Hugur og hönd - 01.06.2010, Blaðsíða 11
ÓJöf Stefánsdóttir
Frjáls útsaumur með Bettinu Andersen
- fræðsla fyrir textílkennara
Anxgður nemandi með lóur fagurlega útsaumaðar í saumavél.
Félag textílkennara (FT) er fagfélag
textílkennara í grunnskólum landsins.
Tilgangur félagsins er meðal annars að
stuðla að auknu samstarfx meðal textíl-
kennara og aðstoða og hvetja til áfram-
haldandi menntunar. Þetta hefur einkum
verið framkvæmt með fundahöldum,
fræðandi erindum ásamt því að standa
fyrir námskeiðum. Ollum grunnskóla-
kennurum er ætlaður ákveðinn tími til
endurmenntunar en félagsmönnum FT
hefur fundist nokkuð skorta á að stjórn-
endur endurmenntunar sjái félagsmönn-
um fyrir námskeiðum sem styrkja textíl-
fagið sérstaklega. Fræðsluerindi var síðast
haldið í nóvember en þá fékk stjórn
félagsins Steinunni Sigurðardóttur fata-
hönnuð og borgarlistamann Reykjavíkur
2009 til Ieiðsagnar um sýningu hennar á
Kjarvalsstöðum.
I júní síðastliðnum stóð stjórn félagsins
fyrir tveimur tveggja daga námskeiðum í
frjálsum útsaumi. Kennari á námskeiðun-
um var danska textíllistakonan Bettina
Andersen. FFún gerir myndverk og skúlp-
túra auk þess sem hún er þekkt fyrir töskur
sínar. Akvörðunin um að fá Bettinu til
landsins var tekin eftir að ein úr stjórn
félagsins hafði farið á námskeið til hennar
í Skals og líkað vel. Námskeið á sumrin í
Skals hafa verið vinsæl hjá textílkennurum,
einkum vegna þess að þar er hægt að velja
um nokkur stílbrigði í textíl. Nú er talsvert
dýrara en áður að fara utan og því brugð-
um við á það ráð að fá Bettinu til Islands
og með henni ferskan og framandi blæ.
Svarta boxið. Þrívítt textíllistaverk eftir Bettinu
Andersen. Stœrð kassans er 40 x 40 x 40 cm.
Bettina hefur í nógu að snúast við að
sinna eigin listsköpun, skrifa bækur og
halda námskeið og fyrirlestra. FFún hefur
frá árinu 1992 kennt og haldið yfir 500
erindi vítt og breitt um Norðurlönd.
Bettina hefur skrifað sex bækur um
frjálsan útsaum og haldið fjölda sýninga,
bæði einkasýningar og með öðrum.
Textíllistakonan sækir hugmyndir sínar
víða. FFún leitar gjarnan í náttúruna sem
birtist þá ýmist greinanlega eða óhlut-
bundið (abstrakt). Sjá má hvernig hún
vinnur með liti og áferð út frá hughrifum
náttúrunnar í bókinni Broderi naturlig-
vis. Einnig sækir hún hugmyndir í borg-
arlífið á frjálslegan hátt. Bettina hefur í
samvinnu við danska heimilisiðnaðarfé-
lagið (Dansk husflid) þróað endurmennt-
unarnámskeið fyrir þá sem vilja auka
færni sína og skilning á frjálsum útsaumi.
Nemendur geta valið um þátttöku í stök-
um námskeiðum eða öllum átta sem í
boði eru. Flvert námskeið er haldið yfir
eina helgi og öll átta dreifast á þriggja ára
tímabil.
Námskeið Bettinu í frjálsum útsaumi
fyrir Félag textílkennara fóru fram í
fallegum húsakynnum Fdússtjórnar-
skólans við Sólvallagötu í Reykjavík.
FFún hélt einnig opinn fyrirlestur á sama
stað og sýndi líka nokkur verk á Skörinni,
sýningaraðstöðunni hjá Fdandverki og
hönnun í Aðalstræti 10 þann tíma sem
hún dvaldist hér. Námskeiðið var afar
kærkomið og vel sótt af textílkennurum.
A námskeiðinu var kennd myndsköpun í
textíl úr efnisbútum og þráðum hvers
konar. Hugmynd eða kveikja að textíl-
verkunum voru myndir sem þátttakend-
ur höfðu annað hvort tekið sjálfir eða
fengið að láni. Unnið var í saumavél eða
saumað út í höndum allt eftir því hvaða
áferð átti að ná frarn í verkunum. Bettina
kenndi nokkrar tæknilegar útfærslur og
hvatti þátttakendur til að gera prufur til
glöggvunar. Síðan valdi hver og ein sína
leið til að skapa það sem hugurinn bauð.
Hver stund var vel nýtt og nutu textíl-
kennararnir þess að fá að vinna sjálfir að
eigin verkum. Það var kærkomitt til-
breyting fyrir kennarana að ljúka skóla-
árinu með því að skipta um hlutverk, fá
leiðsögn og finna fyrir þeirri vellíðan sem
fylgir því að mega einbeita sér að skap-
andi vinnu.
Hægt er að fræðast meira um Bettinu
á heimasíðu hennar:
www.bettinaandersen.dk
Nánari upplýsingar um Félag textíl-
kennara má finna á heimasíðunni:
www.textilkennari.is
HUGUR0G HÖND2010 11