Bændablaðið - 25.02.2016, Side 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Auka þarf nýsköpun í landbúnaði og tryggja stöðugt framboð, segir Keli vert í Langaholti á Snæfellsnesi:
Landbúnaðurinn hefur ekki
fylgt ferðaþjónustunni eftir
Samkvæmt Vinnumarkaðs-
rannsókn Hagstofu Íslands voru
að jafnaði 188.500 manns á
aldrinum 16 til 74 ára á vinnu-
markaði í desember 2015, sem
jafngildir 81% atvinnuþátttöku.
Launavísitalan hefur hækkað um
9,7%.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands segir að af þeim
voru 184.900 starfandi og 3.600
án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall
starfandi af mannfjölda var 79,4%
og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli
var 1,9%.
Atvinnuleysi hefur ekki mælst
lægra í mælingum Hagstofu Íslands
síðan í nóvember 2007 þegar það
mældist 1,3%. Samanburður mæl-
inga í desember 2014 og 2015
sýnir að það fjölgaði í vinnuaflinu
um 4.800 manns, atvinnuþátttak-
an jókst því um eitt prósentustig.
Fjöldi starfandi jókst um 9.100 og
hlutfallið af mannfjölda um 2,9 stig.
Atvinnulausum fækkaði um 4.300
manns og hlutfall þeirra af vinnu-
aflinu minnkaði um 2,4 stig. /VH
Gistihúsið Langaholt í Staðarsveit
á Snæfellsnesi hefur sérhæft
sig svolítið í fiskréttum. Hefur
hróður Kela verts, Þorkels S.
Símonarsonar, borist víða og nýtur
hann frábærra samskipta við sjó-
menn, fiskmarkaði og útgerðar-
menn á Snæfellsnesi. Hann segir
þó skemmtilegt að vita til þess
að nú sé að verða smá vakning í
landbúnaðinum til að sinna ferða-
þjónustunni, en þar þurfi að gera
miklu betur.
Í Langaholti er fullvinnslueld-
hús. Fiskurinn er keyptur heill og
flakaður á staðnum og beinin soðin
í súpukraft. Þannig kaupir Keli á
fjórða tonn af fiski á ári á fiskmark-
aði.
Keli segir að heimavinnsla á
kjöti og öðrum afurðum landbún-
aðarins sé enn af mjög skornum
skammti á Snæfellsnesi.
„Allavega ekki í þeim mæli sem
veitingabransinn þarf. Þetta er þó
allt í rétt átt.“
Of lítið framboð og stopul vinnsla
Hann segir að gallinn við heima-
vinnsluna fram til þessa sé að flestir
séu að vinna vörur í mjög litlu magni
og í stuttan tíma á hverju ári. Þetta
sé í raun nákvæmlega eins og ferða-
þjónustan var rekin á bernskuárum
sínum. Ferðaþjónustan hafi hins
vegar verið að þróast hratt og þeir
sem eru með heimavinnslu hafi ekki
skoðað nægilega vel hennar þarfir við
breyttar aðstæður.
Kjötvinnslan of mikið innstillt á
þarfir stórmarkaða
Að sögn Kela þekkja kunningjarnir
og bændurnir í nágrenninu vel til
gagnrýni hans á landbúnaðarkerfið
sem slíkt.
„Ef maður persónugerir kerfið, þá
hefur það þumbast dálítið við að líta
á þennan markað og tækifærin sem
þar felast. Kjötframleiðslan í landinu
er afskaplegalega mikið innstillt á
hillupláss í stórmörkuðunum. Einnig
neysluvenjur Íslendinga sem þjóðar.
Nú erum við komin með yfir milljón
ferðamenn á ári og þar er fólkið sem
getur og hefur efni á að borða dýru og
fínu bitana. Landbúnaðarkerfið hefur
ekki kosið að líta í þá átt. Sem dæmi
er mjög stór munur á því hvernig
fiskiðnaðurinn hefur horft á ferða-
þjónustuna. Sú grein njóti þess nú
að hafa verið með öðruvísi mark-
aðsstarf áratugum saman og við að
þjónusta fólk af ólíkum uppruna víða
um heim.“
Hákarlinn sannar hvað
hægt er að gera
„Fyrir tuttugu árum hefði enginn
trúað mér að það kæmu milljón
túristar til Íslands og hver einasti
þeirra teldi sig ekki vera mann
með mönnum nema hafa prófað að
smakka hákarl. Slík fullyrðing hefði
þótt fráleit fyrir nokkrum áratugum.
Ef eitthvað er séríslenskt vekur það
forvitni. Þetta sannar hákarlinn. Þótt
okkur hafi kannski þótt hann óað-
laðandi og vart bjóðandi, þá er bara
spurningin að gera hann spennandi
og það hefur tekist.
Þessum óskum hefur sjávarút-
vegurinn og ferðaþjónustan mætt.
Ég hef því sagt að ef landbúnaður-
inn hefði sýnt sama lit við að sinna
markaðnum, þá væru svið í jafn
miklum metum hjá ferðamönnum
og hákarlinn.“
Tækifærin liggja í að sinna
veitingahúsunum
„Menn hafa bara ekki nýtt sér tæki-
færin. Flest veitingahús séu ekki
með fullvinnslueldhús og þurfi því
meira unna vöru en heila skrokka.
Þessi veitingahús þurfi helst að
ákveða í dag kvað þau ætli að hafa
á matseðlinum eftir hálft, eða heilt
ár. Þar bregst landbúnaðurinn, því
veitingahúsin geti ekki treyst því að
fá nýunnið kjöt eða þróaðar kjötvörur
þegar þau þurfi á því að halda. Þörfin
og magnið sé samt stöðugt að aukast
og menn neyðast þá til að leita til
útlanda eftir slíku hráefni.
Það er vissulega mikil gerjun á
sumum sviðum landbúnaðar. Nú
er t.d. íslenskt bygg í boði á öðrum
hvorum matardiski á veitingastöð-
um. Þetta gerðist í kjölfar þess að
Eymundur í Vallanesi var búinn að
reyna í mörg ár að fá okkur til að prófa
íslenskt bygg í okkar matargerð. Nú
borða erlendir túristar íslenskt bygg
mörgum sinnum meðan þeir staldra
hér við og Eymundur getur selt sína
uppskeru. Menn þurfa því að vera
vakandi yfir möguleikunum. Við
getum selt túristunum okkar nánast
allt. Við þurfum þó að gera það vel
og ekki með lakari hætti en gert er á
öðrum stöðum í heiminum.“
Eigum endalausa möguleika
„Við eigum endalausa möguleika,
en landbúnaðarkerfið sem slíkt
hefur ekki viljað dansa með.
Veitingamenn nenna ekkert að taka
þátt í pólitískum hráskinnaleik hvað
þetta varðar og fara bara auðveld-
ustu leiðina. Ef það er erfitt að fá þá
vöru sem óskað er á Íslandi þegar
á henni þarf að halda, þá taka þeir
bara innfluttar vörur í staðinn.
Þróunin er samt að byrja í rétta
átt. Það eru útlendingarnir sem
munu borða smjörfjallið okkar og
borða dýru bitana, á meðan við
Íslendingarnir tökum bara það
ódýrasta til að halda okkar heimili.
Þegar maður reynir að ræða
þessi mál við þá sem hafa eitthvað
með kerfið að gera, þá grafa menn
sig fljótt í skotgrafir og koma
með upphrópanir. Oft líka án
þess að vilja setja sig inn í málin.
Veitingamenn eru bara að reyna að
sinna sínu starfi. Þeim er umhugað
um að koma með nýjungar og ef
vel tekst til þá verður það vinsælt.
Sama má gera úr öllu okkar hrá-
efni eins og sviðunum. Ef þau eru
hins vegar ekki til þegar á þarf
að halda, þá seljast þau auðvitað
ekki.“
Bráðum borða túristar meira en
innfæddir
„Ferðamenn eru alltaf til í að prófa
skrítinn mat og við getum gert
miklu meira ef við leggjum okkur
eftir því. Bráðum verður það svo
að túristarnir borða meiri mat hér
á landi en þjóðin.
Þó ég segi þetta, þá eru fyr-
irtæki í landbúnaðinum sem eru
að gera mjög góða hluti. Þeir hjá
Fjallalambi fyrir austan eru t.d.
að standa sig feikilega vel og með
afburða þjónustu miðað við aðrar
afurðastöðvar,“ segir Keli vert á
Snæfellsnesi. /HKr.
− Sjá viðtal við Kela á bls. 26-28
Hagstofa Íslands:
Atvinnuleysi ekki
minn frá 2007
Fréttir
Þátturinn Í hlaðvarpanum, sem
er fræðsluþáttur um landbúnað-
armál, hóf nýverið göngu á dag-
skrá sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN á
mánudagskvöldum kl. 21.30.
Í þættinum næstkomandi mánu-
dag verður fjallað um mikilvægi
þess að framleiða og nota lífrænan
áburð, auk þess sem rætt verður við
ungan bónda á Vesturlandi.
Í síðasta þætti var fjallað um
hættur af innflutningi hrárra matvæla
og plantna, auk þess sem spjallað var
við ungan kúabónda á Stóru-Mörk
undir Eyjafjöllum. Hægt er að sjá
hann og fyrri þætti á á heimasíðu
ÍNN, inntv.is.
Þáttastjórnendur eru þau Áskell
Þórisson blaðamaður og Berglind
Hilmarsdóttir bóndi.
Í Hlaðvarpanum á ÍNN:
Nýr þáttur í loftið
á mánudaginn
Lífland mun hefja innflutning
tilbúins áburðar í vor og er þetta
í fyrsta sinn sem félagið býður
upp á slíka vöru.
Í fréttatilkynningu frá Líflandi
segir að meginástæða þess að
félagið fetar þessa braut er stefna
sem mörkuð hefur verið um að
geta boðið bændum landsins upp
á heildarlausnir í búrekstrarvörum.
Áburðurinn er markaðssettur
undir heitinu „LÍF“ og slagorðinu
„Fáðu LÍF í tún og Akra“ sem vísar
beint í eiginleika áburðarins og
nafn Líflands.
Áburðurinn kemur frá írska
fyrirtækinu Grassland Agro og
uppistaða vöruframboðsins eru
fjölkorna blöndur. Grassland Agro
er virt fyrirtæki á írska áburðar-
markaðinum og um þeirra hendur
fer um fjórðungur alls áburðar sem
seldur er á Írlandi þar sem þeir reka
þrjár blöndunarstöðvar.
Verða alls níu vörutegundir á
boðstólum þetta árið, m.a. nokkr-
ar selenbættar. Nánari upplýsingar
um vöruúrvalið og tilhögun flutn-
ingstilboða veita söluráðgjafar
Líflands. /VH
Lífland hefur
áburðarsölu Mynd / HKr.
Mynd / HKr.