Bændablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Það er full ástæða til að óska
bæði bændum og neytend-
um til hamingju með nýgerða
búvörusamninga. Og jafnframt
að flytja forystumönnum land-
búnaðarins og landbúnaðarráð-
herra þakkir og óska þeim til
hamingju með samningana.
Nú sjá bændur langt fram í
tímann því samningarnir eru til
tíu ára, þetta skiptir miklu máli
í allri áætlanagerð í atvinnugrein
sem þarf langan tíma til að sjá kálf
verða að kú og lamb að á.
Fljótt á litið sýnist mér að
stærstu tíðindi þessa búvöru-
samnings og mestu kostir hans
séu hversu langt fram í tímann
hann nær. Jafnframt að samstaða
hafi tekist í ríkisstjórninni um að
uppfæra magntolla í mjólkund-
anrennudufti og ostum til þess
raunverðs sem gilti 1995. Enn
fremur að nú skuli nautakjöts-
framleiðslan efld og nautabændur
fái stuðning, vonandi til að gera
Ísland að einu besta nautaeldis-
landi Evrópu, það er hægt. En
samningana þarf að skýra vel fyrir
bændum sem taka ákvörðun um
framtíð hans í atkvæðagreiðslu.
Einnig þarf framkvæmd samn-
ingsins að liggja ljós fyrir svo
sem verðlagningin í mjólkinni
og hvernig verður að henni staðið.
Hörfað með aflagningu á
greiðslumarkskerfinu
Forystumennirnir halda hins
vegar áfram að boða byltingu á
greiðslumarkskerfinu þótt þeir
hafi hörfað frá því að leggja
það af eins og til stóð, en megn
óánægja í grasrót kúabænda réð
því að þeir bökkuðu. Svokölluð
Ragnarsskýrsla sýndi fram á að
slík ákvörðun hefði leitt af sér
kjaraskerðingu og valdið átök-
um milli bænda og innan búgrein-
anna.
Ég fann vel á mjög fjöl-
mennum fundi í Þingborg í Flóa
hvernig Birgir Þór Runólfsson
prófessor útskýrði á mannamáli
kjarnann í Ragnarsskýrslunni
og bændunum var brugðið. Nú
verður það stórt verkefni næstu
tvö árin að vega og meta hvort
greiðslumarkskerfið haldi áfram
út samningstímann eða það verði
fellt niður í atkvæðagreiðslu
meðal bænda.
Fróðlegt væri að vera á fundi
þar sem hagfræðingurinn, sem
bæði bændaforystan og ráð-
herra styðjast við, Daði Már
Kristófersson, og hins vegar
Ragnar Árnason prófessor rök-
ræddu afleiðingarnar sem fylgdu
breytingunni sem til stóð að knýja
í gegn.
Líka hagur neytenda
Fullyrða má að þessi samning-
ur skiptir neytendur ekki síður
en bændur, miklu máli, en þeir
vilja íslensk matvæli á sitt borð
og standa með bændum. Búvöru-
samningurinn er trygging þess
að landbúnaðurinn mætir nýjum
tímum af þrótti. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætis-
ráðherra hefur talað máli land-
búnaðarins og aldrei dregið af
sér í þeim efnum, hann segir nú í
Morgunblaðinu um búvörusamn-
ingana:
„Alsiða er að ríkið komi í ein-
hverri mynd að gerð kjarasamn-
inga á almenna markaðnum og
í grunninn séu samningar um
búvöruframleiðsluna sáttmáli um
kjör bænda. Þar hangir þó meira
á spýtunni, svo sem markmið um
framleiðslu heilnæmra afurða,
gjaldeyrissparnaður, auðlinda-
nýting og byggðastefna.“
Njála í Borgarleikhúsinu
Borgarleikhúsið hefur ráðist í það
stórvirki að setja Njálu, áhrifa-
ríkustu sögu okkar Íslendinga, á
svið. Margir ráðlögðu mér að fara
ekki á sýninguna, þeir töldu að ég
myndi sennilega ganga út í hléi.
Nú er frá því að segja að ég fór,
borðaði kjötsúpuna og hlustaði
á Óttar Guðmundsson geðlækni
flytja skemmtilegt erindi í upp-
hafi.
Með kvíða í maganum sett-
ist ég svo í troðfullan salinn og
bjóst við öllu. Skemmst er frá
því að segja að ég tel að þessi
Njálusýning sé langstórbrotn-
asta verk sem sýnt hefur verið í
íslensku leikhúsi um langt skeið.
Sýningin er hlaðin söngvum og
dönsum og handbragði lista-
manna. Sögumaður rekur söguna
og allir stærstu atburðirnir, allt frá
uppvexti Hallgerðar Langbrókar
til Njálsbrennu, koma fyrir.
Leikritahöfundar velja það að
sýna tilfinningaríkustu senurn-
ar úr Njálu, persónur fornaldar
ganga ljóslifandi um sviðið í frá-
bærum leik og skrafa á gullaldar-
máli. Ég hvet fólk til að bregða
undir sig betri fætinum og sjá
sýninguna sem markar tímamót
í leikhúsi. Auðvitað hefði eitt-
hvað mátt missa sig í sýningunni
sem ég „fílaði“ ekki en hvað um
það, svona er lífið. Svo hefði
mátt gera eitthvað enn áhrifa-
ríkara. Ég saknaði t.d. Þórðar
litla Kárasonar, að hann skyldi
ekki vera á sviðinu í brennunni,
leikinn af ungum dreng, því það
eru einhver stórbrotnustu örlög
Íslendingasagnanna þegar hann
kaus að deyja með afa sínum og
ömmu. Svo hefði ég kosið í hinni
stórkostlegu senu á Þingvöllum
eftir víg Höskuldar Hvítanesgoða
að Skarphéðinn hefði kastað
hinum bláu kvenbrókum í Flosa.
Ég bæði hló og felldi tár á þessari
stórbrotnu sýningu. Og flottur var
Karlakór Kópavogs þegar hann í
lok brennunnar söng Brennið þið
vitar og Heyr himnasmiður.
Guðni Ágústsson − rithöfundur
og fyrrverandi landbúnaðarráðherra:
Til hamingju með nýgerða
búvörusamninga
Fréttir
Mynd / Austurbrú
Uppbyggingarsjóður Austurlands:
Tæplega 60 milljónir til 90 verkefna
Uppbyggingarsjóður Austurlands
hefur úthlutað tæplega 60 millj-
ónum króna til 90 verkefna sem
efla munu atvinnuþróun og
menningu í landshlutanum.
Þetta er önnur úthlutun sjóðsins
sem hefur það hlutverk að styrkja
menningar- og nýsköpunarverkefni
í samræmi við sóknaráætlun lands-
hlutans.
Alls bárust 150 umsóknir sem er
svipaður fjöldi og í fyrra. Áætlaður
heildarkostnaður við þessi 150
verk efni er rúmar 807 milljón-
ir króna. Sótt var um rúmar 221
milljón en til úthlutunar komu 55,5
m.kr. sem er örlítið lægri upphæð
en í fyrra þegar 58 milljónum var
úthlutað.
Signý Ormarsdóttir, verk-
efnastjóri Uppbyggingarsjóðs
Austurlands, segir á vef Austurbrúar
ánægjulegt hversu margar umsóknir
bárust. Ákveðið var í haust að þýða
helstu umsóknargögn yfir á ensku
og telur hún að það hafi skilað
sér í auknum fjölda umsókna sem
margar hverjar voru afskaplega fag-
lega unnar. Signý segir að það hafi
líka vakið athygli hversu öflugar
umsóknir um skógræktarverkefni
hefðu borist. Þessi atvinnugrein hafi
vissulega verið áberandi í styrkút-
hlutunum áður en aldrei með jafn
fjölbreyttum og áhugaverðum verk-
efnum og nú.
Tanni Travel fékk hæsta styrkinn
Hæsta styrkinn að þessu sinni fær
Tanni Travel, eða 4,3 m.kr., til
tveggja verkefna; 3,5 m.kr. til verk-
efnisins Fly Europe sem snýr að sölu
flugsæta með beinu flugi Discover
the World milli Egilsstaðaflugvallar
og Lundúna sumarið 2016 og 800
þúsund kr. til Meet the locals en
það verkefni snýst um að heima-
menn taki á móti ferðamönnum
á persónulegum nótum. Skaftfell,
miðstöð myndlistar á Austurlandi,
hlýtur 2,7 m.kr. til tveggja verk-
efna; 2,1 m.kr. til sýningardagskrár
Skaftfells 2016 og 600 þúsund kr. til
fræðsluverkefnis miðstöðvarinnar.
Þá hlýtur LungA – listahátíð ungs
fólks á Austurlandi 2,5 m.kr. og
Wasabi Iceland ehf. fær 2,2 m.kr.
til vefjaræktunar á wasabi í rann-
sóknaraðstöðu. /MÞÞ
Orf líftækni:
Sérþróað bygg gegn
kampýlóbakter
Verulega má draga úr bakteríunni
kampýlóbakter í kjúklingi með því
að nota sérþróað bygg með fóðri
fuglanna. Þetta eru niðurstöður
rannsóknar ORF Líftækni og
Háskólans í Bristol.
ORF Líftækni hefur fengið
samþykki fyrir styrk frá Tækni-
þróunarsjóði og Evrópu sambandinu
í gegnum Eurostars-verkefnaáætlun
upp á 45 milljónir til að þróa vöru út
frá rannsókninni.
Kampýlóbakter-sýking stórt
vandamál
Matareitrun vegna kampýlóbakter
úr kjúklingum er stórt vandamál
víða um heim. Samkvæmt tölum
frá breska matvælaeftirlitinu má
áætla að á hverju ári megi rekja 80
dauðsföll og 15.000 sjúkrahúsinn-
lagnir í Bretlandi til matareitrunar af
völdum kampýlóbakter úr kjúklingi.
Árlegur kostnaður breska ríkisins
vegna þessa nemur rúmlega 120
milljörðum króna.
Ísland er í hópi fárra landa þar sem
lítið er um kampýlóbakter-mengun í
kjúklingum.
Dregur verulega úr smiti
Í fréttatilkynningu frá Orf segir að
niðurstöður rannsóknanna bendi
til að koma megi fyrir næstum öll
dauðsföll þessu tengd og snarlækka
kampýlóbakter í kjúklingi með því
að blanda litlu magni af byggi sér-
þróuðu til að vinna gegn kampýló-
bakter saman við fóður fuglanna.
Nýjustu niðurstöður rannsókna
benda til þess að áhrifin séu veru-
leg, en engin kampýlóbakter fannst
í tæpum þriðjungi þeirra kjúklinga
sem fengu byggið í rannsókninni.
Birtar rannsóknir gefa til kynna að ef
kampýlóbakter í kjúklingum fækkar
1.000-falt þá geti það leitt til 300
færri tilfella af matareitrunum þeim
tengdum í þeim löndum þar sem slík
vandamál eru til staðar.
Tilefni til bjartsýni
Dr. Hákon Birgisson, yfirmaður
markaðsþróunar lífvísindavara hjá
ORF, segir niðurstöðurnar mjög
spennandi og gefa tilefni til bjart-
sýni um framhaldið. „Í dag eru engar
lausnir til sem taka almennilega á
þessum vanda og væri þessi vara
að þróun lokinni því sú fyrsta af
sínu tagi. Hingað til hafa niðurstöð-
urnar sýnt að áhrifin eru eingöngu
bundin við kampýlóbakter á meðan
aðrar náttúrulegar bakteríur sem eru
kjúklingunum mikilvægar verða ekki
fyrir áhrifum. Okkur er því mikið í
mun að halda þróun áfram af krafti
og er því kærkomið að hljóta þennan
styrk. Auk þess eru mörg af stærstu
fóðurframleiðslufyrirtækjum heims
nú farin að ræða við okkur og sýna
vörunni áhuga.“ /VH
-
-