Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1990, Síða 18

Hugur og hönd - 01.06.1990, Síða 18
í bænum Narsaq er mesta at- vinnuleysi á Grænlandi og til þess aö sjá ungu fólki fyrir verkefnum hefur gamalt hús verið tekiö í notkun til ull- arvinnslu. í húsinu eru aðeins tvö lítil herbergi, hvort um sig ca 9 m2 aö stærö. Annað er þvottahús þar sem ull er þvegin og þurrkuö en í hinu sitja 4 konur, tvær þeirra mjög ungar, og vinna viö þráðagerð, prjón og flóka- gerö. Þær voru mjög önnum kafnar þar sem þær sátu í þröngum húsa- kynnunum og gáfu sér vart tíma til aö líta upp frá verki þegar forvitinn ís- lending bar aö garði. Qaqortoq Bærinn Qaqortoq er vinalegur bær nokkru utan við mynni Einarsfjarðar og sunnar en Narsaq; eru íbúar þar um 2500 talsins. Bærinn er byggður við vog og stendur í talsverðum halla í fjallahlíðum. Þegar komið er til bæj- arins er algengast að fara loftleiðis og fararskjótinn er þyrla (flug frá Narsaq um 10 mínútur). Þar sem flat- lendi er mjög af skornum skammti er heppilegt að þyrluvöllur þarf aðeins að vera lítill hringlaga flötur, enda hefur þyrla sig lóðrétt til flugs. Með þyrlunni er ferðast innanlands nema unnt sé að sigla, og það er ekki hægt hvenær sem er því að venjulega leggur firðina strax í september og langt fram á sumar er hafís á reki um allt og oft illfært á bátum. Áramunur er á því, hvernig hafísinn hegðar sér, svo að erfitt er að ákveða sjóferðir að einhverju marki fram í tímann. í hlíðarslakka í Qaqortoq býr listakonan Aka Höegh, f. 1947. Þær stöllur báðar, Kistat Lund og hún, fengu menning- arverðlaun grænlensku heimastjórn- arinnar á árinu 1989. Aka er mjög at- orkusöm myndlistarkona, frjálsleg og nýtur þess að taka á móti gestum og segja frá. Hún er þekktust fyrir svart/hvítar grafíkmyndir sínar. En eins og Kistat hefur hún beint kröft- um sínum í ýmsar áttir, þ. e. báðar vinna með ólík efni. Þau verk sem hún vinnur að nú eru m. a. stein- myndir. Hún hefur fengið verkefni í Kaupmannahöfn og Álaborg og er þegar tekin til við að höggva í stóra granít-steina verk sem standa eiga úti. Hluta af þessum verkefnum vinn- ur hún á Borgundarhólmi, en þaðan var hún nýkomin þegar íslenska gestinn bar að garði. Hún var svo á förum þangað aftur fljótlega, svo að hún er á faraldsfæti. En einhvern hluta þessara dönsku verka mun hún vinna heima úr steini sóttum í Eiríks- fjörð. Aka er að undirbúa vinnslu óhlut- bundinnar skreytingar á háan, síval- an stromp rafstöðvarinnar í Qaqor- toq. Skreytingin á að vera úr kopar og látúni. Hún er einnig að gera myndverk málað á tréplötur fyrir gamla samkomuhúsið, en það byggði afi hennar eins og mörg önn- ur merk hús í bænum. Henni er mikið niðri fyrir þegar hún segir okkur frá því að myndirnar á spjöldunum eigi að vera bláar með hvítum fjallatind- um svo að unnt sé að slappa af þegar horft sé á þær í kvöldbirtu. Annars notar Aka mikið grænlensk andlit í tvívíðu verkunum og einnig grímu- tákn. Skreytingu hefur hún unnið í fangelsið í heimabænum Qaqortoq, teikningu af hökli sem ofinn var fyrir kirkjuna í bænum, skírnarfont og alt- ari í tvær nýjar kirkjur í Manitsoq og Angmagssalik. í loftið á þeirri síðar- nefndu málaði hún vikum saman skreytingar þar sem hún túlkar gang sólarinnar allt frá upprás hennar þar til stjörnuhiminninn blikar skær. Einnig á hún stór landslagsmálverk í fundarsal bæjarstjórnarinnar í Qaqortoq, gríðarstóra mynd (nálægt 40 m2) málaða á veggi í forsal Menntaskólans þar og fyrir Verslun- arskólann í bænum gerði hún upp- drátt að teppi sem grænlenska vefn- 18

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.