Gríma - 01.09.1938, Side 43
5.
Selveiðifarir á Dröngum.
[Handrit Oskars Clausens sagnaritara].
Fyrir og um miðja síðastliðna öld bjó Sigurður
Alexíusson á Dröngum á Ströndum. Kona hans var
Guðrún Ebenesersdóttir og var hún seinni kona
hans. Bræður Sigurðar voru tveir; annar var Grímur
bóndi á Seljanesi, en hinn hét Alexíus.
Það var hald manna, að Sigurður á Dröngum ætti
mikla peninga og hefði safnað þeim lengi. Þegar
fyrri kona hans dó, var Jón kammerráð á Melum i
Hrútafirði sýslumaður í Strandasýslu og skipti hann
þá búi hans. Þá afhenti Sigurður honum í skiptalaun
svo gamla peninga, að sýslumaður þekkti þá varla,
og var hann þó haldinn glöggur á mynt. Sýslumað-
ur tók þó við þessum gömlu peningum, en hefur víst
ekki viljað bæta þeim í safn sitt eða gengið vel að
koma þeim út, því að vorið eftir beiddi hann Sigurð
að útvega sér vætt af fiðri norðan frá Horni, og
gjörði hann það, en þá greiddi kammerráðið með
sömu peningunum. — Sigurði var þá drumbs um að
taka við þeim og hafði á orði að senda sýslumanni
þá aftur, en ekkert mun hafa orðið af því. —
Sigurður var mesta hraustmenni og veiðikló hin
mesta, enda mikið um föng þar nyrðra. Einkum er
orð gjört af því, hversu hann var slingur við að