Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.12.2019, Qupperneq 84

Fréttablaðið - 28.12.2019, Qupperneq 84
Lífið í vikunni 22.12.19- 28.12.19 ÁÐUR EN VIÐ SÁUM MYNDINA HÉLT GÚRÝ AÐ ÞETTA VÆRI EINHVER MARVEL-MYND EN EFTIR AÐ VIÐ SÁUM HANA ÞURFTI EKKERT AÐ RÆÐA ÞETTA FREKAR. SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is FRANSKBRAUÐ EKKI ÞAÐ VERSTA FYRIR BÖRN Ný uppsetning hins sígilda leikverks Kar- íus og Baktus eftir Thor- björn Egner verður aðeins 45 mínútur að lengd og er ætluð til að kynna töfra leikhússins fyrir ungum krökkum í fyrsta sinn. ALLIR ÞURFA SMÁ TÖFRA, UMHYGGJU OG KÁTÍNU Skoppa og Skrítla fóru af stað með nýja þáttaröð á Stöð 2. Þær segja að á ferli sínum hafi þær lært að börn um allan heim eigi það sam- eiginlegt að vilja finna kærleika, umhyggju og kátínu. FLAKKAÐ UM HEIMINN Á JÓLUM Christina Van Deventer og Bragi Valsson hafa farið öfga og heims- álfa á milli um jól. Grillað jólamatinn á stutt- buxum í Afríku og fennt í kaf á Ströndum í sögulegum veður- ofsa að- vent- unn- ar. TÓNLISTARVEISLA Á HRESSÓ Í gær fór fram sannkölluðu tónlist- arveisla á Hressó við Austurstræti. Þar kom fram tónlistarkonan Sigurlaug Gísladóttir, einnig þekkt sem Mr. Silla. Einn- ig komu fram á tónleikunum tónlistar- maðurinn Jae Tyler og Katrín Helga Andrés- dóttir, eða Special K. Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði Mögnuð tilboð í fjórum búðum Afgreiðslutími Rvk Mán. til fös. kl. 11–18.30 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR Janúar útsalan HEFST Í DAG www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN Rammar eru þær taugar sem hjónin Jónas Breki Magnússon gullsmiður og Gúrý Finnboga-dóttir, fata- og skart-gripahönnuður, bera til hryllingsmynda og þar með skugga- hliða tilverunnar og mannssálarinn- ar. Þau hafa því í fimm ár sent vinum og vandamönnum hryllileg jólakort þeim til ánægju og yndisauka. Jónas Breki segir fjölskylduna alla sameinast af heilum hug í þessari hefð og þeim finnist í raun ekkert eðlilegra en bregða sér í hryllilegra kvikinda líki á aðventunni og taka síðan bókstaflega Strikið fram hjá gapandi vegfarendum alla leið í Tív- olí þar sem þau stilla sér upp á mynd með jólasveininum. Jólasveininn sem varð þess skelfilega heiðurs aðnjótandi að fá að vera á mynd með fjölskyldunni fyrir tveimur árum þegar þau voru morðóði trúðurinn Pennywise úr IT, sem gerð var eftir samnefndri hryll- ingssögu Stephens King, og í fyrra þegar þau voru ógeðslega nunnan úr The Nun, var fjarri góðu gamni í ár. Því miður kannski þar sem hann er orðinn ýmsu vanur í desember þegar Gúrý og Jónas birtast með börnunum. „Því miður var þetta ekki sá sami og undanfarið heldur þriðji mismunandi jólasveininn sem við hittum,“ segir Jónas Breki nýkominn úr fjölskylduleiðangri um Köben. „Þeir taka okkur samt alltaf jafn vel en minna okkur þó á að það eru jól en ekki hrekkjavaka.“ Jókerinn er vitaskuld þekktastur sem erkifjandi Leðurblökumanns- ins sem er þó fjarri gráu gamni í upprunasögu illmennisins sem er ein umdeildasta kvikmynd ársins sem er að líða, lofuð og löstuð af jafn miklum ákafa. Minna var aftur á móti deilt um að túlkun Joaquins Phoenix á sál- sjúkum glæpamanninum hafi verið frábær, ekki síst vegna stuðnings frá tónlist Hildar Guðnadóttur, sem gerði hann aftur gjaldgengan hjá hinni íslensku Addams-fjölskyldu í Danmörku. „Þetta var rætt fram og til baka. „Við höfum reynt að hafa hrollvekju- þema í tengslum við einhverja mynd sem kemur út sama ár og myndin er tekin fyrir kortið,“ segir Jónas Breki og bætir við að Gúrý hafi ekki bitið alveg strax á öngul Jókerisins. „Áður en við sáum myndina hélt Gúrý að þetta væri einhver Marvel- mynd en eftir að við sáum hana þá þurfti ekkert að ræða þetta frekar,“ segir Breki sem vill ekki gera grein fyrir þeim hugmyndum sem urðu undir eftir að Joaqin Phoenix seldi þeim Jóker-gervið sitt. „Eitthvað af því gæti kannski endað á korti næstu jóla.“ Gúrý, Breki og börnin höfðu ekki hugmynd um að kvikmynda- tónskáldinu Hildi Guðnadóttur og frábærri tónlist hennar er ekki síst eignaður heiðurinn af slagkrafti myndarinnar en sú ánægjulega staðreynd spillti auðvitað ekki fyrir. „Við vissum ekkert um það fyrr en vinur okkar sagði okkur frá þessu sem gerði hugmyndina bara enn þá meira kúl.“ Jónas er einna þekktastur fyrir hauskúpuhringa sína en öll fjöl- skyldan hefur sameinast í hönnun og smíði á slíku fingurdjásni. „Öll fjölskyldan er að sjálfsögðu að rokka hauskúpuhringi á hverjum degi hér í Danaveldi,“ segir gullsmiðurinn og glottir. Gúrý og Jónas Breki hafa búið í Danmörku um langt árabil þar sem þau sinna list sinni og una hag sínum vel. „Þetta er samt í fyrsta skipti sem við erum bara fjögur hérna um jólin og það var bara æðislegt,“ segir annað höfuð hryllingsfjölskyld- unnar sem hefur átt það til að fylgja jólakortum sínum til Íslands eftir í eigin persónu. Hann segir að annars skipti ekki öllu máli hvar þau eru stödd í heim- inum sem er allur undir. Ekki síst eftir að Gúrý opnaði nýja netverslun. GuryOnline.com. rétt fyrir jól. „Það er hægt að fylgja henni á Insta gram undir /guryonline. Árið var líka geggjað hjá mér vegna þess að það er alltaf að færast í aukana að fólk vilji sérsmíðaða giftingarhringa þann- ig að þetta ár er búið að vera mjög skemmtilegt.“ toti@frettabladid.is Hryllingshefðin er ekkert jóladjók Fyrir jól mæta skartgripahjónin Jónas Breki, Gúrý og börn öll jafn hryllileg til fara á fund jólasveinsins í Tívolí í Kaupmannahöfn. Síðast voru þau nunna frá helvíti en í ár sjálfur Jókerinn. Jólagrímuball fjölskyldunnar byrjar á vinnustofunni þar sem Gúrý málar þau öll og svo er farið í Tívolí þar sem jólasveinninn stillir sér stilltur upp með þeim eftir að hafa ítrekað að jólin séu að koma. Ekki hrekkjavaka. 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.