Hugur og hönd - 01.06.2010, Blaðsíða 31

Hugur og hönd - 01.06.2010, Blaðsíða 31
Ásdís Birgisdóttir Textílsetur íslands - blómleg starfsemi í Kvennaskólanum á Blönduósi Ljósmytidir Asdís Birgisdóttir KvennaskóLinn d Blönduósi. Húsið er byggt drið 1912 og teiknað afErlendi Einarssyni (1883-1968) húsameistara. Textílsetur Islands var stofnað árið 2005 og hefur það aðsetur í gamla Kvennaskólanum á Blönduósi. Húsið stendur við bakka Blöndu og er eitt helsta kennileiti bæjarins. Kvennaskólinn var byggður árið 1912 og var það Erlendur Einarsson (1883-1968) húsameistari sem teiknaði hann. Húsið hefur mikið varðveislugildi vegna byggingarlistar og menningarsögu auk þess að vera mikil- vægur hluti gömlu byggðarinnar á Blönduósi. Margir þekkja þessa byggingu og einnig Heimilisiðnaðarsafnið sem stendur við hlið skólans. Safnið er í byggingu sem upphaflega var fjós skólans en hefur nú verið stækkað til muna með glæsilegri viðbyggingu sem Guðrún Jónsdóttir arkitekt teiknaði. Kvennaskólahúsið er nú í eigu ríkis og sveitarfélaga en Kvennaskólinn var á sinni tíð öflug og áhrifamikil menntastofnun fyrir ungar konur. Starfsemi Kvennaskólans var hætt árið 1979 en miklar breytingar höfðu þá orðið í samfélaginu og á viðhorfum til starfsemi kvenna- og húsmæðraskóla. Stofhun Textílseturs íslands Um síðustu aldamót efldist mjög áhugi heimamanna á að koma aftur á fór starfsemi í Kvennaskólanum á sviði textíls. Tilgangurinn með starfseminni skyldi vera að efla nágrannasvæðin þar sem stunduð er öflug sauðfjárrækt og enn er lifandi þekking á textíl og textílmennt frá fyrri tímum. Arið 2004 var skipuð undirbúnings- nefnd um stofnun Textílseturs Islands á Blönduósi. í nefndinni áttu sæti Páll Pétursson, fyrrverandi ráðherra, Hrönn Vilhelms- dóttir textíllistakona og Dr. Guðrún Helgadóttir frá Háskólanum á Hólum. Textílsetur Islands var stofnað í mars árið 2005. Stofnendur þess voru Blönduósbær, sveitafélög í Austur- Húnavatnssýslu, Byggðastofnun, Heimilisiðnaðarsafnið, Heimilisiðnaðarfélag Islands, Teiknistofa Guðrúnar Jónsdóttur, Textíll ehf., einstaklingar og fyrirtæki þar sem starfað er við textíl eða áhugi fyrir honum er til staðar. Textílsetur hefur notið styrkja af fjárlögum og frá Iðnaðarráðuneytinu. Fyrsti framkvæmdastjóri setursins var Ingileif Thorlacius. Rúmlega þrjdtíu nemendur sóttu Jýrstu sumarndmskeiðin á vegum Textílseturs sem haldin voru i lok júní 2009. Þessi dhugasami hópur handverkskvenna tók þdtt í prjónandmskeiði hjá Margréti Lindu Gunnlaugsdóttur. HUGUR OG HÖND 2010 31

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.