Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1990, Blaðsíða 35

Hugur og hönd - 01.06.1990, Blaðsíða 35
Grænland - einstök menning Saga — undirstaða menningarinnar Eskimóar, eöa þjóðflokkar meö svip- uö einkenni, komu til Grænlands úr vesturátt um 2200 f. Kr. Þeir fluttu meö sér hina svokölluöu Independ- ence-menningu I og frá þessum tíma eru fyrstu merki mannabyggða á Grænlandi. í fornleifum hafa fundist axir, örvaroddar og hnífar. Independ- ence-menning II er frá ca 700 e. Kr. og hafa þjóöflokkar þessara menn- ingarstrauma beggja komiö frá Kan- ada aö Grænlandi noröanveröu og flust suöur meö austurströndinni. Sarqaq-menningin er tímasett frá 1600 f. Kr. og fluttist meö þjóöflokki sem líka kom úr vestri og norðri en fór í suðurátt meö vesturströndinni allri og eitthvaö áleiðis noröur meö aust- urströndinni. Frá þessum tíma hafa fundist leifar af vopnum, lampi, húsarúst og önnur merki manna- byggöa. Frá sama tíma eru fyrstu merki um listþróun: Bein skreytt út- skornu andliti og annaö meö tákn- mynd af beinagrind. Næstu þjóðflokkar sem settust aö í landinu létu eftir sig enn fleiri merki um listræna þróun, en þeir voru Dor- set I og II sem komu til Grænlands ár- ið 100 f. Kr. og 700 e. Kr. Eftir þá hafa fundist litlar mannsmyndir og bjarn- armyndir úr beini og trjádrumbur meö útskornum andlitum. Nútímamenning Grænlands er ættuö frá þjóðflokki sem kom til landsins úr noröri á árunum 950- 1200 e. Kr. og sköpuöu Thule-menn- inguna svokölluðu. Þeir fluttu meö sér kajakinn, konubátinn og sleöann og kunnu aö nota þessa gripi. Eftir þá liggja litlar, skemmtilegar tré- myndir af handleggja- og fótalausum manneskjum. Af þessum þjóöflokki eru Inúítarnir sem nú byggja landið. Á sama tíma — eöa árið 985 — komu norrænir menn til Grænlands úr suðurátt. Þessir innflytjendur komu í óbyggt land, þar sem fólk frá Dorsettímanum haföi yfirgefiö land- iö. Eiríkur rauöi fluttist frá íslandi og settist aö í Eiríksfirði meö fríðu föru- HUGUR OG HÖND 35

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.