Hugur og hönd - 01.06.1990, Blaðsíða 43
legt aö nemendur hljóti margvíslega
verklega þjálfun og aö hún komi til
góöa sem viöbót viö fagbundið verk-
legt nám í grunnskóla.
Hér eru ekki tök á aö lýsa ná-
kvæmlega mismunandi leikbrúöu-
geröum en minnt skal þó á nokkrar.
Handbrúður úr vettlingum og
sokkum. Vettlingur eöa sokkur er
skreyttur meö mislitu garni, fílti, ull,
tölum og ýmsu ööru og búin þannig
til handbrúöa sem auðvelt er aö
nota. Annars eru til ótal tegundir af
handbrúðum. Áöur fyrr var brúöu-
hausinn oft geröur úr tré eöa papp-
írsmassa, nú er fremur notað svamp-
gúmmí, nælonsokkar o.fl.
Brúður úr pappírspokum. Andlit
er teiknað og málaö á pokann, papp-
írsrenningar, garn, fílt o.fl. notaö til
skreytingar. Pokinn er fylltur meö
krumpuöum dagblaöapappír, dýll
eöa grannur trélisti settur í pokaopið
og bundinn vel aö meö bandi.
Brúður úr umbúðum. Margs kon-
ar umbúöir, s.s. mjólkurfernur,
pappadiskar, plastbrúsar, pappa-
kassar o.fl., geta veriö ágætis uppi-
staöa í einfaldar leikbrúöur. Gefa má
hugmyndafluginu lausan tauminn,
búa til brúöur og skreyta þær á sem
fjölbreytilegastan hátt, þannig að
þær hæfi hlutverkum sínum.
Skuggabrúður. Skuggabrúöur
eru oftast gerðar úr þykkum pappa
eöa jafnvel þunnum krossviöi. Liöa-
mót geta verið á höndum og fótum
brúðunnar. Grannir trélistar eru festir
við hvern einstakan hluta brúðunnar
og henni stjórnaö meö þeim. Leikiö
er meö brúöurnar upp við þunnt efni
eöa dúk sem strekktur er á grind eöa
stóran ramma, Ijós er haft á bak viö
brúðuna, fjær áhorfendum, þannig
aö skuggi brúðunnar fellur á tjaldið.
Stangabrúður. Stangabrúöurnar
geta verið svipaöar aö gerö og hand-
brúðurnar en þeim er stjórnaö meö
grönnum stöngum eöa léttum trélist-
um. Er þannig hægt aö hreyfa höfuö,
hendur og fætur leikbrúðunnar.
Strengjabrúður. Strengjabrúöur
eru leikbrúöur sem oftast eru búnar
til úr tré, þær eru meö hreyfanleg
liðamót. Frá liöamótunum liggja
þræöir í stjórntækin og meö þeim
stýrir leikbrúðumeistarinn hreyfing-
um þeirra. Sjaldgæft er aö slíkar
brúöur séu búnar til af grunnskóla-
nemendum. Þaö krefsteinfaldlegaof
mikils tíma aö búa þær til og aö þjálfa
sig í aö stjórna þeim.
Leiksvið
Brúöuleikhús geta verið mjög mis-
munandi. Þaö er til dæmis hægt aö
strengja efni í dyraop, skilja eftir smá-
bil og láta brúðurnar leika þar. Eins
má skera op í stóran pappakassa og
búa þannig til lítið leikhús. Venjulega
er leiksviöiö gert úr trélistum, þ.e. lér-
eft eöa annað þunnt efni strengt á
trégrind. Aö lokum skal bent á aö
leikbrúður má einnig nota án sér-
staks leiksviðs, þó aö oftast sé
skemmtilegra aö hafa þaö meö.
Þórir Sigurðsson
fvzr— a
1. Brúðuleikhús og ,,leikarar“ á
sviði.
Ljósmynd: Þórir Sigurðsson.
2. Handbrúða úr sokk. Fylling gæti
verið ull eða svampur.
3. Venjuleg handbrúða úr saumuð-
um serk og haus sem gæti verið
kúla, gerð úr vatti eða bómull,
klædd nælonsokk.
4. Skuggabrúða úr pappa eða þunn-
um krossviði, stjórnað með trélist-
um og stinnum vír.
5. Teikning sýnir hvernig stinga má
fingrum í haus og arma á venjulegri
handbrúðu.
6. Leiksvið sett upp í dyragætt.
HUGUR OG HÖND
43