Hugur og hönd - 01.06.2010, Síða 2
Formannspistill
Miklar sveiflur hafa verið í íslensku þjóðlífi á síðastliðnum árum
og hafa fáir farið varhluta af þeim. Efnahagslegar þrengingar
hafa haft áhrif á flest heimili. Neyðin kennir naktri konu að
spinna, segir máltækið og er það ekki orðum aukið, það sjáum
við vel núna þegar kreppir að og landsmenn þurfa að draga úr
eyðslu og nýta betur það sem í boði er. Það er óhætt að segja að
þjóðin hafi dregið fram prjónana og prjóni nú af kappi, til að
mynda mæta iðulega um og yfir tvö hundruð konur í Prjónakaffi
Heimilisiðnaðarfélagsins sem haldið er fyrsta fimmtudagskvöld
í mánuði á Amokka. Allt sem nöfnum tjáir að nefna er fram-
leitt; peysur í öllum stærðum og litum, vettlingar, sokkar, húfur,
treflar og sjöl svo fátt eitt sé nefnt. Saumavélar hafa verið dregn-
ar fram, föt eru saumuð, endurnýtt, löguð og bætt.
Þjóðerniskenndin vex og aukinn áhugi er nú á þjóðbúning-
um. Námskeið í peysufata- og upphlutssaumi fyllast og fjöldi
nemenda sem skráðu sig í faldbúningagerð hjá félaginu síðast-
liðið haust hefur sjaldan verið meiri. Samstarfsnámskeið
Heimilisiðnaðarfélagsins, Þjóðbúningastofu og Endur-
menntunar Háskóla íslands verður í apríl og nefnist Frá fald-
búningum til nútímans. Allt er þetta til að auka þekkingu
almennings og vekja athygli á íslenskri arfleiíð sem er það
mikilvægasta sem við eigum þegar upp er staðið.
Félagasamtök hafa fengið kynningar á Heimilisiðnaðarfélaginu
og íslenskum þjóðbúningum og mæta þá félagar í búningum
sínum, stoltar og kátar. Þjóðbúningadagur, sem er samstarfs-
verkefni Heimilisiðnaðarfélagsins og Þjóðminjasafns íslands,
verður í Þjóðminjasafninu 14. mars og er það von okkar að sem
flestir mæti og skarti sínu fegursta. Þessi dagur er nú haldinn
öðru sinni og verður vonandi fastur liður í vordagskránni og
liður í því að fjölga tækifærum fólks til að klæðast búningum
sínum.
Islenskri sjónabók hefur verið afar vel tekið. Fyrsta prentun
bókarinnar seldist upp en önnur prentun kom í verslanir fyrir
jól. Margir hafa nýtt sér hana til hönnunar og víða sjást verk
sem unnin eru upp úr bókinni. Sjónabókin hefur selst jafnt og
þétt og eru áhugasamir kaupendur jafnt innlendir sem
erlendir.
Dagsferð funda- og fi'œðslunefndar vorið 2009 var á Snœfellsnes. Meðal dag-
skrárliða var heimsókn í liákarlasafnið hjá Hildibrandi í Bjarnarhöfn.
Solveig Theodórsdóttir formaður félagsins (lengst til vinstri) ásamt fríðum hópi
pjóðbúningakLeddra kvenna á Heimilisiðnaðardaginn í Árbœjarsafni í byrjun
sumars 2009.
Þegar starf Heimilisiðnaðarskólans hófst í haust varð strax
ljóst að bæta þurfti aðstöðuna í húsnæði félagsins í Nethyl þar
sem mikil eftirspurn var eftir námskeiðum og mörg þeirra
síendurtekin. Ráðist var í gagngerar lagfæringar á skólahúsnæð-
inu og opnað á milli rýma sem er mikil hagræðing. Breytingarnar
þykja hafa tekist vel og duga því vonandi til frambúðar. í haust
voru oft 4-5 námskeið á kvöldi í húsinu og því oft glatt á hjalla.
Ymissar nýbreytni gætti í námskeiðahaldi og má sem dæmi
nefna „Prjónatækni-frágangur“ þar sem kenndur er frágangur á
lopapeysum. Námskeiðin „Skírnarkjólasaumur" og
„Víkingabúningar" eru meðal nýjunga á vorönn.
í maí 2009 fór af stað svokallað „opið hús“, þriðja miðviku-
dag hvers mánaðar frá kl. 13 - 16, og hefur það gefist afar vel.
Þá mæta félagsmenn með hannyrðir sínar og jafnvel eitthvert
góðgæti með kaffinu sem hefur verið í boði félagsins. Þarna hafa
komið 20 - 30 konur og eru margar þeirra að koma í fyrsta sinn
í húsakynni félagsins. Auk þessa hefur skólanefnd staðið fyrir
Hannyrðakvöldum þriðja föstudagskvöld hvers mánaðar og hafa
konur átt þar ánægjulega samverustund með handavinnu og
kaffisopa.
Opnunartími verslunarinnar hefur verið lengdur og er nú
opið aila virka daga frá kl. 12-18. Með þessari breytingu er verið
að koma til móts við þarfir viðskiptavina. Aukið úrval er nú af
bandi fra fstex og öðru þvi sem fylgir prjónaskap sem og vörum
sem tilheyra þeim námskeiðum sem haldin eru.
Funda- og fræðslunefnd hefur staðið fyrir vorferðum félags-
ins. Þessar ferðir hafa verið vel sóttar og verður ferðin í vor á
Suðurlandið væntanlega engin undantekning. Þetta hafa verið
fróðlegar og skemmtilegar ferðir sem orðið hafa perlur í sjóð
minninganna.
Mikilvægt er að við sem félagsmenn stöndum vörð um að efla
og styrkja félagið okkar. Ómetanlegt starf er unnið af sjálf-
boðaliðum og ber að þakka það. Heimilisiðnaðarfélagið væri
ekki til ef ekki hefðu allar þessar frábæru, óeigingjörnu hug-
sjonakonur og -menn varið omældum tíma í störf sín fyrir
félagið. Ég vil að lokum senda þeim öllum mínar bestu þakkir.
Solveig Tbeodórsdóttir,
formaður Heimilisiðnaðarfélags íslands.