Fréttablaðið - 28.12.2019, Síða 35

Fréttablaðið - 28.12.2019, Síða 35
Verslunin Sportvörur er oft kölluð „Dótabúð íþrótta-fólksins“. Þar má finna vörur frá RJR, 2XU, On, Concept2, Assault Fitness, Foodspring, SKLZ, TRATAC, Rehband, Harbinger, TriggerPoint og fleiri þekktum íþróttavörumerkjum. Sportvörur starfa bæði á smásölu- og heildsölusviði og reka öfluga netverslun þar sem hægt er að sjá og panta allar þær vörur sem verslunin býður upp á www. sportvorur.is. Stefán Logi Magnússon versl- unarstjóri segir starfsfólk hafa ástríðu fyrir íþróttum. „Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu og bjóðum upp á gæðaíþróttavörur frá þekktum vörumerkjum sem hjálpa okkar viðskiptavinum að ná markmiðum sínum. Við sér- hæfum okkur í æfingatækjum, lyftingavörum, bardagavörum og hlaupavörum ásamt því að bjóða upp á hágæða fæðubótarefni, íþróttafatnað og skó fyrir alhliða líkamsrækt.“ Vinsælt að æfa heima Stefán bendir á að tíminn verði sífellt dýrmætari í samfélagi nútímans. „Hraðinn er mikill í þjóðfélaginu og fólk er oft mjög upptekið, sérstaklega fjölskyldu- fólk og kemst ekki mikið frá til að fara á æfingar í hefðbundnum líkamsræktarstöðvum,“ segir hann. „Við höfum orðið vör við að fólk leitar til okkar í meira magni en áður til að kaupa sér æfinga- tæki, bæði stærri og minni, sem hægt er að nota heima. Tíminn er fjölskyldufólki dýrmætur og hægt er að taka góðar æfingar á stuttum tíma heima fyrir án þess að leggja í mikla fyrirhöfn við að keyra, fá pössun, sækja, fara í sturtu og svo framvegis. Fjölskyldan getur jafnvel æft saman á heimilinu sem gerir æfinguna þá líka að gæða- samverustund. Hann segir að stór hluti þjónustunnar felist í ráðgjöf til heimaæfinga. „Fólk leitar til okkar daglega með ýmiss konar ráðlegg- ingar, ekki bara til að kaupa sér æfingafatnað og skó heldur líka til að fá ráð með æfingatæki. Það er augljóst að flesta íþróttaálfa dreymir um að hafa æfingaað- stöðu heima hjá sér en svo er líka hvetjandi fyrir önnum kafið fólk að geta sinnt æfingum heima og minnkað tímann sem fer í allt í kringum æfinguna.“ Hann segir að fólk kaupi alls konar græjur, frá smáu og upp í stórt. „Þetta er allt frá nokkrum teygjum og ketilbjöll- um upp í stór „heima-gym“ sem fólk er að setja upp í bílskúrnum sínum. Enda eru þarfirnar mis- jafnar. Sumir þurfa, geta eða vilja hafa fullbúið æfingastúdíó heima hjá sér þar sem þeir geta æft þegar þeim hentar á meðan aðrir vilja geta tekið léttari æfingar heima en fara svo í líkamsræktarstöð kannski einu sinni tvisvar í viku fyrir harðari æfingar með fleiri tækjum.“ Ný verslun á Dalvegi 32a Verslunin flutti nýverið í stórt og glæsilegt húsnæði að Dalvegi 32a. Í versluninni er að finna hágæða íþróttavörur fyrir alla, byrjendur jafnt sem keppnisfólk. „Við viljum að viðskiptavinir okkar geti komið og ekki bara séð vörurnar okkar í versluninni, heldur prófað þær líka, hvort sem það er að skella sér í On hlaupaskó og hlaupa á okkar vinsælu RJR hlaupabrettum eða rífa hreinlega í lóðin á lyftingasvæðinu. Verslunin hefur í gegnum tíðina orðið hálf- gerð félagsmiðstöð fyrir fastakúnn- ana okkar sem koma aftur og aftur og stundum bara til að skoða nýjar og spennandi vörur.“ Hann segir möguleikana hafa stóraukist með stærri verslun, bæði hvað varðar magn, úrval og gæði. „Það er okkar mark- mið að vera með það nýjasta og ferskasta á markaðnum og við leggjum metnað í að fylgjast vel með nýjungum og fréttum af því sem er að gerast í heimi íþrótta og heilsu,“ segir Stefán og bætir við: „Og það er ekki síður mikilvægt að fólki finnist almennt gaman að koma í verslunina til okkar.“ Þá segir hann starfsfólkið boðið og búið að aðstoða viðskiptavini við val á búnaði sem hentar hverjum og einum, hvort sem um er að ræða byrjendur eða lengra komna. „Við vonum að sem flestir leggi leið sína til okkar og skoði hvað við höfum upp á að bjóða,“ segir Stefán Logi að lokum. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni sportvorur.is. Dótabúð íþróttafólksins Verslunin Sportvörur flutti nýverið í nýtt og glæsilegt húsnæði að Dalvegi 32a þar sem gefst kostur á að bjóða enn meira úrval þekktra íþróttavörumerkja og hægt er að fá að prófa vörurnar. Í Sportvörum má finna allar stærðir af ketilbjöllum auk fjölda tegunda af lyftingavörum og líkamsræktartækjum. Í nýrri og glæsilegri verslun á Dalvegi 32a má finna fjölbreytt úrval af hágæða íþróttavörum fyrir alla, byrjendur jafnt sem keppnisfólk. Allir sem koma í Sportvörur geta fengið að prófa On hlaupaskóna á tveimur mismunandi hlaupabrettum, bæði kúptu og hefðbundnu. Stefán Logi Magnússon verslunarstjóri segist finna fyrir auknum áhuga fólks á því að koma sér upp æfingaaðstöðu heima fyrir. MYND/ERNIR Foodspring eru hágæða fæðubótarefni frá Þýskalandi. Úrval af amínó- sýrum, próteinum, vegan vörum og öðrum lífrænum vörum. KYNNINGARBLAÐ 9 L AU G A R DAG U R 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 HEILSA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.