Hugur og hönd - 01.06.1990, Síða 9
stæöi Þjóðminjasafnsins úr vand-
legri viðgerð og varpa nú nýmálaðar
og gylltar myndirnar Ijóma fram í
kirkjuna og árétta enn glæsileika
hennar og hátíðlegan svip.
Laugarneskirkja er teiknuð af
Guðjóni Samúelssyni, húsameistara
ríkisins, og ber svipmót verka hans.
Hún er vígð árið 1949. Að utan er hún
þakin gráleitum steinsalla en að inn-
an máluð. Aðallitur er Ijósleitur með
örlítið gráum tón. Allt tréverk, bekkir,
altari og predikunarstóll, er úr Ijósri
eik. í gólfi er svartur steinn en föl-
grænn dregill eftir gólfinu endilöngu.
Yfir altari er einfaldur trékross úr
Ijósri eik. Það er hátt til lofts og í lofti
er skrautmálning eftir Grétu Björns-
son, eina skraut kirkjunnar fyrir utan
litaða glerglugga sem eru mjög ein-
faldir í litum og gerð. í kirkjunni er
kyrrlátt andrúmsloft og allt yfirbragð
hennar að utan og innan látlaust og
rósamlegt.
Þegar undirrituð fékk það verkefni
að teikna hátíðahökul fyrir Hólakirkju
snemma á árinu 1989 og síðan
messuhökul fyrir Laugarneskirkju á
árinu 1990 þá fannst mér vandinn
vera allnokkur. Af lýsingunni á kirkj-
unum tveimur má sjá hve ólíkar þær
eru. Sögulega eru á milli þeirra 200
ár. Sumir gripir í Hólakirkju tilheyra
jafnvel annarri trúarlegri hugsun,
katólsku. Síðbarokk er stíleinkenni
kirkjunnar sjálfrar. Laugameskirkja
er nútímakirkja þó að sjá megi í upp-
teygðum formum hennar gotneskan
skyldleika, en allur búnaður hennar
er í samræmi við hugmyndir lúters-
trúar um látleysi.
Ég fékk í upphafi loforð um sam-
vinnu frá Sigríði Halldórsdóttur sem
hafði þá nýlega sett upp vefstofu sem
hún kallar Armríki í Þingholtsstræti í
Reykjavík. Þessi samvinna hefur
verið, séð frá mínum bæjardyrum,
ákaflega lærdómsrík. Ég hafði frjáls-
ar hendur í teiknivinnunni í trausti
þess að Sigríður útfærði síðan teikn-
inguna í vefinn og leysti öll þau
vandamál sem upp kynnu að koma
þannig að teikningu væri fylgt á sem
nákvæmastan hátt. Þetta brást ekki.
Við unnum náið saman og teljum
báðar að samstarf af þessu tagi sé
góður skóli.
Teikningin af hökli í Hólakirkju er
einföld. Með einfaldleikanum er leit-
ast við að halda forminu á höklinum
aðskildu frá skrauti í kringum altari
en jafnframt að litir og svipur hökuls
samræmist því sem í kirkjunni er. Á
bakhlið hökuls er einfalt krossform
4
4. Messuhökull fyrir Laugarnes-
kirkju í Reykjavík, tilbúinn til afhend-
ingar. Bak- og framhlið.
5. Hluti af bakhlið messuhökuls fyrir
Laugarneskirkju.
Ljósmyndir: Áslaug Sverrisdóttir.
5
HUGUR OG HÖND
9