Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.12.2019, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 28.12.2019, Qupperneq 36
Í jóga er því haldið fram að uppsöfnuð gremja og neikvæð orka sé geymd í mjöðmunum ef ekki er losað um reglu- lega. Það getur safnast mikil spenna í mjöðmunum án þess að við tökum sérstaklega eftir því,“ segir Nadia sem finnst fólk almennt vanrækja á sér mjaðm- irnar. „Árin líða og aldrei dettur okkur í hug að teygja á þessu svæði sérstaklega. Í jóga er því haldið fram að uppsöfnuð gremja og neikvæð orka sé geymd í mjöðm- unum ef ekki er losað um reglu- lega. Mjaðmirnar eru líka fyrir miðju líkamans, stirðleiki á því svæði getur haft mikil áhrif á það hvernig við göngum og beitum okkur.“ Hún talar af persónulegri reynslu. „Ég hef ekki alltaf verið stíf í mjöðmunum, enda hef ég verið magadansari í tólf ár. Hins vegar hafa verið tímabil í lífi mínu þar sem ég finn til í mjöðmunum, sem lýsir sér helst í því að mér líður eins og ég sé með stöðugar harðsperrur á þessu svæði þrátt fyrir að hafa ekki reynt neitt sér- staklega á mig. Það var ekki fyrr en ég fór að stunda jóga í New York þar sem ég fór að finna fyrir svakalegri líkamlegri og andlegri breytingu eftir djúpar teygjur á mjöðmunum. Einn kennarinn sagði mér að formæður mínar væru í mjöðmunum og væri ég að sligast áfram í gegnum lífið með sársauka þeirra allra sem mér fannst frekar magnað að sjá fyrir mér. Einnig heldur mjaðmasvæðið utan um uppruna sköpunarinnar eða the sacral chakra og því er bein tenging á milli þess að finna til í mjöðmunum og vera með rit- stíflu til að mynda eins og gerðist í mínu tilfelli þar sem hið kreatíva fær ekki að flæða og orkan festist. Það verða einhverjir töfrar þegar losað er um mjaðmirnar.“ Bakgrunnur Nadiu í dansi kemur úr hipphoppi, afró, salsa og magadansi. „Ég er mjög víðsýn þegar það kemur að dansi og finnst erfitt að halda mig einungis við einn stíl. Ég er nýflutt heim frá New York en þar stundaði ég nám í handritsgerð fyrir sjón- varp og kvikmyndir. Samhliða því var ég í jóga, afró-haítískum dönsum, kutiro-dansi frá Sene- gal og afrobeat og námskeiðið í Kramhúsinu verður sambland af þessu öllu. Allir þessir dansar eiga það sameiginlegt að gefa mikla orku og fylgja grunntaktinum í lífinu, hjartslættinum. Mottóið mitt í lífinu núna er að dansa eftir hjartanu og opna fyrir sköpunina með því að losa mjaðmirnar. Með þessu námskeiði vonast ég til þess að geta hjálpað fólki að finna mjaðmirnar á sér en námskeiðið verður þó aðallega skemmtilegt og fullt af orku og hressleika. Það verður mikið svitnað, mikið púl og alveg sjúklega skemmtileg tónlist. Ég mun ekkert vera að ræða mikið alvarleika mjaðmanna heldur leiði ég nemendur áfram til þess að opna sig líkamlega.“ Eins og áður sagði er Nadia nýflutt heim frá New York og er með mörg járn í eldinum. „Ég er að vinna að tveimur handritum fyrir sjónvarp sem landsmenn fá von- andi að sjá næstu á árum og verð með á kabarettsýningunni Búkalú í janúar þar sem ég verð fyndin og sennilega nakin. Ef ég þekki mig rétt mun fólk sjá mikið af mér á næsta ári. Bíðið þið bara,“ segir Nadia að lokum og glottir. Mjaðmanámskeið Nadiu hefst 15. janúar í Kramhúsinu og verður alla miðvikudaga kl. 20.45. Neikvæðnin safnast fyrir í mjöðmunum Þórdís Nadia Semichat dansari, uppistandari og handritshöfundur mun hrista upp í mjöðmum landans á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Þórdís Nadia Sem ichat, dans- ari, uppistandari og handritshöf- undur er nýlent frá New York þar sem hún bjó við nám og störf og kynntist mjöðm- unum á sér á alveg nýjan hátt. Hún mun deila þekkingu sinni á námskeiði í Kramhúsinu eftir áramótin. Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is 15-25% afsláttur Nicotinell getur hjálpað þér áleiðis! Nikótíntyggjó, munnsogstöflur eða nikótínplástur. Viltu draga úr reykingum eða hætta alveg? Fæst í öllum verslunum Lyfju. Gildir til 31. janúar 2020. Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaks- fíkn. Til notkunar í munnhol, til notkunar á húð. Má ekki nota handa börnum yngri en 18 ára. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. 25% afslát tur 15% afslát tur 20% afslát tur 10 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RHEILSA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.