Bændablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Fréttir
Með sigrinum í keppninni um
Kokk ársins 2016 vann Denis
Grbic sér þátttökurétt í keppni
um besta norræna kokkinn sem
fram fer í Danmörku í mars.
Denis má því ekki slá slöku við
æfingar næstu daga. Norræna
keppnin er talin með erfiðari
kokkakeppnum en síðustu
ár hafa matreiðslumenn frá
Norðurlöndunum notið mikill-
ar velgengni á alþjóðavettvangi.
Denis byrjaði ungur að hafa
áhuga á kokkamennsku og hann
segist hafa fengið áhugann hjá
foreldrum sínum. „Ég varði
miklum tíma í eldhúsinu þegar ég
var krakki. Mamma ætlaði alltaf
að verða kokkur en þau áform
fóru í bið þegar ég fæddist. Eftir
grunnskólann fór ég að vinna
við byggingarvinnu og lærði að
verða múrari. Samhliða nám-
inu vann ég á skyndibitastað en
þegar kreppan skall á hætti ég hins
vegar í múrverkinu, rétt kominn
að sveinsprófinu, og skellti mér í
Menntaskólann í Kópavogi í mat-
reiðsluna. Ég fór á samning hjá
Hótel Sögu og kláraði sveinspróf-
ið árið 2013. Þá hóf ég störf á Dill
og var þar um tíma þar til mér
bauðst starf á Grillinu þar sem ég
er nú. Ég er því búinn að vera sjö
ár í faginu,“ segir Denis.
Stíf keppni í Danmörku
Norræna keppnin um kokk ársins
á Norðurlöndunum verður haldin
í Herning í Danmörku í mars.
„Við förum út 6. mars, keppum
og komum aftur heim 9. mars. Nú
standa yfir æfingar en fyrirkomu-
lagið er þannig að við fáum fjóra
klukkutíma í undirbúning og þar
til maður skilar forrétti, þar á eftir
klukkutíma fyrir aðalrétt og loks
80 mínútur fyrir eftirréttinn. Ólíkt
keppninni hér heima er ég einn
á báti þar sem ég verð ekki með
neinn aðstoðarmann,“ segir Denis
en það var Hinrik Örn Lárusson,
matreiðslunemi á Grillinu, sem var
honum innan handar í Hörpunni
á dögunum. Á sama tíma verð-
ur þjónakeppni og keppni yngri
kokka í Herning. Annar fulltrúi úr
Grillinu verður í þjónakeppninni en
það er Thelma Björk Hlynsdóttir
sem um þessar mundir er við störf
á Michelin-staðnum Olo í Helsinki
í Finnlandi.
„Við erum með besta
veitingastaðinn á landinu!“
Aðspurður um það hvaða þýðingu
það hafi fyrir Grillið að vera með
hvern verðlaunakokkinn á fætur
öðrum í starfsliðinu segir Denis
það ekkert vafamál. „Við erum með
besta veitingastaðinn á landinu!
Þetta er vissulega mjög góð aug-
lýsing fyrir okkur og við finnum
fyrir því. Það er fullbókað næstu
3–4 helgar og viðskiptavinahópur-
inn á örugglega eftir að stækka,“
segir Denis. Hann segist vera mik-
ill aðdáandi norrænnar matargerðar
og með það í huga henti samstarf
við íslenska bændur mjög vel.
„Við erum opnir fyrir öllu sam-
starfi við bændur. Á Íslandi er eitt
flottasta hráefni sem býðst og við
erum stoltir af því að geta boðið
upp á það besta. Allt sem við fáum
og bjóðum hér á Grillinu er í hæsta
klassa.“
Var í hópi flóttamanna
sem settust að á Íslandi
Denis fluttist hingað til lands með
foreldrum sínum frá Króatíu árið
1996. „Við vorum í hópi flótta-
manna sem settust að á Ísafirði. Ég
var ellefu ára gamall og var strax
settur í stíft íslenskunám sem gekk
vel. Árin á Ísafirði voru frábær en
eftir fjögur ár þar fluttum við suður.
Pabbi minn er Serbi en mamma er
Króati. Maður reynir að fara reglu-
lega til Króatíu enda á maður þar
ættingja og vini,“ segir Denis sem
er fjölskyldumaður með konu og
tveggja ára dóttur. Aðspurður um
það sem er fram undan segir kokkur
ársins að það sé að taka þátt í keppn-
inni í Danmörku og síðan einfald-
lega að mæta á vaktina á Grillinu.
/TB
Á Grillinu starfa fjórir verðlaunakokkar um þessar mundir:
„Erum með besta
veitingastaðinn á landinu“
„Á þessu stigi getum við ekki svar-
að því þó að við stefnum að því. Til
þess að þetta sé möguleiki verður
samstaða að ríkja meðal land-
eigenda en við erum landeigend-
ur við Seljalandsfoss ásamt með
fjórum jörðum við Seljaland.
Við Skóga eru þetta héraðsnefnd-
irnar tvær, Vestur-Skaftfellinga og
Rangæinga, þannig að þar koma
fimm sveitarfélög að málinu. Við
þurfum líka að færa til og laga bíla-
stæði við fossana, það er væntanlega
forsenda þess að geta hafið gjald-
töku,“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason,
sveitarstjóri Rangárþings eystra,
þegar hann var spurður hvort það
ætti að fara að taka upp gjaldtöku á
bílastæðunum fyrir ferðamenn við
Seljalandsfoss og Skógafoss, sem
báðir eru staðsettir í Rangárþingi
eystra. Sveitarfélagið hefur verið
í sambandi við fyrirtæki sem sér-
hæfa sig í búnaði varðandi gjaldtöku
á bílastæðum, salernum og þess hátt-
ar. Við Seljalandsfoss hefur verið
rætt um að gjaldtakan verði hugs-
anlega í höndum heimamanna, þ.e.
að landeigendur sjái um þennan þátt
ferðaþjónustunnar.
Ekki hlynntur skoðunargjöldum
En hvað með Ísólf Gylfa sjálfan, vill
hann sjá gjaldtöku við ferðamanna-
staði í sveitarfélaginu?
„Ég vildi gjarnan komast hjá
því að innheimta einhvers konar
skoðunargjöld. Hins vegar er mik-
ill átroðningur við þessa staði, við
rekum salerni o.þ.h. sem er kostn-
aðarsamt og engin ástæða að reka
frítt fyrir ferðamenn. Sjálfur hefði
ég kosið að þessi gjöld væru inni í
farmiðanum til Íslands eða einhvers
konar borgar- eða landsgjald eins
og þekkist víða í útlöndum.“ Rætt
hefur verið um samræmda gjaldtöku
á ferðamannastöðum í Rangárþingi
eystra en út á hvað gengur sú hug-
mynd?
„Við höfum verið á sameiginleg-
um fundum með ferðaþjónustuaðil-
um sem eru við Suðurströndina. Það
er afar æskilegt að þetta sé með sama
eða svipuðum hætti alls staðar. Við
erum líka á Kötlu jarðvangssvæði og
þetta eru alls konar vangaveltur sem
hafa komið upp.
Auðvitað er líka ákveðin skylda
sem liggur á ferðaskrifstofum og
rútu fyrirtækjum sem koma með
gestina á þessa fjölförnu staði. Flestar
nýjar rútur eru með salernisaðstöðu
sem einhverjir fullyrða að lítið séu
notaðar, það þarf líka að vera aðstaða
til þess að tæma þau ferðaklósett,“
segir Ísólfur Gylfi. /MHH
Stefnt að gjaldtöku á bílastæðunum
við Seljalandsfoss og Skógafoss
Á Grillinu er sannkallaður verðlaunakvartett starfandi í eldhúsinu. Frá vinstri:
Myndir / TB
Denis Grbic, Kokkur ársins 2016,
hefur starfað í faginu í 7 ár.
Denis Grbic er Kokkur ársins 2016
Keppni um útnefninguna Kokkur
ársins fór fram í Hörpu 13. febr-
úar síðastliðinn. Þá mættust í
fimm manna úrslitum kokkar
sem unnið höfðu sér þátttöku-
rétt úr tíu manna keppni sem
haldin var 8. febrúar. Denis
Grbic, matreiðslumaður á
Grillinu á Hótel Sögu, bar sigur
úr býtum, en í öðru sæti var
Hafsteinn Ólafsson á Nasa og
þriðji varð Ari Þór Gunnarsson
á Fiskifélaginu. Þetta er annað
árið í röð sem matreiðslumeist-
ari af Grillinu hlýtur nafn-
bótina, en í fyrra sigraði Atli
Erlendsson.
Fyrirkomulagið á keppninni,
sem áður hét Matreiðslumaður
ársins, var að faglærðir mat-
reiðslumenn sendu inn í keppnina
uppskrift ásamt mynd af réttinum.
Valnefnd skipuð fimm faglærðum
dómurum völdu nafnlaust þær 10
uppskriftir sem þóttu lofa góðu
þar sem mið er tekið af frumleika,
nýtingu á hráefni og útliti réttar.
Lambið í leyndarkörfunni
Keppendur fengu fimm klukkustund-
ir til að elda þriggja rétta matseðil
sem samanstóð af forrétti, aðalrétti
og eftirrétti. Daginn fyrir úrslita-
keppnina var upplýst um hvaða hrá-
efni væru í boði fyrir keppendur,
þegar hulunni var svipt af svokall-
aðri leyndarkörfu. Þar kom í ljós að
í forrétt skyldi notað langa, humar,
og söl. Í aðalrétt yrði notaður
lambahryggur og lambasíða. Í eft-
irrétt Omnom-súkkulaði, grænt epli
og lakkrís. Að auki völdu keppend-
ur sitt eigið grænmeti, mjólkurvör-
ur og þurrvörur. Keppendur skyldu
mæta með eigin aðstoðarmann eða
matreiðslunema, sem mætti vera 23
ára eða yngri á keppnisdag.
Félgagsskapur sigurvegara
keppninnar
Það er Klúbbur matreiðslumeistara
sem hefur veg og vanda að keppn-
inni eins og áður og byggir á sterkri
sögu og hefð. Fyrir keppnina var
stofnaður félagsskapur sigurvegara
keppninnar frá upphafi, en hópur-
inn fylgdi keppninni úr hlaði og
tók virkan þátt í undirbúningi og
framkvæmd. Yfirdómari keppninnar
í ár var Sven Erik Renaa frá Noregi.
Samhliða keppnishaldinu var
boðið til glæsilegs kvöldverðar þar
sem Kokkalandsliðið sá um að mat-
reiða fjögurra rétta máltíð sem borin
var fram með ljúffengu víni, en talið
er að um 200 manns hafi gætt sér á
krásum landsliðsins. /smh
Hafsteinn, Ragnheiður E. Árnadóttir,
Denis Grbic, Björn Bragi Bragason,
og Ari Þór. Mynd / Sigurjón Sigurjónsson
www.VBL.is
REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is
DRIFSKÖFT OG
DRIFSKAFTAEFNI
GOTT ÚRVAL Í BOÐI
ÖRYGGISHLÍFAR Á
MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI
REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
HÆGT ER AÐ KAUPA STAKA HLUTI Í DRIFSKAFTAHLÍFAR
ERU ÖRYGGISMÁLIN Í LAGI?
-
arstjóri Rangárþings eystra.
Handverkshátíð 2016:
Opnað fyrir umsóknir
Opnað hefur verið fyrir umsókn-
ir þátttakenda á Handverkshátíð
við Hrafnagil sem haldin verður
dagana 4.–7. ágúst næstkomandi.
Líkt og undangengin ár geta
þátttakendur sótt um sölubás á inni-
svæði, útisvæði eða í matvælatjaldi.
Með umsókn skuldbindur sýnandi
sig til að taka þátt í sýningunni alla
fjóra sýningardagana.
Í ár verður haldin samhliða
Handverks hátíðinni Landbúnaðar-
sýning auk þess sem aukin áhersla
verður lögð á matvæli, sér í lagi mat-
væli úr héraði.
Til að sækja um er bent á heima-
svæði Handverkshátíðar sem er að
finna í tengli inni á síðu Eyjafjarðar-
sveitar, esveit.is. Umsóknarfrestur er
til og með 1. apríl. Niðurstaða mun
liggja fyrir þann 2. maí og verður
öllum umsóknum svarað.