Bændablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Um áramót fluttist starfsemi
Búnaðarstofu Bændasamtaka
Íslands til Matvælastofnunar
í samræmi við breytingar á
búvörulögum sem voru sam-
þykkt frá Alþingi í júlí 2015.
Matvælastofnun breytti
skipuriti sínu um áramót. Inn
í skipurit Matvælastofnunar
var m.a. bætt inn nýrri skrif-
stofu, búnaðarmálaskrifstofu.
Búnaðarmálaskrifstofa er stað-
sett á 2. hæð í Bændahöllinni.
Starfsfólk Búnaðarstofu, fjög-
ur talsins, fluttist frá Bænda-
samtökunum yfir í búnaðarmála-
skrifstofu Matvælastofnunar.
Samtals er þetta starfsfólk með
yfir 140 ára starfsreynslu hjá
Bændasamtökunum, Búnaðar-
félagi Íslands og Framleiðslu-
ráði landbúnaðarins. Hin nýja
skrifstofa mun halda utan um
stuðningsgreiðslur til bænda í
tengslum við búvörusamninga
og búnaðarlagasamning, tölur
um framleiðslu og sölu búvara,
hagtölur um búfjáreign bænda,
hjarðbækur o.fl.
Þann 3. febrúar sl. var
haldið upp á opnun búnaðar-
málaskrifstofunnar og mættu
um 90 manns. Jón Gíslason,
forstjóri Matvæla-
stofnunar, og Jón
Baldur Lorange, fram-
kvæmdastjóri hinnar
nýju búnaðarmála-
skrifstofu, buðu gesti
velkomna og Sigurður
Ingi Jóhannsson,
atvinnuvega- og
nýsköpunar ráðherra,
og Sigurgeir Sindri
Sigurgeirsson, for-
maður Bændasamtaka
Íslands, ávörpuðu
gesti.
...frá heilbrigði til hollustu
Búnaðarstofa BÍ flutt:
Orðin búnaðarmálaskrifstofa
Matvælastofnunar
Fréttir
Jón Baldur Lorange, framkvæmdastjóri hinnar nýju búnaðarmálaskrif-
stofu MAST, ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, við formlega opnun skrifstofunnar í Bændahöllinni.
Guðrún S. Sigurjónsdóttir og Auður Oddgeirs-
dóttir við brjóstmynd af Halldóri Pálssyni sem
var búnaðarmálastjóri frá 1963 til 1980.
Nýjar reglur um velferð gæludýra:
Ítarlegri ákvæði um dýravelferð
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið
hefur gefið út nýja
reglugerð um velferð
gæludýra. Með gildis-
tökunni hafa nýju
dýravelferðarlögin
verið útfærð fyrir allar
helstu dýrategundirnar
sem löggjöfin nær yfir.
Matvælastofnun og
ráðuneytið halda málþing
fyrir gæludýraeigend-
ur og aðra áhugasama
fimmtudaginn 3. mars
þar sem farið verður
yfir reglugerðina, kröfur
hennar og helstu nýmæli.
Tilgangur reglugerðar-
innar er að tryggja velferð
og heilbrigði gæludýra
með góðri meðferð,
umhirðu og aðbúnaði. Leitast skal
við að þau geti lifað í samræmi við
sitt eðlilega atferli, eins og framast
er unnt. Í reglugerðinni koma fram
lágmarkskröfur um einstök atriði og
er Matvælastofnun falið að hafa eft-
irlit með framkvæmd hennar.
Ítarlegri ákvæði um velferð dýra
Í fréttatilkynningu vegna nýju regln-
anna segir að nokkur nýmæli séu
í reglugerðinni en að stofni til er
hún endurskoðun á reglugerð nr.
1077/2004 um aðbúnað og umhirðu
gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni.
Með nýrri reglugerð eru sett mun
ítarlegri ákvæði um velferð gæludýra
svo sem nákvæmari skilgreiningar
á hugtökum og gerðar eru ákveðn-
ar kröfur til gæludýraeigenda um
þekkingu og hæfni til að eiga og
halda gæludýr. Þeim sem selur eða
afhendir gæludýr er skylt að veita
móttakanda upplýsingar um dýrið
og eiginleika tegundarinnar, þarfir
þess og rétta meðferð.
Tilkynningarskylt gæludýrahald
svo sem gæludýraverslanir, dýra-
miðlanir og ræktendur með vissan
fjölda dýra þurfa að veita skriflega
eða aðgengilega rafræna fræðslu til
kaupenda.
Ákvæði um aðgerðir á dýrum
Enn fremur koma inn ný ákvæði um
aðgerðir á gæludýrum, sem í sam-
ræmi við lög um velferð dýra skulu
aðeins framkvæmdar af dýralæknum
og við sársaukafullar aðgerðir eða
meðhöndlun skal ávallt deyfa eða
svæfa þau og veita þeim verkjastill-
andi meðhöndlun. Að undanþegnum
ófrjósemisaðgerðum og geldingum
gæludýra eru skurðaðgerðir til að
fjarlægja líkamshluta ekki leyfðar
nema af læknisfræðilegum ástæðum.
Skurðaðgerðir í tilgangi fegrunar,
svo sem að fjarlægja spora og stýfa
eyru eða rófu/skott, eru bannaðar.
Ekki má nota tíkur áfram til undan-
eldis sem hafa tvisvar gengist undir
keisara og ekki má þvinga tík til pör-
unar ef hún sýnir augljós merki um
óþægindi eða hræðslu.
Tilkynningarskylda um dýrahald í
atvinnuskyni
Auk tilkynningarskyldu á dýrahaldi
í atvinnuskyni verður umfangsmikið
dýrahald einnig tilkynningarskylt
samkvæmt skilgreiningu í reglu-
gerð. Í kaflanum um dýrahald í
atvinnuskyni eru nýjar greinar
um smitvarnir og slysavarnir og
í því sambandi má nefna að hús-
næði þar sem dýr eru vistuð skal
búið virkum eldvörnum svo sem
reykskynjara og slökkvitæki. Enn
fremur getur Matvælastofnun gert
kröfu um að vistarverur dýra þar
sem stunduð er tilkynningarskyld
starfsemi eða dýrahald
séu búnar sjálfvirkum
viðvörunarbúnaði tengd-
um loftræstingu, hitastigi,
vatnsflæði eða eldvörn-
um, ef það er nauðsyn-
legt til að tryggja öryggi
dýranna. Sleðahundahaldi
eru einnig settar nánari
skorður í reglugerðinni.
Örmerkja skal hunda,
ketti og kanínur
Í reglugerðinni er gerð
krafa um örmerkingar
allra hunda, katta og
kanína. Settar eru tak-
markanir á umfangsmik-
ið búrahald hunda í ferða-
búrum. Notkun, sala og
dreifing á útbúnaði sem
gefur hundum rafstuð eða hálsólum
með gadda eða hvassa kanta innan
á ól er bönnuð. Hálsól skal þannig
gerð að hún geti ekki herst að hálsi
þannig að það geti takmarkað öndun
eða skaðað dýrið á annan hátt.
Varað við offitu gæludýra
Í viðaukum með reglugerðinni
eru að finna mun ítarlegri ákvæði
en voru í eldri reglugerð, m.a. er
nú talin upp sú atvinnustarfsemi
sem telst tilkynningarskyld til
Matvælastofnunar. Þá er að finna
holdastuðla fyrir hunda, ketti, kan-
ínur og búrfugla, sem munu auð-
velda dýraeftirlitsmönnum að meta
fóðrun og holdafar gæludýra og gera
viðeigandi kröfur til úrbóta þegar
það á við. Vakin er athygli á að í
reglugerðinni kemur fram að offóðr-
un og offita gæludýra er ekki góð
meðferð, rétt eins og vanfóðrun og
rýrt holdafar.
Málþing um velferð gæludýr
Matvælastofnun heldur opið mál-
þing um velferð gæludýra fimmtu-
daginn, 3. mars kl. 13–16 í fundarsal
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytisins í Sjávarútvegshúsinu að
Skúlagötu 4 í Reykjavík. Á mál-
þinginu verður farið yfir kröfur
reglugerðarinnar og helstu nýmæli.
/VH
Í reglugerðinni er gerð krafa um örmerkingar allra hunda,
katta og kanína.
Sala á jörðum á Íslandi:
Talsverð aukning
Áhugi á jarðakaupum er að aukast
aftur eftir hrun að sögn fasteigna-
sala. Hann segir áhuga væntan-
legra kaupenda bæði snúast um
jarðir undir búskap og til annarra
nota. Hækkun á fasteignaverði
húsnæðis hefur áhrif til hækkunar
á jarðaverði.
Magnús Leópoldsson, fasteigna-
sali hjá Fasteignamiðstöðinni, segir
að sala á jörðum hafi smám saman
verið að aukast undanfarið eftir að
hún datt alveg niður eftir hrun. „Ég er
ekki að segja að eftirspurnin núna sé
eins mikil og hún var þegar mest var
fyrir hrun en hún er að aukast og er
meiri í dag en á sama tíma fyrir ári.“
Áhugi fyrir jörðum hefur aukist
„Satt best að segja datt salan alveg
niður eftir hrunið og það er ekki fyrr
en á síðustu mánuðum sem hún hefur
verið að aukast aftur. Aðdragandinn
af því að fólk kaupir jörð er yfirleitt
langur og ég finn greinilega fyrir
auknum áhuga því fyrirspurnum um
jarðir til sölu hefur fjölgað umtals-
vert.
Í venjulegu árferði hafa um hundr-
að jarðir skipt um eigendur á ári þó
að fjöldinn hafi reyndar verið mun
meiri á árunum fyrir hrun.“
Fasteignaverð að hækka
Að sögn Magnúsar er misjafnt hvort
væntanlegir kaupendur ætli sér að
vera með búskap á jörðunum eða
annars konar rekstur, svo sem eins og
ferðaþjónustu. Það er yfirleitt dýrt að
kaupa jörð og ætla að hefja búskap.
Í sumum tilfellum þarf að endurnýja
húsnæði mikið og kaupa bústofn og
til þess þarf talsvert mikið eigið fé.“
Magnús segir að áður hafi menn
setið lengur á jörðum sínum og dreg-
ið saman í stað þess að bregða búi og
að algengara hafi verið að afkomend-
ur tækju við búrekstrinum af foreldr-
um sínum en í dag.
„Hækkun á fasteignaverði á höf-
uðborginni og annars staðar á landinu
er að hafa þau áhrif að verð á jörð-
um er einnig að hækka. Þeir sem
bregða búi verða í flestum tilfellum
að kaupa sér húsnæði annars staðar
og því dýrara sem það er því hærra
verð þurfa þeir að fá fyrir sína eign.“
Verðið skiptir mestu
Magnús segir að áhugi á jörðum sé
svipaður um allt land, þó meira út
frá þéttbýli. „Verð á jörðum er svip-
að í dag og það var á árunum 2005
og 2006 og það er verðið sem ræður
mestu um það hvort kaupin gangi í
gegn eða ekki.“ /VH
Magnús Leópoldsson.