Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 18

Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 18
Það er brosmilt og ánægjulegt fólk sem bíður útsendara Frétta-blaðsins í Ráðhúsinu á Hvammstanga. Þetta eru sýrlenskar f jöl- skyldur sem settust að þar í bæ síðastliðið vor, ásamt verkefnis- stjórunum Liljönu Milenkoska hjúkrunarfræðingi og Guðrúnu Margréti Guðmundsdóttur mann- fræðingi. Okkur langar að for- vitnast um líf Sýrlendinganna þetta rúma hálfa ár sem þeir hafa átt heima hér á Íslandi. Þótt sumir þeirra hafi þegar náð ótrúlegum tökum á íslenskunni þá er freist- andi að biðja Guðrúnu að bera upp spurningarnar, því hún kann arab- ísku. Það er heppni að hafa slíka manneskju við höndina. Fyrst spurt um líðan sína frá því það tók hér land er flóttafólkið sam- mála um að hún hafi verið góð og það sé ánægt. „Meðan við höfum verkefnastjóra eins og Liljönu og Guðrúnu til aðstoðar þá eru hlut- irnir í lagi,“ segir einn í hópnum glaðlega og hin taka undir það. Þau vilja koma þakklæti sínu á fram- færi og tala við Guðrúnu, hvert í kapp við annað, hún hlustar af gaumgæfni og túlkar. „Þau segjast einskis sakna nema fólksins síns, heimabæjarins og gamla lífsins eins og það var fyrir stríð. Vissulega yfirgáfu þau stórfjölskyldur sínar og sakna þeirra en eignuðust nýjar stuðningsfjölskyldur og vini hér sem hjálpa þeim með allt sem þarf. Í sumum tilfellum eru stuðningsfjöl- skyldurnar næstu nágrannar og þó svo sé ekki þá eru vegalengdirnar litlar í þessum bæ. Hér finnur fólk- ið öryggi og er ánægt með að hafa tækifæri til menntunar og atvinnu. Það viðurkennir samt að veðrið sé stundum búið að vera því erfitt en þó hafi í raun gengið ótrúlega vel að venjast því.“ Eins og við værum heima Vegna stríðsins í Sýrlandi f lúði þetta fólk upphaf lega þaðan til Líbanon. Þar beið þess dvöl í þrjú til fimm ár við slæman aðbúnað, kröpp kjör og mikla fordóma. Einn maðurinn getur þess að það hafi verið sérstaklega sterk upplifun að fá hinar hlýju móttökur Íslendinga eftir það sem á undan var gengið. Þetta hafi verið í ramadan sem sé mikilvægur mánuður í trúar- lífi múslima og þeim hafi komið á óvart að heimamenn í Húnavatns- sýslunum skyldu taka tillit til þess. Efnt hafi verið til kvöldveislu með sýrlenskum réttum sem sýrlenskur kokkur hafi útbúið og eins hafi fólk boðið þeim í mat í heimahúsum. „Já, okkur leið strax eins og við værum heima,“ tekur ein konan undir. Allir í hópnum voru staðráðnir í því frá upphafi að læra íslensku, að sögn Guðrúnar Margrétar. Þegar hún spyr þá hversu erfitt það sé – á skalanum 1 til 10 – verður niður- staðan 3 og þessi setning: „Auðvitað er íslenskan mjög erfið en þegar maður er ákveðinn í að læra hana þá er það bara verkefni að takast á við.“ Börnin fengu öll blöð og blýanta og keppast við að teikna meðan á heimsókn okkar Antons ljósmynd- ara stendur, en láta líka í sér heyra. „Sjáðu, Liljana,“ segir ein stúlkan á skýrri íslensku og sýnir Liljönu mynd. Að sögn Guðrúnar Margrétar leggja Sýrlendingarnir sig fram í íslenskunáminu. Hún segir f lestum þeim fullorðnu hafa gengið vel að fá vinnu og nefnir að tveir menn úr hópnum hafi unnið sem slátrarar í sláturhúsinu á Hvammstanga og fengið að nota gömlu íslensku aðferðina, að láta kjötið blóðrenna vel. Það sé múslimum þóknanlegt. Nýju krakkarnir á Hvammstanga AUÐVITAÐ ER ÍSLENSKAN MJÖG ERFIÐ EN ÞEGAR MAÐUR ER ÁKVEÐINN Í AÐ LÆRA HANA ÞÁ ER ÞAÐ BARA VERKEFNI AÐ TAKAST Á VIÐ. Við viljum taka þátt í öllu Fimm sýrlenskar fjölskyldur bættust í hóp íbúa á Hvammstanga í maí síðastliðnum, eftir flótta frá heimalandi sínu. Við tók aðlögun að ólíku umhverfi og veðurfari, nýjum siðum og menningu – sem virðist ganga vel. Aftari: Aisha, Mohamad, Yazan, Lamis, Ahmed, Najeb, Sabah, Latifah, Abdulwahab. Fremri: Abdelbaset, Ali, Asmaa, Khaled, Samera, Adnan, Mohamad Salem, Diana, Khalil. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hér eru hjálparhellurnar Guðrún Margrét (til vinstri) og Liljana (til hægri) með Ahmed, Lamis, Yasan og Adnan. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.