Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1990, Side 5

Hugur og hönd - 01.06.1990, Side 5
lengjum eöa plötum tilbúna til notk- unar. Kemburnar mótar hún svo eöa sníður til allt eftir því hvaöa form eru æskileg í þaö og þaö skiptið. Anna Þóra finnur stöðugt nýja möguleika. Ullin er teygjanleg og sveigjanleg og því nær endalaust hægt aö gera til- raunir meö hana. Hana má t.d. nota flata meö tilbrigöum eöa leggja hana blauta yfir mót, þæfa hana og toga til og ætla henni aö mynda form eftir mótinu. Hana má einnig sníöa niður og þræða litla búta upp á band eöa vír, klippa hana svo til aö utan svo úr veröi sívalningur, keiluform eöa eitt- hvaö annaö. Og hana má jafnvel vax- bera (eins og gert er á lín viö batik- vinnu) og lita meö mismunandi litum, meö öörum orðum, búa til myndir úr ull (sjá 3. mynd). Þannig eru nýjustu stóru verk Önnu Þóru gerö. Og alla þá möguleika sem hér eru taldir og enn fleiri hefur hún þrautreynt. Hugmyndaauðgi Hin stóru hangandi textílverk Önnu Þóru eru ef til vill þaö sem fyrst vekur athygli, en þegar betur er aö gætt eru litlu hlutirnir, eins og hattaformaöar bungur eöa jafnvel smáir skartgripir ekki síður athyglisverðir. Skartgripi á hún í fórum sínum allsérstæöa, bæöi armbönd, hálsfestar, eyrnalokka og nælur af ýmsum gerðum í skrautleg- um litum. Þeir eru eins og allt hitt geröir úr ull sem ýmist er troöiö inn í plastpípur eöa þrædd á þráö eöa vír eöa bara límd saman. Hatta hefur Anna Þóra líka gert, bæöi stóra hatta sem hylja vel höfuðið og pínu-hatta sem festa skal á kollinn meö kambi, ætlaðir sem samkvæmishattar. Sumir þeirra eru eins og kostulegir litlir skúlptúrar. Anna Þóra höföar einatt í verkum sínum til mýktar og sveigjanleika ull- arinnar bæöi meö forminu sjálfu og ef til vill ekki hvaö síst meö því aö ætla sumum skúlptúrum sínum aö vera hreyfanlegir aö hluta. Hiö mjúka efni þrætt upp á þráö er t.d. mjög sveigjanlegt og þá skemmtilegt aö ætlast til þess aö þaö sé ókyrrt eöa á iði. Þaö er ótrúlegt hvaö hún vinnur úr ullarkembunni á marga vegu, hún segir frá því aö hugmyndir sínar sum- ar hverjar veröi til þegar hún þreifar sig áfram til aö leita nýrra leiöa. Þaö sé mjög spennandi aö leika sér meö efnið. Oft veröi þá góöar og nothæfar 2 HUGUR'OG HÖND 5

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.