Hugur og hönd - 01.06.2010, Síða 23
ist þaðan úr málaradeild árið 1982. I 25 ár hefur Rúna rekið
myndlistaskólann MYND-MAL. Skólann starfrækir hún,
meðfram kennslu í Mýrarhúsaskóla, í vinnustofu sinni í hag-
anlega innréttuðum bílskúr heima hjá sér á Seltjarnarnesi. Þar
kennir hún bæði olíu- og vatnslitamálun í fámennum hópum.
Hún segir myndsköpun krefjast einbeitingar en veita þeim
sem hana stunda mikla hugarró og ánægju. Margir af nem-
endum hennar hafa ánetjast listinni og koma aftur og aftur á
námskeið og nokkrir hafa farið í lengra nám og eru starfandi
myndlistarmenn.
Oþrjótandi áhugi á dúkkum
Ahugi á dúkkum hefur alla tíð fylgt Rúnu. Þessi áhugi fer
ekki framhjá neinum þeirra sem til hennar koma, hvort sem
er á vinnustofuna eða inn á heimilið. Alls staðar eru dúkkur
af öllum stærðum og gerðum. Þetta eru dúkkur sem hún átti
sjálf í æsku, hefur búið til, keypt eða fengið að gjöf. Rúna
segist ekki lengur hafa tölu á hvað dúkkurnar eru margar en
áætlar að þær séu vel á fimmta hundrað. Á ferðum sínum til
annarra landa er hún iðin við að heimsækja dúkkusöfn og
kaupir gjarnan dúkkur sem minjagripi.
Arið 1996 fór Rúna á námskeið í postulínsdúkkugerð hjá
Selmu Björk Petersen sem lærði handbragðið í Svíþjóð. Frá
þeim tíma hefur Rúna búið til sínar eigin dúkkur og fatnað
þeirra. Nú hittast hún og Selma ásamt þeirri þriðju reglulega
í dúkkuklúbbi þar sem þær vinna að hugðarefni sínu.
Dúkkugerð er vandasamt verk og seinlegt. Postulín er
brennt við mjög háan hita og þarf því aðgang að brennsluofni
til að geta brennt höfuð, búk, hendur og fætur. Þegar hafist
er handa þarf fyrst að ákveða hvers konar dúkku á að gera og
útvega mót til afsteypunnar. Mótin er mjög mismunandi eftir
því hvort búkurinn á að vera heill eða í hlutum, hvort brúðan
á að sitja eða standa, hafa liðamót, ísett augun eða máluð. Oft
eru mótin afsteypur af gömlum dúkkum og kallast þá antík-
dúkkur. Byrjað er á því að hella postulíninu í mót en það
kemur í duftformi og þarf að blanda það vatni. Þegar búið er
að steypa búkinn þarf að brenna hann og pússa mjög vel áður
en hafist er handa við að mála. Vanda þarf vel til verka þegar
búkurinn er pússaður og eru notuð til þess fíngerð áhöld,
m.a. nælonsokkar sem ná vel á milli fingra og táa á brúðu-
hlutunum. Rúna
hefur næmt auga
fyrir smáatriðum
eins og að forma
neglur og annað
sem ekki er skýrt
afmarkað í af-
steypumótunum.
Mála þarf búk-
inn oft til að fá
fram rétta skugga
og alltaf er brennt
á milli við háan
hita. Mesta vinnan
er við höfðið, sér-
staklega þegar augun
eru máluð, og er
Brúðan Stefanía er í silkikjól og sokkum hekluðum úr tvinna, en Birta í gallapilsi
ogsokkumprjónuðum úrfínu bómullargami. Báðar eru ímyndprjónuðumpeysum
úr kambgami, smáatriði ísaumuð með árórugarni. H<eð beggja er um 33 cm.
Frá vinstri: Ingilin íklædd hekluðum kjól, undirpilsi og sokkum, Haltdís í
prjónapeysu og kjól úr eingirni og bómullarsokkum ogAstrós Inga í bómullarkjól,
peysu úr handlituðu ullargarni og hekluðum sokkum. ALlar brúðurnar eru 33 cm
háar.
algengt að þá þurfi að brenna höfuðið allt að tíu sinnum þótt
algengast sé að sex til átta skipti nægi. Rúna notast oft við
stækkunargler við þessa fíngerðu vinnu enda er árangurinn
einstaklega fallegar dúkkur. Þegar málningarvinnunni er
lokið er brúðan sett saman. Á dúkkum sem eru með liðamót
þarf að festa útlimina saman og festa þá síðan við búkinn.
Stundum þarf að sauma búkinn, allan eða að hluta. Dúkkurnar
prýða tilbúnar hárkollur, en þær eru ýmist úr mannshári,
móher eða akrýl. Móherhárkollur eru dýrastar en hægt er að
fá mjög vandaðar og fallegar hárkollur úr öllum þessum
efnum.
Þegar dúkkan sjálf er tilbúin fer Rúna að huga að fötunum
á hana. Brúðurnar fá alklæðnað frá nærfötum og sokkum til
fallegra kjóla og peysa. OU fötin hannar Rúna sjálf og eru
mörg þeirra hekluð og prjónuð úr fínasta garni og jafnvel
tvinna. Stundum verður fyrst til hugmynd að fötum og þarf
þá að búa til dúkku sem hentar
fyrir þau. Allar eiga dúkkurnar
nöfn sem stundum eru valin
eftir fólki sem þær líkjast
eða börnum sem hún
hefur kennt. Hver dúkka
er merkt með nafni, ártali
og uppruna en þær upp-
lýsingar eru einnig bók-
færðar. Rúna hefur hald-
ið sýningar á dúkkun-
um sínum á bókasafn-
inu á Seltjarnarnesi og
á vinnustofunni heima,
en hana dreymir um að
geta komið þeim fyrir á
dúkkusafni þar sem þær
fengju að njóta sín til fram-
búðar.
Brúðan Sandra Sif, 36 cm á hœð. Hér sést samsetning postulínsbrúðu með tau-
búk. Bringustykkið með bendlum er saumað á búkinn aðgamalli jyrirmynd. Við
hlið brúðunnar eru tvö mismunandi höfuð. Þannig líta postulínshlutarnir útfyrir
málun, annað höjuðið verður með ísett augu, en á hitt þarf að mála augun.
HUGUR OG HÖND 2010 23