Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 46

Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 46
VIRK starfsendurhæfingarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir um styrki til verkefna sem auka fjölbreytni og framboð úrræða í starfsendurhæfingu og styrki til rannsókna sem stuðla að uppbyggingu og auka við almenna þekkingu á starfsendurhæfingu á Íslandi. Veittir eru styrkir til virkniúrræða, rannsóknarverkefna og uppbyggingar- og þróunarverkefna einu sinni á ári og þurfa umsóknir um styrkina að hafa borist sjóðnum 15. febrúar. Aðeins umsóknir sem uppfylla allar reglur um styrki VIRK eru teknar til greina. Nánari upplýsingar, stefnur og reglur varðandi umsóknir og umsóknareyðublöð má finna á www.virk.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2020. Styrkir VIRK 2020 Styrkir úr þróunarsjóði innflytjendamála 2019-2020 Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála 2019-2020. Hlutverk sjóðsins er að efla rannsóknir og styðja þróunarverkefni á sviði málefna innflytjenda með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags. Við ákvörðun um styrkveitingar verður lögð áhersla á eftirfarandi: • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem tengjast börnum og ungmennum af erlendum uppruna. • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem styrkja grasrótarsamtök innflytjenda og auka sýnileika þeirra og virkni í samfélaginu. • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem tengjast vinnumarkaðsmálum innflytjenda. • Önnur rannsóknar- og þróunarverkefni er varða málefni innflytjenda koma einnig til álita. • Með vísan í aðgerð A.5. í framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2016-2019 er sérstaklega óskað eftir umsóknum félags- og hagsmunasamtaka innflytjenda til þess að skipuleggja og standa fyrir innflytjendaþingi árið 2020. Markmið með innflytjendaþingi er að efla lýðræðislega þátttöku innflytjenda, efla samstarf félaga- og hagsmunasamtaka innflytjenda, áhrif þeirra á hagsmunamál sín og þátttöku þeirra í stjórnmálum. Styrkir verða veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Félags- og hagsmunasamtök innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um. Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Að þessu sinni verða 25 milljónir króna til úthlutunar og geta styrkir að hámarki numið 75% af áætluðum heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um jafnt á íslensku og ensku. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 föstudaginn 31. janúar 2019. Vakin er sérstök athygli á að einungis er unnt að sækja um rafrænt og er umsóknarformið aðgengilegt á eyðublaðavef Stjórnarráðsins (minarsidur.stjr.is). Vísað er á nánari upplýsingar um þróunarsjóðinn á vef Stjórnarráðsins, meðal annars reglur þróunarsjóðs innflytjendamála með nánari upplýsingum um skilyrði fyrir styrkveitingum. Í janúar mun innflytjendaráð standa fyrir opnum kynningarfundi fyrir væntanlega umsækjendur um umsóknarferlið, áherslur ársins og reglur sjóðsins. Nánar auglýst síðar. Frekari upplýsingar fást í félagsmálaráðuneytinu í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið frn@frn.is. Trúnaðar er gætt við meðferð allra umsókna. ÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið Ríkiskaup fyrir hönd Þjóðleikhússins óska eftir tilboðum í eftirfarandi ljósbúnað: • Hreyfiljós Spot/Profile • Hreyfiljós Wash • Fastljós Wash • Upphengjur fyrir ofangreint Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi. Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ), miðvikudaginn 18. nóvember nk. Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015, kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Ríkiskaup Allar útboðsauglýsingar eru birtar á utbodsvefur.is Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur opinberra útboða. Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða tilkynningar um fyrirhuguð i nkaup opinberra aðila sem falla undir lög og reglugerðir um opinber innkaup. Sérfræðingar í ráðningum FAST Ráðningar www.fastradningar.is lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is 4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.