Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 48

Fréttablaðið - 28.12.2019, Page 48
 Í stuttu máli þá dregur sjampó olíu og fitu úr hárinu auk þess að hreinsa önnur óhreinindi.Það eru skiptar skoðanir á því hversu oft er skynsamlegt að þvo hár sitt með sjampói. Margir þeirra sem fara í sund eða æfa á hverjum degi telja það nauðsynlegt en vaxandi meirihluti þeirra sem hafa hár að áhugamáli eða atvinnu telja að það sé betra að minnka sjampónotkun töluvert og sumir hafa jafnvel látið af allri sjampónotkun í þeirri viðleitni að fá fallegra og heilbrigðara hár. Sérfræðingar segja að það sé ekkert eitt rétt svar við því hversu oft beri að nota sjampó en að yfirleitt þvoi flestir hár sitt með sápu oftar en þörf er á. Þó skipta ýmsir þættir máli, til dæmis hárgerðin, ástand höfuðleðurs og hversu mikið af efnum og hjálpartækjum þú notar í hárið á degi hverjum. Sumir hársérfræðingar ráðleggja fólki að nota sjampó eins lítið og það kemst af með þar sem sjampó getur gengið á náttúrulegar olíur hársins og þar með stuðlað að vítahring daglegra þvotta þar sem hárið er líflaust og matt og það eina sem bjargar því er hárþvottur en bara í stuttan tíma og svo fer allt í sama farið aftur. Ekki eru allir meðvitaðir um hvernig sjampó virkar í hárinu. Í stuttu máli þá dregur sjampó olíu og fitu úr hárinu auk þess að hreinsa önnur óhreinindi svo það þurrkar hárið að þvo það of oft sem getur svo aftur leitt til slits, að sögn húðsjúkdómalækna sem hafa rannsakað hárheilbrigði í Banda­ ríkjunum. Þeir benda á að hárið framleiði olíu sem er stuðlar að heilbrigði þess sem sjampóið leysi upp um leið og það leysir upp aukafitu, skaðleg óhreinindi og leifar af hár­ vörum. Í stuttu máli sagt þá er allt í lagi með sumt sem finnst í hárinu og olíurnar náttúrulegu eru sannar­ lega í þeim hópi því þær bæði gefa raka og verja hárið sliti og skað­ legum umhverfisáhrifum. Sérfræðingarnir eru einnig sam­ mála um að þó að fæstir ættu að Hárþvottur þegar hentar Það færist í vöxt að fólk þvoi hár sitt aðeins vikulega eða jafnvel sjaldnar. Húðsjúkdómalæknar mæla frekar með því að spara sjampóið en segja hárþvottaþörf þó mjög einstaklingsbundna. Margir sjá mjög jákvæðan mun á hárinu eftir að breyta þvotta- venjum yfir í einu sinni í viku. NORDICPHOTOS/ GETTY Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is þvo hár sitt daglega með sjampói þá ættu þau sem hafa afar fíngert hár, þau sem æfa mikið og svitna mikið daglega og þau sem búa við hátt rakastig að hugleiða daglegan hárþvott. Ef hársvörðurinn er fitugur er nauðsynlegt að þvo hárið daglega en því þykkara og þurrara sem hárið er, því minni þörf er fyrir sjampó. Venjulegt fólk með venju­ legt hár kemst vel af með að þvo hárið aðeins á þriggja daga fresti. Ef það er fitugt, kláði í hársverði eða sýnilega skítugt ber auðvitað að þvo hárið. Ef hárið er uppgreitt er hægt að komast lengur af án þvotta. Það er vel hægt að komast af með að þvo hárið bara einu sinni í viku með sjampói en ráðlagt er að láta ekki meira en tvær vikur líða, sérstaklega ef vandamál í hársverði eru fyrir hendi. Þá er hægt að lengja tímann milli þvotta með því að nota þurr­ sjampó eða bleyta hárið og setja næringu en ekki sjampó. Það er þó alltaf persónuleg ákvörðun hvers og eins hversu oft honum hentar að þvo á sér hárið. Það færist í vöxt að láta einn þvott í viku nægja og þau sem aðhyllast það segja hárið vera heilbrigðara, slitsterkara og meira gljáandi, ekki síst vegna þess að hárþurrkan fær þá frí samhliða sjampóinu. Heimild: webmd.com. Fyrir ári var þjálfunar stöðin Train Station opnuð að Dugguvogi 4 í Reykjavík. Stöðin er í eigu tveggja þjálfara, Sifjar Garðarsdóttur og Guð­ jóns Inga Sigurðssonar sem bæði hafa víðtæka reynslu sem einka­ þjálfarar og styrktarþjálfarar auk þess sem Sif er heilsumarkþjálfi. Stöðinni hefur verið afar vel tekið enda áherslan á einstaklinginn. „Fólk er í auknum mæli farið að sækja í þjálfun í hóp þar sem einn þjálfari hefur yfirumsjón yfir öllum hópnum og þar af leiðandi vantar oft upp á faglega hlutann, því við erum svo sannarlega ekki öll eins,“ segir Guðjón Ingi og Sif samsinnir því. „Við erum að stíga millistigið þarna á milli þess að vera í einkaþjálfun en njóta þess samt að æfa í hóp.“ Þau leggja áherslu á að koma til móts við fólk þar sem það er frekar en eftir einhverjum almennum viðmiðum. „Okkur fannst vanta líkamsrækt þar sem fólk gæti treyst því að það fengi faglega aðstoð við þjálfun nákvæmlega þar sem það er statt,“ segir Sif og Guðjón Ingi bætir við: „Og okkur fannst ekki síður mikilvægt að bjóða upp á heimilislegt andrúms­ loft ásamt aðgengi að fullbúinni aðstöðu til styrktarþjálfunar.“ Þau Sif og Guðjón leggja eins og áður sagði mikla áherslu á að veita einstaklingsbundna þjálfun og þjónustu. „Í byrjun setjumst við niður með skjólstæðingum okkar, förum yfir heilsufarssögu, líkams­ ástand, líkamsstöðu og næringu og setjum síðan upp áætlun í kringum hvern og einn,“ segir Sif. „Það vill svolítið loða við að það sé bara nánast öllum illt einhvers staðar, hvort sem það er í öxl­ unum, bakinu, mjöðmunum eða hnjánum og þess vegna er mikil­ vægt að vinna með hvern og einn út frá þeirri stöðu sem hann eða hún er í.“ Guðjón bendir á að hver líkami sé einstakur og dýrmætur. „Áherslur okkar í grunninn miða að því að vinna með svæðin sem eru að trufla okkur og byggja síðan á þeim grunni. Þjálfunin þarf að vinna með líkamann, þennan eina sem við fáum og byggja okkur upp til lengri tíma. Það langar engan að vera óferðafært gamalmenni.“ Þau segja kerfið sitt byggt upp á alhliða styrk­, liðleika­ og hreyfan­ leikaþjálfun. „Við framkvæmum æfingar með eigin líkamsþyngd, stöngum, handlóðum, ketilbjöll­ um, trx, teygjum og síðan Pilates æfingakerfinu fyrir grunnkerfið.“ Sif og Guðjón bjóða upp á fría æfingaviku án skuldbindinga í Train Station og hvetja fólk til að nýta sér þetta tilboð. „Fólk er oft að spyrja fyrir hvern þessi stöð sé,“ segir Guðjón Ingi. „Því er f ljótsvarað: í Train Station æfir fjölbreyttur hópur, allt frá 10 ára áhugamönnum um styrktar­ þjálfun upp í 75 ára ofurmenni.“ Sif tekur undir: „Það eru allir vel­ komnir til okkar.“ Við erum ekki öll eins Train Station í Dugguvogi er rekin af þjálfurunum Sif Garðarsdóttur og Guðjóni Inga Sigurðssyni sem leggja áherslu á að veita einstaklingsbundna þjónustu og þjálfun. Sif Garðarsdóttir og Guðjón Ingi Sigurðsson stofnuðu Train Station til að koma til móts við óskir fólks um einstaklingsbundna þjálfun. Umsögn viðskiptavinar: „Elska þessa stöð og þjálfara. Þau hafa hjálpað mér af stað úr meiðslum og loksins finnst mér gaman að æfa þó erfitt sé. Ég hlakka alltaf til næsta tíma sem er mjög óvanalegt. Ég mæli með Train Station fyrir alla þá sem eru óöruggir í ræktinni og vilja fá faglega hjálp til að gera æfingarnar rétt. Þau Sif og Guðjón eru fagmenn fram í fingur- góma og einstaklega skemmtileg, hvetjandi og indæl. Þau veita mik- inn andlegan stuðning og styrk á æfingum og aðlaga æfingarnar að þér. Einmitt eitthvað sem ég hef aldrei kynnst hjá öðrum þjálfurum. Ég er að minnsta kosti komin til að vera.“ Ásta Soffía 18 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RHEILSA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.