Hugur og hönd - 01.06.2010, Blaðsíða 14
Skuggaspil
- kertastjaki með
Guðrún Lilja, húsgagnasmiður og hönnuður.
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir hönnuður
hefur yndi af íslenskri handverkshefð.
Hún er meðal þeirra sem tekið hafa
Islensku sjónabókinni fagnandi. Að
hennar mati er það mikill kostur fyrir
hönnuði að hafa á einum stað samantekt
af helstu munstrum þjóðararfsins. Bókin
og geisladiskurinn með munstrunum á
stafrænu formi sparar tíma bæði við leit
og vinnu auk þess að virka hvetjandi til
notkunar á gömlum munstrum í hvers
konar hönnun.
Meðal verkefna þar sem gömul munst-
ur koma við sögu er hönnun Gljúfrastofu,
sem er gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs í
Asbyrgi í Jökulsárgljúfrum. Verkið vann
Guðrún Lilja ásamt samstarfsmönnum
sínum hjá fyrirtækinu Studiobility á
árunum 2005-2007. I gestastofunni eru
Þessir kollar eru með úlfœrðu munstri sem sjá má á bls.
208 í Islenskri sjónabók. Kollana saumaði Lilja
Njálsdóttir, móðir Guðrúnar jyrir Gljújrastoju.
Margrét Valdimarsdóttir
tjiunstri ur
Islenskri sjónabók
falleg dæmi um hvernig nota má gömul
munstur í nýju samhengi. Þannig er
einkennismerki gestastofunnar gamalt
munstur af jurtapotti sem finna má á bls.
208 í fslenskri sjónabók. Sama munstrið
er einnig útfært í níu útsaumuðum
kollum. Munstrið fékk Studiobility á
sínum tíma hjá Þjóðminjasafninu.
Yfirbragð gestastofunnar er fágað og
smekklegt og má með sanni segja að þar
sameinast menningararfurinn og
nútímahönnun.
Sú tækni að skera málma, plexígler og
önnur efni með geisla eftir tölvuteikn-
uðum munstrum opnar nýja möguleika í
hönnun og framleiðslu. Studiobility
hefur nýtt sér þessa tækni við vöruhönn-
un frá árinu 2006. Hillur með munstr-
um, ýmist frá útskurði eða hannyrðum
eru meðal þess sem starfsmenn fyrirtæk-
isins hafa hannað. Þessar hillur eru sann-
kölluð vegglistaverk, enda er sumum
þeirra ekki ætlað að þjóna sem hirsla
heldur vera til prýði, því munstrin varpa
fallegum skugga þegar birta skín í gegn
eða glampi varpast á vegg vegna króm-
húðar. Hugmyndin tengist æskuminn-
ingum Guðrúnar Lilju þegar hún dáðist
að skugganum sem myndaðist þegar
sólin skein í gegnum hekluð blúnduverk
í eldhúsgardínum Sigurbjargar ömmu
hennar. I þessari hönnun er sóst eftir
þeim hughrifum sem vakna þegar ljós
skín í gegnum munstur og endurtekur
það.
Skuggaspil er sprittkertastjaki úr stáli sem kom á rnarkaáfyrir
jólin 2009. Hann er seldur í flatri pakkningu sem er aðeins
4 x 18 cm að stœrð og örþitnn. Skuggaspil er seldur eins og
aðrar vörur frá Lyng í minjagripaverslunum, hönnunarbúð-
um og völdum bókabúðum.
Guðrún Lilja stendur ásamt Sigurði
Þorsteinssyni að baki fyrirtækinu Lyng
sem er nýtt vörumerki í gjafavöru.
Hugmyndafræði fyrirtækisins byggir
meðal annars á sterkri skírskotun til
íslenskrar menningararfleifðar og nátt-
úru. Vörurnar hafa þrátt fyrir þjóðlegan
bakgrunn á sér alþjóðlegt yfirbragð, enda
ætlaðar til sölu bæði hér á landi og
erlendis. Ein af vörum fyrirtækisins sem
þegar er komin á markað er unnin beint
úr Sjónabókinni, það er kertastjaki sem
ber heitið Skuggaspil. Kertastjakinn er
eins og fleiri vörur frá Lyng seldur í flatri
pakkningu sem lítið fer fyrir og því auð-
velt að stinga í umslag og senda í pósti.
Um er að ræða þunnt útskorið stál með
munstri sem finna má á bls. 248 í
Islenskri sjónabók. Kertastjakinn er
beygður af þeim sem tekur hann úr
pakkningunni. Ljósið frá kertinu varpar
skugga og endurkasti af munstrinu og
ber hann því nafn með réttu,
Skuggaspil.
Upplýsingar um vörur Lyng má
finna á: www.lyng.is
Þessi hilla er unnin ejtir gömlu útskurðarmunstri. Hillan varpar skugga ogglampa þegar Ijós fellur á hana og
er því sannkallað augnayndi. Guðrún Lilja ásamt Sigurði Þorsteinssyni hefur einnig hannað bókamerki með
sama munstri sem selt er í vörulínu Lyng.
14 HUGUR0G HÖND2010