Hugur og hönd - 01.06.1990, Blaðsíða 23
Ausur
Hér eru birtar myndir af ausum
sem Hannes Lárusson, mynd-
listamaður, hefur smíðað, en
hann hélt sýningu í Gallerí 11 á
Skólavörðustíg 4 síðastliðið
vor. Það sem vakti athygli okkar
í ritstjórn Hugar og handar var
að ausurnar birtust þar sem
sjálfstæð listaverk í nútíma
skilningi, en um leið heldur
notagildið sér að fullu.
1. Skaft á ausu á 2. mynd. Ljósmynd: Áslaug Sverrisdóttir.
Ausurnar eru allar listavel smíöaö-
ar og hafa sumar þeirra dýpri merk-
ingu en þá sem augljós er viö fyrstu
sýn. Viö gefum listamanninum oröiö:
Ausurnar byggjast á sama hugs-
unarhætti og þau verk sem ég geri á
annan hátt nema aö því leyti aö kraf-
an um notagildi heldur stæröinni í
skefjum, útheimtir styrk og rétt lag.
Notagildiö hefur ísmeygilegt aödrátt-
arafl og merkingu sem fagurfræðileg
útfærsla á ausunum er jafnan knúin
til aö bregðast viö. Ausan sem hlutur
er síendurtekið tilbrigöi viö þaö við-
fangsefni aö gera vökvahelda holu í
tré — og þaö er einmitt frammi fyrir
dulúð þessa íláts sem sumir vilja
horfa á þaö en aðrir nota það. í raun-
inni eru þessi verk hugsuð sem
skúlptúrar en unnir sem nytjahlutir. í
dag hef ég gert um 45 ausur og finnst
mér eins og möguleikar holunnar
séu rétt aö byrja aö opnast.
í október 1990,
Hannes Lárusson
Hannes Lárusson er fæddur áriö
1955. Hann hefurstundað myndlista-
nám á íslandi, í Kanada og Banda-
ríkjunum. Tók B.A. í heimspeki frá
H.í. 1986, M.F.A. frá NSCAD, Halifax
og N.S. í Kanada 1988.
HUGUR OG HÖND