Fréttablaðið - 21.03.2020, Qupperneq 53
Sigrún Elísabeth Arnar-dóttir tók við þremur stjúpbörnum þegar hún hóf sambúð með fyrrver-andi eiginmanni sínum aðeins 16 ára gömul og
f ljótt bættust þeirra eigin börn
í hópinn. „Ég var nýorðin 16 ára
þegar ég flutti frá Hvammstanga út í
sveit til mannsins míns fyrrverandi,
sem þá var þrjátíu og eins árs bóndi.
Það var dásamlegt að búa í sveitinni
og mér leið mjög vel þar. Ég kom þó
minnst nálægt sveitastörfum, hann
var bóndinn og ég var húsmóðir auk
þess að sjá um börnin.“ Sigrún var
nýorðin 17 ára þegar fyrsta barnið,
dóttirin Perla, kom í heiminn og í
framhaldi bættist þétt í hópinn en
um tvö til þrjú ár voru á milli barna.
Sigrún ólst upp í fjögurra systk-
ina hópi og aðspurð hvort hana
hafi alltaf langað í stóra fjölskyldu
svarar hún: „Nei, ég hef aldrei spáð
í það hversu mörg börn mig langi
í. Alls ekki. En þegar ég var krakki
og unglingur passaði ég oft börn og
ellefu ára gömul eignaðist ég litla
systur sem fylgdi mér um allt og
var mikið hjá mér þegar ég f lutti í
sveitina.“
Fimm barna móðir 25 ára
Við tuttugu og fimm ára aldur var
Sigrún orðin fimm barna móðir. „Ég
hef alltaf verið langt á undan sjálfri
mér,“ segir Sigrún þegar talið berst
að því að hún hafi óvenju ung átt
mörg börn. Í þessum töluðu orðum
hringir síminn. Ein af eldri dætr-
unum er með þær fréttir að leik-
skólinn loki óvenju snemma í dag
og því þurfi að sækja yngsta soninn
fyrr. Það er augljóst að samvinnan
er góð á heimilinu og dóttirin tekur
þetta að sér möglunarlaust. „Ég held
ég hafi alltaf verið fullorðinsleg þó
ég hafi tekið hratt unglingsskeið um
12-14 ára aldurinn.“ Jafnaldrar Sig-
rúnar á Hvammstanga splittuðust
út um landið í framhaldsnám eftir
grunnskólann og segist Sigrún ekki
hafa spáð mikið í það hvað hinir
væru að gera, sjálf hafi hún verið
ÉG HEF TEKIÐ AÐ MÉR
BÖRN BÆÐI Í STUÐNING
OG FÓSTUR Í 18 ÁR SVO
ÞAÐ ER KOMINN GÓÐUR
SLATTI AF BÖRNUM.
Fjölskyldan
þurfti heilt
gistiheimili
Sigrún Elísabeth Arnardóttir hafði aldrei
séð fyrir sér að eignast stóran barnahóp en
örlögin höguðu því þannig að hún eignaðist
10 börn á átján árum, auk þess að taka að
sér þrjú stjúpbörn og eitt fósturbarn.
Ólíkt því sem einhver hefði haldið var ekki vandamál að ná öllum hópnum saman á mynd. Aftari röð: Eldon Dýri, Helga Sóley fósturdóttir Sigrúnar, Perla Ruth, Myrra Venus, Sóley Mist, Skjöldur
Jökull, Frosti Sólon. Fremri röð: Sigrún Elísabeth með Bæron Skugga í fanginu, Fanney Sandra með Líam Myrkva son sinn í fanginu, Jasmín Jökulrós og Máney Birta. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Heimili fjölskyldunnar á Selfossi hýsti áður gistiheimili fyrir ferðamenn,
þar er pláss fyrir alla enda svefnherbergin níu talsins og allir hjálpast að.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
komin með börn og haft í nægu að
snúast.
Heyra má að Sigrún er stolt af
börnum sínum stórum og smáum.
„Krakkarnir eru öll rosalega flott og
dugleg. Frumburðurinn Perla er 23
ára og spilar handbolta með Fram
og landsliðinu. Hún og kærastinn
hennar keyptu sér hús á Selfossi í
fyrra og ætla að gifta sig í sumar.“
Tvær elstu dæturnar eru fluttar að
heiman og er sú þriðja með annan
fótinn í Reykjavík þar sem hún er í
námi.
Fjórtán börn með öllum
Sigrún er orðin amma en næstelsta
dóttir hennar, Fanney er orðin
móðir. „Ég á f imm barnabörn,
næstelsta dóttir mín á barn sem er
20 mánaða og stjúpdætur mínar
tvær eiga tvö börn hvor. Maðurinn
minn átti þrjú börn fyrir og ein
stjúpdóttirin mín býr á Selfossi og
er samgangurinn mikill, strákurinn
hennar hleypur til dæmis oft til
okkar eftir æfingar og hin tvö sem
búa í Mosó koma oft um helgar. Tvö
stjúpbarna minna bjuggu þónokk-
uð mikið hjá okkur í sveitinni og tel
ég stjúpbörnin til minna barna.“
En þá er þó ekki öll sagan sögð,
tíu börn og þrjú stjúpbörn en nú
býr einnig hjá Sigrúnu, í varanlegu
fóstri, stúlka sem hún telur einnig
til sinna barna. Samtals eru börnin
þá orðin fjórtán. Sigrún hefur aftur
á móti ekki tölu á því hversu mörg
börn hún hafi tekið að sér í gegnum
tíðina. „Ég hef tekið að mér börn
bæði í stuðning og fóstur í 18 ár
svo það er kominn góður slatti af
börnum.“
Aðspurð hvers vegna hún hafi
opnað heimili sitt og tekið að sér
börn í fóstur, svarar hún með ann-
arri spurningu: „Af hverju ekki? Ég
er fær um það og það hefur alltaf
gengið vel,“ segir Sigrún og hugsar
sig um: „Ég er ofboðslega lánsöm. Ég
á stórt og þétt fjölskyldunet og bý að
miklum stuðningi. Það eru margir
sem eiga það ekki og þar sem ég er
fær um að hjálpa finnst mér það
sjálfsagt.“
Langaði alltaf í nám
Þar sem Sigrún flutti í sveitina eftir
grunnskólann og börnin komu
fljótt eitt af öðru, sat frekari skóla-
ganga lengi á hakanum. „Mig hefur
alltaf langað í nám og hefði örugg-
lega farið í það fyrr hefði það verið
í boði. Ég prófaði fjarnámsáfanga
þar sem ég þurfti að sjá sjálf um allt
utanumhald og einnig bréfaskóla
þar sem ég var að frímerkja verkefni
og senda, en lítið sem ekkert var um
kennslu svo lítið varð úr þessu.“
Hin námsþyrsta Sigrún sá svo
árið 2010 auglýsingu frá Háskóla-
stoð en í ljós kom að til að fara þá
leið þyrfti hún að mæta vikulega í
tíma í Reykjanesbæ. Búandi í sveit-
inni við Hvammstanga með fjöl-
mörg börn vissi hún að það myndi
ekki ganga. „Ég reyndi mikið að fá
það í gegn að taka námið alfarið
sem fjarnám en það karp gekk ekki
lengi vel. Svo fór þó að ákveðið
var að verða við ósk minni og mér
boðið að hefja fjarnám. Þá aftur á
móti var ég með fjögurra mánaða
gamalt barn og ekki alveg tilbúin.
Starfsmaðurinn sem ég hafði verið
í sambandi við hringdi þá í mig
og tilkynnti mér að ég gæti þetta
alveg.“ Sigrún skráði sig til náms í
Háskólastoð og í framhaldi í Keili
og lauk þaðan stúdentsprófi. „Það
var svo gaman að finna að maður
gæti lært. Það var allt annar og nýr
heimur sem opnaðist þegar ég var
komin í nám og kynntist öðru fólki,
það var æðislegt.“
Stúdentagarðar með átta börn
Eftir stúdentsprófið hóf Sigrún
fjarnám í sálfræði við Háskólann á
Akureyri. „Þegar ég var í BA-náminu
var ég með tvö ungbörn en þannig
hefur því í raun verið hagað með
allt mitt nám,“ segir Sigrún og hlær.
„Myrra átti það til að vakna á 10
mínútna fresti á kvöldin og þá brá
ég á það ráð að setja hana í barnabíl-
stól undir borð. Þannig gat ég rugg-
að henni með fótunum í myrkrinu
undir borðinu á meðan ég sjálf lærði
í birtu.“
Eftir útskriftina frá Háskólanum
2 1 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð