum þeirra með lífshættulegt bráðaofnæmi. Nýja lyfið, Palforzia, á að draga úr líkum á banvænum ofnæmisviðbrögðum við jarðhnetum í börnum á aldrinum fjögurra til 17 ára. Söguleg tunglferð Kínverja Kínverska geimfarið Chang’e-4 lenti á tunglinu snemma í janúar. Tilgangur leiðangursins var að kanna hina dularfullu fjarhlið mánans. Önnur tilraun til að lenda á tunglinu í sept- ember mistókst. Að þessu sinni voru Indverjar á ferð. Sam- band geimfarsins við stjórnstöð á jörðu niðri rofnaði þegar það var í tveggja kílómetra hæð yfir yfirborði tunglsins og heyrðist ekki frá því meir. Fágæt, alhvít panda Mynd náðist af albínóapöndu á náttúruverndarsvæði í hér- aðinu Sichuan í Kína. Er það í fyrsta skipti, sem mynd næst af slíkri pöndu. Sést hafa pöndur, sem eru bæði brúnar og hvítar í norðvesturhluta Kína, en alhvít panda hefur ekki áð- ur verið skráð með þessum hætti. Banna hugbúnað til að bera kennsl á andlit Notkun lögreglu og annarra ríkisstofnana á hugbúnaði til að bera kennsl á andlit var bönnuð í San Francisco, sem varð þar með fyrsta stórborgin í Bandaríkjunum til að leggja bann við notkun slíks búnaðar. Embættismenn og réttinda- samtök höfðu lýst yfir áhyggjum af að tæknin kynni að verða misnotuð. Yfirvöld hafa nýtt sér tæknina til að bera kennsl á einstaklinga, sem grunaðir eru um aðild að margs konar brotum, allt frá smáglæpum til alvarlegra skotárása. Gagn- rýnendur bannsins segja að borgaryfirvöld ættu að leggja sitt af mörkum til að semja lög, sem gerðu lögreglu kleift að nota tæknina með ábyrgum hætti. Ríkisstjórn Mexíkó sakar tískuhús um stuld Menningarmálaráðherra Mexíkó sakaði fyrirtækið Carolina Herrera í New York um menningarstuld þegar tískuhúsið birti fyrr á þessu ári tískulínu ársins 2020 þar sem sjá mátti útsaum og áberandi mynstur, sem innfædd samfélög í Mexíkó eru þekkt fyrir. Í tískusögunni hafa ítrekað komið fram ásakanir um menningarstuld og tillitssleysi, en ríkis- stjórn hefur ekki áður tekið slaginn. Aston Martin afhjúpar fyrsta rafbíl framleiðandans Veröldin dugar ef til vill ekki njósnara hennar hátignar en James Bond er reiðubúinn til að gera sitt til að hún megi vera græn. Aston Martin, breski bílaframleiðandinn, sem smíðar sportbílana, sem njósnarinn ekur á hvíta tjaldinu, sýndi fyrsta bílinn úr smiðju hans, sem eingöngu gengur fyr- ir rafmagni á bílasýningu í Sjanghæ í apríl. Bíllinn nefnist Rapide E, kostar 326.000 dollara (tæpar 40 milljónir króna), kemst úr 0 í 100 km hraða á klukkustund á fjórum sekúnd- um og nær að hámarki 250 km hraða á klukkustund, sem ætti að duga til að elta uppi varmenni og þrjóta. Áttavitar í Greenwich beinast í raunnorður Í fyrsta skipti í 360 ár beindust áttavitarnir, seguláttavitinn og raunáttavitinn, í Greenwhich á Englandi báðir í raun- norður. Jörðin hefur tvo norðurpóla, segulnorðurpól og land- fræðilegan norðurpól. Yfirleitt vísa áttavitar ekki í raun- norður, heldur beinast þess í stað að segulpól jarðar, sem færist til vegna segulmögnunar í fljótandi miðju jarðar. AFP 22 HLUTIR SEM GERÐUST Í FYRSTA SKIPTI 2019 Nýtt undir sólinni 2019 Óvæntir, alvarlegir og stund- um kjánalegir viðburðir og straumar, sem gerðust eða vart var við í fyrsta skipti 2019. Eftir Triciu Tisak Tvær konur voru ímamar og leiddu bænagjörð blandaðs safnaðar í Frakklandi í september. Var það í fyrsta skipti sem konur stýrðu íslömsku helgihaldi í Frakklandi. Konurnar snerust til íslams fyrir um tíu árum og vinna að því að gera íslömsk trúarbrögð nútímalegri og opnari fyrir fjölbreytni. Lionel Bonaventure/Agence-France Presse Getty Images Konur leiddu íslamskt bænahald Metverð fékkst fyrir verkið „Kanína“, skúlptúr úr ryðfríu stáli, sem listamaðurinn Jeff Koons gerði árið 1986. Listaverkið seldist á 91,1 milljón dollara (11,1 milljarð króna) með sölu- þóknun og gjöldum þegar það var boðið upp í maí og er það heimsmet. Aldrei hefur verk eftir lifandi listamann selst svo dýru verði á uppboði. Listaverkasalinn Robert E. Mnuchin, sonur Steves Mnuchins fjármálaráðherra Bandaríkjanna, keypti verkið fyrir óþekktan viðskiptavin. Christie’s Metverð fyrir verk Koons Stjörnufræðingar birtu í fyrsta skipti í sögunni mynd af svartholi. Reynt hafði verið að ná slíkri mynd án árangurs í rúmlega hálfa öld. Fylgst var með svartholinu, sem liggur í Messier 87, risasporvöluvetrarbraut í miðju Meyjarþyrpingarinnar í um 55 milljóna ljósára fjarlægð frá jörðu, í tíu daga í apríl 2017 úr átta skoðunarstöðvum. Það tók tvö ár að setja myndina saman með tölvugreiningu og hún var birt í apríl á þessu ári. Event Horizon Telescope/National Science Foundation via Reuters Vísindamenn birta fyrstu myndina af svartholi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.