Hugur og hönd - 01.06.1990, Blaðsíða 30
Einars. Er vart aö efa aö útsaums-
verk þessi hafi verið unnin af Ragn-
heiöi og námsmeyjum, „kennslu-
jungfrúm,“ hennar, eöa af þeim síð-
arnefndu undir handarjaöri hennar.
Uppruni, ævi og ættmenni
Ragnheiðar Jónsdóttur
Laust fyrir miðja öldina sautjándu,
nánar til tekið 1646, fæddist prófasts-
hjónunum í Vatnsfirði, Hólmfríði Sigurð-
ardóttur (5. mynd) og Jóni Arasyni, dóttir
er hlaut nafnið Ragnheiður, önnur
tveggja dætra þeirra með því nafni.
Hólmfríður (f. 1617, g. 1636, d. 1692) var
dóttir Sigurðar yngra (d. 1617) Oddsson-
ar biskups Einarssonar og konu hans,
Þórunnar ríku Jónsdóttur sýslumanns að
Galtalæk Vigfússonar, en séra Jón (f.
1606, d. 1673) var sonur Ara sýslumanns
í Ögri Magnússonar og konu hans,
1. og 2. Fram- og bakhlið íslenska
5000 króna peningaseðilsins sem
gefinn var út 1986. A framhlið (1) eru
myndir er líkja eftir myndum á mál-
verki, nú í Þjóðminjasafni íslands
(sjá 7. mynd), af Ragnheiði Jóns-
dóttur, þriðju frú Gísla Þorlákssonar
Hólabiskups, sem og biskupinum
og tveimur fyrri eiginkonum hans.
Auk þess hlutar af útsaumi á altaris-
klæði frá Laufási í Eyjafirði (sjá 3.
mynd). Á bakhlið (2) er teikning,
hugmynd, af Ragnheiði og tveimur
námsmeyjum hennar að skoða full-
unnið altarisklæðið. Situr biskups-
ekkja á útskornum stóli með kistu-
sæti og heldur á sjónabók í vinstri
hendi. Hvorir tveggja gripirnir, stóll-
inn og bókin, voru í eigu Ragnheið-
ar, en eru nú varðveittir í Þjóðminja-
safni íslands, Þjms. 2702 og 1105.
3. Altarisklæði og altarisdúkur með
brún úr Laufáskirkju í Eyjafirði. Frá
1694. Neðan til á altarisklæðinu er
eftirfarandi áletrun: ÞETTA ALTARIS
KLÆDE GIEFVR RAGNEIDVR IONS
DOTTER / KIRKIVNNE AD LAVFASE
FIRER LEGSTAD SINNAR SÆLV Hl /
ARTANS MODVR HOLMFRIDAR
SIGVRDAR DOTTVR 1694. Mislitt ull-
arband í hvítt hörléreft. Stærð altar-
isklæðisins er um 99x115 cm. Þjms.
404 og 405. Ljósmynd: Gísli Gests-
son.
4. Altarisdúkur með brún frá Laufás-
kirkju. Á enda dúksins hægra megin
er eftirfarandi áletrun: ÞENNANN
ALLTARIS DVK GIEFVR ARE IONS
SON KIRKIVNNE / AD LAVFASE
FIRER LEGSTAD SINNAR
BLESSVDV MODVR HO / LMFRYD-
AR SIGVRDAR DOTTVR SÆLLRAR
MINNINGAR. Á vinstri enda dúksins
er letrað: ANNO 1694. Á altarisbrún-
inni eru vers úr tveimur sálmum úr
sálmabók Guðbrands biskups Þor-
lákssonar frá 1589: ÞINNE KIRKIV
OG KRISTNVM LYD KIÆRE FADER
HLYF ALLANN TYD / HALLT ÞV OSS
FAST I HREINNE TRV HERNAD
OVINA FRA OSS SNV * GIEF/ ÞINNE
KRISTNE GODANN FRID GVDS SON
VMM VORAR TYDER / ÞVI ECKERT
HOFVUM VIER ANNAD LID EINN ÞV
FIRER OSS STRYDIR S [jálfur]
G[uð] V[or] S[annur] F[aðir].
Lengd er um 155 cm, breidd með
brún og kögri um 73 cm. Þjms. 405.
Ljósmynd: Gísli Gestsson.
5. Hólmfríður Sigurðardóttir, móðir
Ragnheiðar Jónsdóttur. Málverk eft-
ir séra Jón Guðmundsson á Felli (f.
1631, d. 1702). Stærð innan ramma
66x52 cm. Þjms., mms. 2, áður
Þjms. 402. Ljósmynd: Gísli Gests-
son.
30
HUGUR OG HÖND