Hugur og hönd - 01.06.1990, Page 33
svo og vandaðir danskir altarisstjakar úr
tini með ágröfnum fangamörkum og
skjaldarmerkjum þeirra hjóna, sem gefn-
ir voru kirkjunni á Grenjaðarstað 1715,
hafi einnig verið hluti af þeim nýju orna-
mentum sem prýddu Grafarkirkju í tíð
þeirra.
í Þjóðminjasafni hafa varðveist fjórir
búshlutir úr einkaeign Ragnheiðar, allir
með fangamarki hennar eða upphafs-
stöfum. Eru það trafaöskjur frá 1677 (6.
mynd), stóll (sjá 2. mynd) með kistusæti
og tvær fatakistur, stór og lítil, sú stærri
frá 1680, allt vandaðir smíðisgripir. Þrír
fyrsttöldu gripirnir eru með líku yfir-
bragði, útskornir og tvímælalaust eftir
Guðmund smið í Bjarnastaðahlíð. Minni
kistan, spónlögð, er ,,með útlendum
svip, en gæti þó verið eftir Guðmund ...
gerð handa Ragnheiði Jónsdóttur
biskupsfrú á Hólum.“
Að Gísla biskupi látnum setti Ragn-
heiður biskupsekkja honum veglega
minningartöflu í Hólakirkju (7. mynd).
Strax um haustið 1684 skrifaði hún Jens
Hansen, dönskum kaupmanni á Hofsósi,
og bað hann að annast fyrir sig það er-
indi í Kaupmannahöfn um veturinn að
láta mála mynd með ,,Controfeyer“ sál-
ugs herra biskupsins og eiginkvenna
hans þriggja, þ. e. beggja fyrri kvenna
hans, Gróu Þorleifsdóttur (d. 1660) og
Ingibjargar Benediktsdóttur (d. 1673),
sem og hennar sjálfrar. Lét hún fylgja
fjórar litlar myndir til eftirsjónar. Kom mál-
verkið til landsins ári síðar, 1685, og var
fest upp í kór dómkirkjunnar.
Sama ár fluttist Ragnheiður að Gröf á
Höfðaströnd, en þájörð hafði biskup átt
sem fyrr segir. Bjó hún þar rausnarbúi til
dauðadags með þeirri undantekningu
þó, að 1696 um haustið giftist hún Einari
Þorsteinssyni Hólabiskupi. Var brúðkaup
þeirra haldið ,,með stórri viðhöfn“ á Hól-
um að viðstöddum mörgum göfugum
mönnum. Hjónabandið stóð þó aðeins
skamma hríð því að biskup lést innan
mánaðar frá giftingu. Sat Ragnheiður á
Hólum náðarár sitt, en hvarf síðan aftur
að Gröf.
Frá andláti og útför Ragnheiðar segir
svo í Árbókum Espólíns við árið 1715:
„...miðvikudaginn þridja í einmánadi, er
var hinn 10di dagr aprílis, andadist frú
Ragnheidr Jónsdóttir í Gröf, er hana
skorti vetr á sjötugan, var lík hennar flutt
til Hóla, ok grafit þar í kórnum, 4da eda
5ta í páskum, er var sumardagr hinn
fyrsti, 15 dögum síðar.“ Efalítið hefur út-
för Ragnheiðar verið gerð að hefðbundn-
um hætti heldri manna á þessum tímum,
og er að sjá sem veglegt erfi hafi verið
drukkið eftir hana. í uppskrift á dánarbúi
hennar í Gröf eru minnisgreinar þar sem
meðal annars kemur fram umbun til lík-
manna og þeirra sem að erfisdrykkjunni
unnu, fatabúrsráðskonu, kokkastúlkna,
starfsmanna í steikarahúsi og smápilta
er þénuðu fyrir borðum. Einnig segir þar
frá verðmætum gjöfum til fyrirmanna við
þetta tækifæri; fékk Steinn biskup Jóns-
son minnishorn ,,forsilfrad“ og grafið,
látúnsbúna Ijóslykt og silfurkönnu, hús-
trú Valgerður Jónsdóttir gylltan silfur-
kross með víravirki og hvíta festi, dökkt
silki og kvenskó með baldýruðu flaueli
og egtavírsaum, og prófasturinn, Þorleif-
ur Skaftason á Kálfsstöðum, svonefnt
kýrauga, þ. e. silfurstaup, ásamt fleiru.
Hannyröir Ragnheiöar
biskupsfrúar
í Þjóðminjasafni Islands er varð-
veittur næsta fágætur gripur frá 17.
öld, svonefnd sjónabók, handteikn-
uð bók með uppdráttum eða út-
rennslum, ætluðum til hannyrða. Eru
eingöngu reitamunstur í bókinni, ým-
ist með ferhyrndum eða tigullaga
reitum. Víst má telja að Ragnheiður
biskupsfrú hafi átt þessa bók. Bæði
er að aftan á eitt blaðið er skrifað
„siona bök Ragneydar Jons dotter,"
og fangamörk og stafir, ekki hvað síst
óvenjuleg stafagerð á nokkrum stöð-
um, benda eindregið til að svo sé (8.
mynd).
Heimildir um störf Ragnheiðar að
hannyrðum er þó einkum að finna í
vísitasíum og tengjast því fyrst og
fremst kirkjuklæðum. Þegar hefur
verið drepið á altarisbúnaðinn frá
Laufási sem þau systkinin, Ari og
Ragnheiður, lögðu til kirkjunnar þar
1694. Hann er allur úr hvitleitu hör-
lérefti, og er efnið í dúknum heldur
smágerðara en í klæðinu. Saumað
er í hann með tvinnuðu ullarbandi í
bláum, grænum, rauðum, fjólurauð-
um og gulum litum. Altarisklæðið er
saumað með skakkagliti að undan-
skilinni áletruninni neðst, hún er með
pellsaumi og glitsaumi (sjá 3. mynd),
og eru pellsaumuðu stafirnir með
sömu gerð og hið óvenjulega út-
9. Hluti af hoibeinsaumuðum bekká
altarisdúknum frá Laufási. Breidd
bekkjar 9 cm. Þjms. 4Q5. Ljósmynd:
Halldóra Ásgeirsdóttir.
10. Hluti af krosssaumuðum bekk á
altarisbrúninni frá Laufási. Breidd
útsaums um 10 cm, sjá uppdrátt á
bls. 45. Þjms. 405. Ljósmynd: Hall-
dóra Ásgeirsdóttir.
11. Hluti af dúk (altarisdúk?) með
fimm þverbekkjum saumuðum með
gamla krosssaumnum. Frá Hólum í
Hjaltadal. Kynni að vera dúkur sem
Gísli biskup Þorláksson lagði til
kirkjunnar og skráður er í vísitasíu
frá 1685. Mislitt ullarband í hvítleitt
hörléreft. Stærð dúksins alls 77,5x-
200 cm. Breidd bekkjar 12 cm. Þjms.
3451. Ljósmynd: Halldóra Ásgeirs-
dóttir.
HUGUR OG HOND
33