Hugur og hönd - 01.06.2010, Side 28
Vigdís Stefánsdóttir
Brúðubíllinn
- Helga Steffensen og brúðurnar
Ljósmyndir Vilhelm Gunnarsson
Helgu Steffensen þekkja flestir. Hún er
konan á bak við Brúðubílinn, bílinn
sem íslensk börn hafa beðið eftir á leik-
völlum, almenningsgörðum og leikskól-
um síðustu 30 árin. Aldrei hafa þau
verið svikin um góða skemmtun hvern-
ig sem viðrar enda tekur Brúðubíllinn
sér ekki frí þó rigni eða hvessi svolítið.
Það er líka margsannað að það er hægt
að klæða af sér öll veður og svo gleymist
að taka eftir því þegar leikurinn hefst.
Glaður appelsínugulur litur er ríkjandi
í eldhúsi Helgu Steffensen. Raunar er
allt í eldhúsinu litríkt, rétt eins og Helga
sjálf. A vegg hangir röndótt veggteppi
og marglitur borðdúkur, smáhlutir,
föndur og fleira skemmtilegt býður
mann velkominn í hið heimilislega,
ömmulega og Helgulega eldhús.
Helga hefur alltaf haft áhuga á hand-
verki. Sem krakki var hún sífellt að búa
eitthvað til og notaði til þess allt sem
fyrirfannst í bílskúrnum og náttúrunni í
sveitinni. Hún teiknaði líka og klippti
út dúkkulísur og lék leikrit með vinkon-
unum. „Eg hef eiginlega alltaf verið að
vinna eitthvað í höndunum, hekla, gera
makrame, sauma út veggteppi og vefa“
segir hún. „Ég hef prófað margt, skera
út í línoleumdúk og þrykkja til dæmis á
föt og gardínur. Einu sinni bjó ég í
Helga d vinnustofu sinni á heimili sínu. Þar er aSfinnajjöldann allan afbrúSum aföllum stœrðum oggerðum
auk hrdefnis afýmsu tagi til brúSugerðar.
blokk og gerði vatnslitamyndir af öllum
krökkunum í blokkinni. Sum þeirra
eiga myndirnar ennþá. En svo kom
brúðulistin inn í spilið og þá var ekki að
sökum að spyrja. Upp frá því hefur allt
snúist um brúður, brúðuleikrit, brúðu-
tjöld og svo auðvitað aðalatriðið, áhorf-
endurna, börnin. Mér þykir mjög vænt
Dúkkulísur eins og þessar eru skornar út úr þykkum pappa. Agœtt að Umafot á dúkkultsuna báðum megin.
Prik er límt á svo að hœgt sé að stjórna persónunni neðanfrá. Þessarpersónur eru úr sögunni um Stúf en leikritið
var sýnt í Brúðubílnum. ÞaS er gaman að nota imyndunaraflið við gerð brúða afþessu tagi.
um starfið og börnin, það er afar gef-
andi að taka þátt í og vinna að barna-
menningu. Oft eru sýningar Brúðu-
bílsins fýrstu leiksýningar sem börnin
sjá. Hjá okkur læra þau að fara í leik-
hús, að hlusta og horfa og líka að taka
þátt í því sem fram fer á sviðinu”.
Upphafið
Fyrir mörgum árum þegar Helga vann
hjá Sjónvarpinu tók hún þátt í nám-
skeiði í brúðugerð hjá Kurt Zier sem
hafði verið skólameistari Myndlista- og
handíðaskólans. „Hann var mikill
brúðuhönnuður og listamaður", segir
Helga. „Við byrjuðum nokkrar saman
hjá honum og fengum þar mjög góða
undirstöðu í brúðugerð”.
I framhaldi af þessu námskeiði var
Leikbrúðuland stofnað 1968 en það
fékk inni í kjallaranum á Fríkirkjuvegi
11 árið 1972. I Leikbrúðulandi voru
auk Helgu, Erna Guðmarsdóttir,
Bryndís Gunnarsdóttir og Hallveig
Thorlacius. Leikbrúðuland átti 40 ára
afmæli árið 2008 og síðustu sýningarnar
„Selurinn Snorri“ og „Vinátta" eru enn
á ferðinni í leikskólum og kirkjum.
28 HUGUR 0G HÖND 2010