Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2019 Átökin um landamæri um allan heim hörðn- uðu verulega á þessu ári. Trump forseti hélt áfram að þrýsta á um mörg hundruð mílna langan múr milli Mexíkó og Bandaríkjanna, Indverjar og Pakistanar kveiktu að nýju elda nokkurra áratuga gamalla væringa um Kasm- ír og brexit fylgdi hótun um að setja alla Evr- ópu á annan endann. Um leið og þessi átök blossa upp og magnast er mikilvægt að muna að mörg af þeim landamærum, sem við tökumst á um, voru frá upphafi hvorki sanngjörn né lýðræð- isleg. Þau voru sem sagt ekki búin til með þeim hætti að allir fengju að leggja sitt til málanna, heldur voru öllu heldur afrakstur stríða, nýlendustefnu, sáttmála og konung- legra hjónabanda. Katalónski hagfræðingurinn Xavier Sala-i- Martin, prófessor við Columbia-háskóla, benti í viðtali 2018 réttilega á að þyrfti einhver úr vestrænu lýðræðisríki að lýsa samfélagi sínu fyrir gestum frá Mars yrðu þeir líklega hlessa að heyra að við stjórnuðum okkur með lýð- ræðislegu kerfi laga og kosninga, en létum landamæri þjóða okkar ráðast af duttlungum nýlendusamninga eða úrslitum löngu liðinna stríða. Þar með er ekki sagt að við þurfum færri landamæri. Annars mætti spyrja hvers vegna ekki að sameina Spán og Frakkland og gera París að höfuðborg? Eða Frakkland og Þýskaland með Berlín að höfuðborg? Það myndi aðeins leiða til meiri pólitískrar og efnahagslegrar miðstýringar í höfuðborgum sem þegar soga til sín fjármagn og mannauð landa sinna og búa í leiðinni til fátækt og ójöfnuð. Við getum til dæmis ekki skilið brexit án þess að hafa í huga að England er eitt mið- stýrðasta landið í Vestur-Evrópu. Svipað má segja um Spán þar sem vaxandi völd og bol- magn Madrídar leiðir til fólksfækkunar víða um sveitir landsins, sem þegar eru svelt fjár- hagslega og íbúarnir að eldast. 2017 var haldið þjóðaratkvæði í Katalóníu til að skera úr um sjálfstæði frá Spáni af póli- tískum, sögulegum og efnahagslegum ástæð- um. Madríd hafnaði öllum tilraunum til að ná samkomulagi um kosningarnar og þegar stjórnlagadómstóll Spánar –sem margir telja pólitískan – lýsti yfir að þær stríddu gegn stjórnarskránni réðust lögreglumenn sam- kvæmt fyrirmælum frá spænsku ríkisstjórn- inni á kjósendur með ofbeldi er þeir ætluðu að greiða atkvæði. Í kjölfarið voru katalónskir leiðtogar og nokkrir embættismenn settir í fangelsi og hafðir í haldi í tvö ár án réttar- halda, en fjórir flúðu í útlegð ásamt mér. Í október voru níu þeirra, sem enn voru í haldi, dæmdir fyrir undirróður. Þeir munu sitja í fangelsi í níu til 13 ár. Mér virtist eining ríkisins alltaf mikilvæg í huga spænskra stjórnmálamanna en aldrei hvarflaði að mér að þeir myndu setja einingu ofar lýðræði eða mannréttindum, sérstaklega þar sem Spánn er í Evrópusambandinu. Lönd á borð við Tyrkland hafa tekið sér al- ræðistilhneigingarnar á Spáni til fyrir- myndar. Tyrknesk stjórnvöld hafa réttlætt fangelsun kjörinna embættismanna úr röðum Kúrda með því að segja að þeir væru einfald- lega að fara að fordæmi Spánar og Kínverjar halda því fram að lögregluofbeldið í Katalóníu réttlæti atlögu þeirra að mótmælendum í Hong Kong. Þessar ólýðræðislegu aðferðir við að taka á landamæradeilum og sjálfstæðishreyfingum hafa búið til fordæmi, sem mun vera olía á eld vandamála vegna landsvæða um allan heim og verða réttlæting ofbeldis af hálfu ríkis gegn minnihlutahópum. Þjóðaratkvæðið í Katalóníu 2017 er afdrátt- arlaus áminning um mikilvægi landamæra og fullveldis smærri ríkja og sjálfstjórnarsvæða í heimi okkar tíma. Í stað þess að vera rót löngunar eftir yfirráðum ætti að líta á það sem tilefni til að iðka lýðræði og valddreifingu til að valdefla fólk, sem ýtt hefur verið út á jaðarinn og endurskoða mæri, sem mann- kynssagan hefur þröngvað upp á það. Lítið land eins og Danmörk, sem er með 7,7 milljónir íbúa, getur stjórnað sér með skil- virkum hætti án þess að grannríkin gleypi það. Katalóníu með 7,5 milljónir íbúa myndi vegna betur sem sjálfstæðu ríki undir regn- hlíf Evrópusambandsins. Smærri ríki hafa meiri ástæðu en stór til að fara með friði og vera opin fyrir viðskiptum. Án innri markaðar til að reiða sig á þurfa lítil ríki að vera í góðum samskiptum við ná- granna og bandamenn um allan heim. Það er engin tilviljun að í Danmörku og Svíþjóð hafi jafnvel stéttarfélög tilhneigingu til að styðja samninga um frjáls viðskipti. Og á meðal þeirra tíu ríkja, sem búa við hvað mesta vel- megun og lýðræði, er íbúafjöldinn í að minnsta kosti helmingi þeirra undir tíu millj- ónum og þau styðja mannréttindi um allan heim. Þau hafa minni áhyggjur af yfirráðum yfir landi en lífi borgaranna innan þeirra vé- banda. Til að auðvelda svæðum eins og Katalóníu að finna öryggi og sjálfstæði gætum við litið til fordæmanna frá Bretlandi og Kanada. Kanadísk stjórnvöld skipulögðu tvær at- kvæðagreiðslur í Quebec 1980 og 1995 og bresk stjórnvöld féllust á að skipuleggja at- kvæðagreiðslu í Skotlandi 2014. Það er ekki bara til marks um lýðræði í verki heldur for- skrift fyrir lönd um allan heim um hvernig leysa eigi átök um land um víða veröld. Borgararnir eiga eða vera í fyrirrúmi þegar landamæri heims eru endurskoðuð. Ef þeir geta valið sína framtíð, munu ríki, sem ná sjálfstæði án ofbeldis og með lýðræðislegum hætti, ryðja brautina til að opið lýðræði megi blómstra um allan heim. ©2019 The New York Times Syndicate og Carles Puidgemont. Á vegum The New York Times Licensing Group. Mótmælendur gengu undir katalónskum aðskilnaðarfána í Barselóna á Spáni þegar blásið var til allsherjarverkfalls í Katalóníu í október og höfðu margir breytt fánum sínum í skikkjur. Albert Gea/Reuters Ágreiningur um landsvæði ætti að snúast um að valdefla borgarana, ekki stjórna þeim. CARLES PUIGDEMONT var 130. forseti Katalóníu á árunum 2016 til 2107. Þessar ólýðræðislegu aðferðir við að taka á landamæradeilum og sjálfstæð- ishreyfingum hafa búið til fordæmi, sem mun vera olía á eld vandamála vegna landsvæða um allan heim og verða réttlæting ofbeldis af hálfu ríkis gegn minnihlutahópum. TÍMAMÓT: BORIS JOHNSON GEKKST VIÐ AÐ N-ÍRLAND GÆTI VERIÐ HLUTI AF EINUM MARKAÐI YFIR ALLA EYNA ’’ Úrelt landamæri eru að kæfa opið lýðræði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.