Morgunblaðið - 28.12.2019, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29. 12. 2019 37
Að minnsta kosti 250 létust og um 500 til viðbótar særðust þegar ráðist var á kirkjur og hótel í
Srí Lanka á páskadag. Átta sprengjuárásir voru gerðar og hófust þær við guðsþjónustu í
nokkrum kirkjum áður en ráðist var á hótelin. Stjórnvöld lokuðu stórum hlutum höfuðborgar-
innar Colombo meðan sökudólganna var leitað, en Ríki íslams lýsti yfir ábyrgð.
Adam Dean/The New York Times
Sprengingar á páskadag í Srí Lanka
Ein fjölmennustu mótmæli í sögu
Hong Kong áttu sér stað í júní þeg-
ar fjöldi fólks streymdi út á götur
borgarinnar til þess að mótmæla
fyrirætlunum stjórnvalda um að
setja lög um framsal til meginlands
Kína. Mótmælt var nær daglega í
kjölfarið og voru helstu umferðar-
æðar stundum stíflaðar. Gagnrýn-
endur frumvarpsins höfðu áhyggj-
ur af því að ef framsal yrði leyft
myndu stjórnvöld nota þá heimild
til að senda pólitíska andófsmenn í
sjálfsstjórnarhéraðinu Hong Kong
til að vera dæmdir í Kína.
Ungir sem aldnir hafa tekið þátt í
mótmælunum sem hafa þróast yfir í
andóf gegn síauknum ítökum
stjórnvalda í Peking yfir málefnum
Hong Kong.
Lam Yik Fei/The New York Times
Mótmæli í
Hong Kong
Krónprins Taílands, Maha Vajiralongkorn, tók við krúnu landsins eftir þriggja daga hátíða-
höld, en nærri sjö áratugir voru þá liðnir frá því að faðir hans tók við konungdæminu. Hann
hafði þá verið krónprins frá árinu 1972. Margir af þegnum hans höfðu því aldrei áður séð
konung ríkisins, sem er mikilvægt sameiningartákn, krýndan áður.
Jorge Silva/Reuters
Prins verður að konungi
Stjórnvöld á Taívan urðu þau fyrstu í Asíu til þess að lögleiða hjónabönd fólks af sama kyni í
maímánuði. Lagasetningunni var fagnað mjög fyrir utan þinghús eyjunnar, en barist hafði
verið fyrir þessum rétti í fjölda áratuga. Eyjan þykir framarlega í heimsálfunni þegar kemur að
réttindum hinsegin fólks og er fjölmenn pride-ganga haldin á ári hverju.
Tyrone Siu/Reuters
Fyrstu hinsegin hjónaböndin í Asíu
New York-borg hélt upp á sína árlegu Pride-göngu hinn 30. júní, en þá voru liðin 50 ár frá
mótmælunum sem urðu við Stonewall Inn-barinn 1969 eftir að lögreglan hafði gert þar
rassíu. Þau mótmæli urðu upphafið að réttindabaráttu samkynhneigðra, en fyrsta Pride-
gangan var farin ári síðar. Fögnuðurinn markaði hápunkt Pride-mánaðar í New York.
Calla Kessler/The New York Times
Hálf öld frá Stonewall-óeirðunum