Hugur og hönd - 01.06.1990, Síða 8
Tvær kirkjur-tveir höklar
A árunum 1989—90 voru ofnir tveir
messuhöklar í vefstofu Sigríöar Hall-
dórsdóttur aö Þingholtsstræti 17,
Reykjavík. Annars vegar hvítur há-
tíöahökull fyrir Hólakirkju í Hjaltadal
og hins vegar grænn messuhökull
fyrir Laugarneskirkju í Reykjavík.
Báöar þessar kirkjur hafa nýlega ver-
ið lagfæröar og endurnýjaðar.
Hólakirkja, sú sem nú stendur, er
elsta kirkjubygging á landinu. Hún er
teiknuö af dönskum arkitekt og
byggö á árunum 1757—1763. Bygg-
ingarefniö er sandsteinn sem sóttur
var í Hólabyrðu, fjall sem rís skammt
austan viö kirkjustaðinn. Yfir sand-
steininn hefur veriö múraö aö utan
og innan og er múrinn málaður hvít-
ur, en í gólfi sést rauðleitur steinninn.
Kirkjan sjálf er því frekar látlaus,
séö tilsýndar, en norðan viö hana er
turn sem Sigurður Guömundsson
arkitekt teiknaöi og reistur var áriö
1950. Turninn er helgaöur minningu
Jóns Arasonar.
Aö innan er kirkjan skrautleg og
tíguleg. Útsagaö og skrautmálað tré-
verk aöskilur kirkjuskip og kór, kirkju-
bekkir eru málaðir og gylltar Ijósa-
krónur hanga í lofti. Hún er vel búin
góöum gripum sem safnast hafa í
tímans rás og er sá veglegasti án efa
útskorin vængjabrík yfir altari. Hún
er talin vera frá Niðurlöndum og gerö
á 16. öld. Bríkin er nýkomin af verk-
1. Hátíðahökull fyrir Hólakirkju í
Hjaltadal. Lokatelknlng, bak- og
framhlið.
2. Hluti af silkiofnu fangamarki
(omega) á framhlið Hólahökuls.
3. Hluti af silkiofnu krossmarki á
bakhlið Hólahökuls.